Leita í fréttum mbl.is

Alþingismaðurinn Björn Valur Gíslason

er ekki allur sem hann er séður. Svona í ljósi þess hvernig hann greiddi atkvæði með lögsókn á hendur Geirs Haarde þá er ekki úr vegi að taka eftir því hvernig hann kom fram við nákomið fjölskyldufólk. Sigtryggur Valur Jónsson segir svo í bréfi til Björns:

" Þú hefur þann „heiður að bera“ að hús okkar hjóna var boðið upp og stóð fimm manna fjölskylda á götunni eftir þann leik. Uppáskrift lánsins sem þú tókst til að fjármagna útgerð þína, Björn Valur Gíslason ehf, varð að okkar óláni. Láninu átti að aflétta síðar af húsi okkar hjóna, en lán þetta var aldrei flutt og því fór sem fór.

Svar þitt við okkur var einfalt: Það verða allir að bera ábyrgð á því sem þeir gera. Þess má geta, fyrir lesendur bréfs þessa, að BVG og kona mín eru systkinabörn. Eitt enn, af mörgu, sem setja má í snilldarpakka þinn, og það er hvernig þér tókst að fá lán langt umfram eignir. Er þetta kannski kunnuglegt í dag, BVG?"

Þegar þessi saga er skoðað í samhengi við réttlætistilfinningu þessa þingmanns sem leiddi til þess að hann taldi nauðsynlegt að stefna Geir Haarde fyrir Landsdóm, þá sér maður að í ríki föðurins eru margar vistarverur.

Það er ekki ónýtt fyrir kjósendur Vinstri Hreyfingarinnar-Græns framboðs að eiga völ á svona göfugmenni eins og Björn Valur Gíslason er til að auka virðingu Alþingis.


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Brattur

Hér er MacCartyisminn í öllu sínu veldi á ferðinni.

Björn Valur lætur Sjálfstæðismenn hafa það óþvegið og þá er farið í leðjuslag og kemur mér það ekki á óvart. Það segir mér að þið eruð hræddir við BVG.

Ég skal segja þér sannleikann í þessu máli Halldór :

Björn Valur og Sigtryggur Valgeir voru saman með litla útgerð á Ólafsfirði fyrir 20 árum síðan. Útgerðin gekk ekki vel og fyrirtækið varð gjaldþrota. Þeir töpuðu BÁÐIR öllu sínu.

Björn Valur greiddi hinsvegar öllum þeim sem höfðu skrifað upp á lán fyrir hann, upp hvern einasta eyri, og það tók hann mörg ár.

Sigtryggur Valgeir var nú ekki meiri maður en svo að hann lét þá sem höfðu skrifað upp á lán fyrir hann fá allt í hausinn... þ.e. honum var alveg sama þá að vinir og ættingjar greiddu lán sem honum bar að borga.

Síðan kemur þessi ómerkilegi maður, Sigtryggur Valgeir, fram á sjónarsviðið og ber fram þessa lygasögu... líklega vegna þess að Sjálfstæðismenn þurfa að finna höggstað á Birni Val... og þá er djúpt grafið...

Þið getið smjattað á afbakaðri sögu um BVG en getið með engu móti horfst í augu við það að ykkar menn DO með 300 milljarða gjaldþrot Seðlabankans og öll ykkar græðgishjörð setti landið okkar á hausinn...

Í Guðanna bænum horfið þið í eigin barm og verið ekki svona lágkúrulegir.

Brattur, 18.12.2011 kl. 11:57

2 Smámynd: Halldór Jónsson

Af hverju skrifarðu undir dulnefni Brattur?

Halldór Jónsson, 18.12.2011 kl. 14:14

3 Smámynd: Brattur

Þetta er ekkert dulnefni... bara gamalt bloggheiti... þú sérð hvað ég heiti á síðunni minni... Gísli Gíslason.

Brattur, 18.12.2011 kl. 15:30

4 Smámynd: Halldór Jónsson

Jæja Gísli

Hverju á maður að trúa. Maður sér þessa fullyrðingu frá Sigtryggi Valgeir. Hún er ekki falleg svo mikið er víst. Ég er ekki endilega McCarthy þó ég hafi tekið þetta bókstaflega upp hjá smáfuglunum á AMX.

 Ef sannleikurinn er eins og þú segir þá finnst mér það ekki fallegt hjá Sigtryggi að skrifa svona. Sé Björn Valur eins og þú segir þá skal ég virða það við hann. Og þá er Sigtryggur ekki í háu áliti hjá mér.

Skítkast þitt í Davíð Odsson og Sjálfstæðisflokkinn  er ekki merkilegur. Davíð gerði sín mistök þegar hann hélt að hann væri að bjarga Kaupþingi. Banksterarnir tóku peninginn umsvifalaust í vasa sína og vina sinna og gáfur skít í bankann, Var þetta ekki eitt málið? Ég held að Davíð hafi ekki sett Lehmans bræður á hausinn. Ég held að það hafi ekki verið nein græðgishjörð í kringum Davíð eða Sjálfstæðisflokkinn. Að minnsta kosti tengjast Jón Ásgeir, Ólafur í Samskip,Finnur Ingólfsson, Sigurður Einarsson og Hreiðar Már ekki þeim flokki.

Þú vilt kannski útskýra mál þitt betur? 

Halldór Jónsson, 18.12.2011 kl. 19:21

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Höfundur

Halldór Jónsson
Halldór Jónsson

verkfræðingur, flugdellukall, tennis-og badmintonspilari

-ekki góður í neinu af þessu-

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (4.5.): 1
  • Sl. sólarhring: 7
  • Sl. viku: 63
  • Frá upphafi: 3418288

Annað

  • Innlit í dag: 1
  • Innlit sl. viku: 63
  • Gestir í dag: 1
  • IP-tölur í dag: 1

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Eldri færslur

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband