Leita í fréttum mbl.is

Auf die Mark kommt es an !

var máltæki fólks þegar ég fyrst kynntist Þjóðverjum 1957 sem áttu eftir að fóstra mig næstu fimm árin og kenna mér byrjun á nýrri hugsun sem ég kann þó ekki enn. Ég var heimskur spraðibassi, gæji, af Íslandi sem hafði aldrei þurft að líða skort né hugsað um að fara vel með það sem ég hafði.Ég hafði aldrei séð stríð og allsleysi.

Ég var þó alinn upp við að vinna og eyða aflanum jafnharðan. Það þýddi ekki að geyma aura á Íslandi, það var ég búinn að læra af áletruninni á sparibyssunni minni gömlu sem mér hafði verið gefin af Landsbankanum. "Græddur er geymdur eyrir" stóð utan á henni gylltum stöfum. Ég lærði fljótt að stinga hana upp með borðhníf og setja innihaldið í klósettið eins og pabbi sagði mig náttúraðan fyrir via Freyju og Vífilfell og fleiri freistingasmiði þess tíma.

Ég er víst eitthvað svona innréttaður ennþá.Hallur undir heimsins gæði og hið ljúfa líf. Sést á mittismálinu. Peningur er til þess að kaupa fyrir en ekki að strúka honum og kjassa. Ég hafði líka átt sparibók með sparibyssunni með einhverri upphæð í 10 ár og hann dugði bara fyrir einum ís þegar ég varð stúdent en hafði dugað fyrir hjóli 6 árum fyrr. Síðan þá finnst mér eiginlega vafasamt að ljúga að börnum um jólasveininn sem komi með gjafirnar og setji í skóinn nema að hlæja hæfilega með tunguna í kinninni.

Hinir nýju uppalendur mínir hugsuðu allt öðruvísi. Hjá þeim byggðist allt á að halda í markið og láta það ekki af hendi fyrr en í síðustu lög. Eftir önnur 5 ár frá því að við lukum náminu sagði minn besti vinur í Þýskalandi þegar ég spurði hann af hverju hann ekki byggði hús fyrir lán frá bankanum? Þessir skítir(hann er svakalega orðljótuir eins og ég) hugsa ekki um neitt nema að stela af þér vöxtum. Maður á að spara og leggja fyrir en ekki taka helvítis lán sem bara kosta vexti. Hann byggði seinna en ég og veit ekki aura sinna tal í dag og á það sannarlega skilið. Hann kenndi mér líka að vinna og líta ekki á klukkuna og vera ekki alltaf að spekúlera að eyða peningum heldur skapa árangur.Hlusta ekki á skít frá skítum. Nú vill maður gjarnan skapa eitthvað en það er hvergi viðspyrna í ónýtu samfélagi skítakommúnista. Það er allt skítadautt og maður er líka orðinn skítagamall paríah, sem enginn vill tala við, svo maður haldi áfram á orðfærinu okkar gömlu strákanna.

Það er nefnilega svo að enginn getur byggt hamingju sína á láni. Hamingjan er nefnilega "Lánlaus". Skuldugur maður er þræll eins og Einar ríki segir í bók sinni. Það versta sem hendir eina fjölskyldu er að reisa sér hurðarás um öxl fjárhagslega. "Kröfuhörð kona hefur orðið mörgum manninum að falli " sagði vinur minn Sveinn eitt sinn og hann vissi það eins og annað. "Samhent hjón" geta unnið stórvirki sagði hann líka, "Án skulda er hamingja í húsi." "Sígandi lukka er best", "Betri er húsbruni en hvalreki á fyrsta ári búskapar" sagði hann líka."

Það er nefnilega ennþá svo að það er Markið sem skiptir máli.Markið sem þú átt sem skiptir máli þegar upp er staðið en ekki Markið sem þú ert búinn að fleygja frá þér í hita augnabliksins.

Og nú þegar Þjóðverjar sjá það "skítaklárt" eins og vinur minn myndi orða það, og það ekki í fyrsta sinn, að aðrar þjóðir í Evrópusambandinu eiga ekki samleið með þeim í þeirra bóndahugsun og vinnusemi um nauðsyn þess að heyja og eiga fyrningar, þá virðist komið að vatnaskilum. Því spraðibassar bandalagsríkjanna verða einfaldlega að aðlaga sinn lífstíl nýrri hugsun eins og ég var að reyna að gera fyrir margt löngu. Líklega munu Þjóðverjar innan skamms taka upp markið sitt gamla aftur og setja evruna til hliðar. Allir munu vilja skipta sínum evrum í mörk og evran hrynur niður á þann stall sem henni er ætlaður.

Evrusýningunni er lokið, allstaðar nema hjá Samfylkingunni íslensku og Evrusinnum. Tjaldið fellur.

Auf die Mark kommt es an!


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Júlíus Björnsson

Bolshevik er:   a member of the majority faction of the Russian Social Democratic Party, which seized power in the Revolution of 1917.  Aðferð fræðin er að stela sparifé og eignum almennings.

Maður á að spara og leggja fyrir en ekki taka helvítis lán sem bara kosta vexti.

Þetta var ekki hægt á Íslandi því sparisjóðs reikningar voru notir sem afskriftar varsjóður af Íslenskum sossum  í öllum flokkum.  Þjóðverjar borga leigu fyrir að geyma fyrir sig varsjóði í til lengri tíma og taka ekki raunvexti af sínum skuldurum [bönkunum], þakka fyrir að fá raunvirði til baka.

Hér rétt fyrir Ólafslög lá fyrir að varla var til einn einstaklingur sem lét stela af sér innlánssparnaði. Þá komu sossar fram með nýtt eig tilfærslu kerfi og það flest í því að arðræna þá sem vilja spara mest í eigin fasteign eins og sannir þjóðverjar.  80% í fasteign og 20% í reiðfé eða hltbréfum í önvegis vsk. fyrirtækjum, sem borga max. 2,0% raunvexti að jafnaði.

Júlíus Björnsson, 3.12.2011 kl. 23:01

2 Smámynd: Sigurður Þorsteinsson

Halldór, eins og þú veist er konan mín heimilisrekstarfræðingur frá Þýskalandi, og su menntun er m.a. notuð til þess að kenna Þjóðverjum að spara.

Mættum við vitna í þessa grein þína, lýsingin ætti að vera tilnefnd til íslensku bókmenntaverðlaunanna. Sérstaklega skemmtileg lesning snemma á sunnudagsmorgni. 

Sigurður Þorsteinsson, 4.12.2011 kl. 06:33

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Höfundur

Halldór Jónsson
Halldór Jónsson

verkfræðingur, flugdellukall, tennis-og badmintonspilari

-ekki góður í neinu af þessu-

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (5.5.): 6
  • Sl. sólarhring: 13
  • Sl. viku: 68
  • Frá upphafi: 3418300

Annað

  • Innlit í dag: 6
  • Innlit sl. viku: 65
  • Gestir í dag: 6
  • IP-tölur í dag: 2

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Eldri færslur

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband