23.10.2011 | 23:16
Landsfundur Samfylkingarinnar
er að baki.
Ég reyndi eftir bestu getu að lesa textann með opnum huga til þess að athuga hvort þarna væri eitthvað sem höfðaði til mín. En því miður, þeim mun lengur sem ég las því mótssagnakenndara fannst mér plaggið.
Raunveruleg stefna og möguleikar hurfu í skrúðmælgi eins og oft vill verða í svona ályktunum sem forystumennirnir láta hnoða saman í aðdraganda svona funda með það fyrir augum væntanlega að geta farið með þetta frjálslega þegar til stykkisins kemur á þingi.
Eitt er þó kýrskýrt í stefnumörkun Samfylkingarinnar, sem hún mun varla geta samið um við aðra flokka:
Aðild að Evrópusambandinu og upptaka evru er eitt mikilvægasta skrefið í átt til efnahagslegs stöðugleika, hagvaxtar og betri rekstrarskilyrða fyrir heimili og fyrirtæki. Upptaka evru felur í sér afnám gjaldeyrishafta, leiðir af sér lægri viðskiptakostnað og vexti, bætir aðgengi að mörkuðum og eykur traust erlendra fjárfesta og greiðir þannig fyrir fjárfestingum hér á landi. Umgjörð myntbandalagsins mun auka á aga í efnahagsstjórn og stjórn ríkisfjármála og stuðla að stöðugleika í hagkerfinu. Aðild að ESB stuðlar þannig að öflugu og samkeppnishæfu atvinnulífi á Íslandi..
Eitt mikilvægasta verkefni endurreisnarinnar og brýnasta verkefni þjóðarinnar á sviði alþjóðasamvinnu er að Ísland gangi í Evrópusambandið. Aðildarviðræðum Íslands við Evrópusambandið miðar vel áfram og nýleg framvinduskýrsla sýnir að Íslendingar eru ágætlega í stakk búin til að takast á við það metnaðarfulla verkefni að gerast fullgildir aðilar að sambandinu.
Þarna lýsir Samfylkingin því yfir að hún sér enga aðra leið færa fyrir íslenskt samfélag en þessa leið. Hún hefur þar með lokað nokkuð öllum dyrum að hægt sé að ræða framtíðina við hana útfrá öðrum forsendum.
Hvernig í veröldinni getur þá eftirfarandi rímað við þessa byrjunaryfirlýsingu?:
Tryggja skal ævarandi sameign þjóðarinnar á auðlindum með breytingum á stjórnarskrá. Heildstæð auðlindastefna byggi á þeim grundvallaratriðum að nýtingarrétti sameiginlegra auðlinda verði ævinlega úthlutað á jafnræðisgrundvelli til hóflegs tíma, gegn fullu gjaldi og með gagnsæjum og hlutlægum hætti þannig að þjóðin öll njóti arðs af auðlindum sínum...
.. Nýtt frumvarp til nýrra laga um stjórn fiskveiða verði lagt fram á yfirstandandi þingi í samræmi við heildstæða auðlindastefnu. Brýnt er að tryggja varanlegt eignarhald og forræði þjóðarinnar yfir auðlindum sjávar og að arðurinn af nýtingu þeirra renni til samfélagsins.
Er sameiginleg fiskveiðistefna Evrópubandalagsins þá eitthvað sem er orðum aukið? Bara svona Alltíplati?
Skattastefnan stuðli að kjarajöfnun og sanngjarni dreifingu byrða um leið og hún varðveitir hvatann til öflunar atvinnutekna og dragi úr jaðarskattaáhrifum tekjutengdra bóta.
Hefur Samfylkingin fylgt þessari skattastefnu í ríkisstjórn síðustu ár? Rímar þetta við stórhækkanir á eldsneytisgjaldi til dæmis? Rímar þetta við ný tekjuskattsþrep? Við fjögraprósenta hækkun á vsk?
Gert verði átak í að laða til landsins erlenda fjárfestingu á grundvelli skýrrar stefnumótunar og lagaramma um hana. Áhersla verði lögð á erlenda fjárfestingu sem byggir upp ný verðmæt atvinnutækifæri, eykur fjölbreytni atvinnulífs og flytur inn nýja þekkingu og tækni.
Borið saman við endalok viðræðna við Alcoa um álver á Bakka,stöðuna í Helguvík, eitthvað annað stefnu ríkisstjórnarinnar, geta menn séð eitthvað samhengi í þessu?
Og er líklegt að virkjanir í neðri Þjórsá, sem eru einu fullhönnuðu virkjanakostirnir sem við eigum núna, ekki einhvern tímann seinna heldur núna í núverandi atvinnuleysi, sjái dagsins ljós á næsta ári undir gunnfána Samfylkingarinnar efir þessa næstu yfirlýsingu? :
Gengið verði frá fyrstu rammaáætlun um verndun og nýtingu vatnsafls og jarðvarma á Alþingi svo sátt náist um nauðsynlegar orkuframkvæmdir og vernd mikilvægra svæða. Fleiri lykilsvæði verði friðuð sem fyrst. Næstu skref í friðlýsingu verði suðurhluti eldvirka beltisins og nýr þjóðgarður sem hefur Hofsjökul sem kjarna.
Suðurhluta eldvirka beltisins er líka að finna við neðri Þjórsá.
Og trúir fólk því, að flokkur sem vill leggja öll mál þjóðarinnar í bandalag með 27 öðrum ríkjum með sameiginlega utanríkisstefnu í hermálum sem öðru tali af sannfæringu þegar fundurinn samþykkir:
Ísland verði leiðandi rödd í Norðurslóðasamstarfi og málsvari ábyrgrar auðlindanýtingar, friðar, umhverfis og frumbyggja..
Hvervegna skyldi ég aðhyllast stjórnmálayfirlýsingu Samfylkingarinnar? Hversvegna á ég að trúa því að þarna sé vegurinn vísaður út úr kreppunni sem þjóðin hefur verð föst í frá hruninu? Og Samfylkingin hefur haft 3 ár til að leysa með ekki meiri árangri en sést?
Forystan hlýtur að vera svo ánægð með þessar loðnu lýsingarorðasamstæður landsfundarályktana Samfylkingarinnar, að hún getur gefið sér tíma til að hugleiða það sem landsfundurinn fól henni svo ákveðið, að taka afstöðu til lokunar líknardeildarinnar á Landakostspítala.
Skyldi hún klára það mál frá Landsfundi Samfylkingarinnar?
Flokkur: Stjórnmál og samfélag | Breytt s.d. kl. 23:21 | Facebook
Heimsóknir
Flettingar
- Í dag (22.11.): 2
- Sl. sólarhring: 6
- Sl. viku: 39
- Frá upphafi: 3419712
Annað
- Innlit í dag: 2
- Innlit sl. viku: 33
- Gestir í dag: 2
- IP-tölur í dag: 2
Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar
Eldri færslur
- Maí 2022
- Apríl 2022
- Mars 2022
- Febrúar 2022
- Janúar 2022
- Desember 2021
- Nóvember 2021
- Október 2021
- September 2021
- Ágúst 2021
- Júlí 2021
- Júní 2021
- Maí 2021
- Apríl 2021
- Mars 2021
- Febrúar 2021
- Janúar 2021
- Desember 2020
- Nóvember 2020
- Október 2020
- September 2020
- Ágúst 2020
- Júlí 2020
- Júní 2020
- Maí 2020
- Apríl 2020
- Mars 2020
- Febrúar 2020
- Janúar 2020
- Desember 2019
- Nóvember 2019
- Október 2019
- September 2019
- Ágúst 2019
- Júlí 2019
- Júní 2019
- Maí 2019
- Apríl 2019
- Mars 2019
- Febrúar 2019
- Janúar 2019
- Desember 2018
- Nóvember 2018
- Október 2018
- September 2018
- Ágúst 2018
- Júlí 2018
- Júní 2018
- Maí 2018
- Apríl 2018
- Mars 2018
- Febrúar 2018
- Janúar 2018
- Desember 2017
- Nóvember 2017
- Október 2017
- September 2017
- Ágúst 2017
- Júlí 2017
- Júní 2017
- Maí 2017
- Apríl 2017
- Mars 2017
- Febrúar 2017
- Janúar 2017
- Desember 2016
- Nóvember 2016
- Október 2016
- September 2016
- Ágúst 2016
- Júlí 2016
- Júní 2016
- Maí 2016
- Apríl 2016
- Mars 2016
- Febrúar 2016
- Janúar 2016
- Desember 2015
- Nóvember 2015
- Október 2015
- September 2015
- Ágúst 2015
- Júlí 2015
- Júní 2015
- Maí 2015
- Apríl 2015
- Mars 2015
- Febrúar 2015
- Janúar 2015
- Desember 2014
- Nóvember 2014
- Október 2014
- September 2014
- Ágúst 2014
- Júlí 2014
- Júní 2014
- Maí 2014
- Apríl 2014
- Mars 2014
- Febrúar 2014
- Janúar 2014
- Desember 2013
- Nóvember 2013
- Október 2013
- September 2013
- Ágúst 2013
- Júlí 2013
- Júní 2013
- Maí 2013
- Apríl 2013
- Mars 2013
- Febrúar 2013
- Janúar 2013
- Desember 2012
- Nóvember 2012
- Október 2012
- September 2012
- Ágúst 2012
- Júlí 2012
- Júní 2012
- Maí 2012
- Apríl 2012
- Mars 2012
- Febrúar 2012
- Janúar 2012
- Desember 2011
- Nóvember 2011
- Október 2011
- September 2011
- Ágúst 2011
- Júlí 2011
- Júní 2011
- Maí 2011
- Apríl 2011
- Mars 2011
- Febrúar 2011
- Janúar 2011
- Desember 2010
- Nóvember 2010
- Október 2010
- September 2010
- Ágúst 2010
- Júlí 2010
- Júní 2010
- Maí 2010
- Apríl 2010
- Mars 2010
- Febrúar 2010
- Janúar 2010
- Desember 2009
- Nóvember 2009
- Október 2009
- September 2009
- Ágúst 2009
- Júlí 2009
- Júní 2009
- Maí 2009
- Apríl 2009
- Mars 2009
- Febrúar 2009
- Janúar 2009
- Desember 2008
- Nóvember 2008
- Október 2008
- September 2008
- Ágúst 2008
- Júlí 2008
- Júní 2008
- Maí 2008
- Apríl 2008
- Mars 2008
- Febrúar 2008
- Janúar 2008
- Desember 2007
- Nóvember 2007
- Október 2007
- September 2007
- Ágúst 2007
- Júlí 2007
- Júní 2007
- Maí 2007
- Apríl 2007
Bloggvinir
- ghe13
- sigurjonth
- andrigeir
- annabjorghjartardottir
- ansigu
- agbjarn
- armannkr
- asdisol
- baldher
- h2o
- bjarnihardar
- dullur
- bjarnimax
- zippo
- westurfari
- gattin
- bryndisharalds
- davpal
- eggman
- greindur
- bjartsynisflokkurinn
- elfarlogi
- eeelle
- sunna2
- ea
- fuf
- fhg
- vidhorf
- gerdurpalma112
- gilsneggerz
- gudni-is
- lucas
- zumann
- gp
- gun
- topplistinn
- tilveran-i-esb
- skulablogg
- gustafskulason
- gustaf
- heimssyn
- diva73
- helgi-sigmunds
- hjaltisig
- minos
- hordurhalldorsson
- astromix
- fun
- jennystefania
- johanneliasson
- johannvegas
- jonatlikristjansson
- fiski
- jonl
- jonmagnusson
- jonlindal
- bassinn
- jonvalurjensson
- jvj
- thjodarskutan
- juliusbearsson
- katagunn
- kje
- ksh
- kristinn-karl
- kristinnp
- kristjan9
- loftslag
- altice
- ludvikjuliusson
- maggij
- magnusthor
- mathieu
- nielsfinsen
- omarbjarki
- huldumenn
- svarthamar
- pallvil
- peturmikli
- valdimarg
- ragnarb
- samstada-thjodar
- fullveldi
- siggus10
- sisi
- siggisig
- ziggi
- siggith
- stjornlagathing
- pandora
- spurs
- kleppari
- saethorhelgi
- tibsen
- ubk
- valdimarjohannesson
- skolli
- valurstef
- vilhjalmurarnason
- vey
- postdoc
- thjodarheidur
- icerock
- steinig
- thorsteinnhelgi
- icekeiko
Athugasemdir
Össur sagði á RÚV í vikunni: "ESB er eina framtíðarsýn okkar".
Sá sem sér aðeins eina leið á ekki að vera í pólitík og alls ekki í ríkisstjórn.
Haraldur Hansson, 24.10.2011 kl. 00:44
Megum við þá vonast eftir því að Össur helgi sig vísindunum eftir að þjóðin greiðir atkvæði um ESB á þann hátt sem útlit er víst fyrir? margt yrði einfaldara í þjóðfélaginu ef þessari síbylju um evruna myndi linna.
Halldór Jónsson, 24.10.2011 kl. 07:43
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.