Leita í fréttum mbl.is

Skuldavandi heimilanna

er eilíft til umræðu og logið er sitt á hvað. Sérstaklega er ekkert að marka yfirlýsingar frá ríkisstjórninni eða misvísandi yfirlýsingar bankanna sem skiljanlega vilja einskis í missa af ránsfeng sínum af almenningi sem birtist í hundruð milljarða gróða vegna hrakvirtra yfirtekinna skulda heimilanna.

Það er hinsvegar eins og enginn hafi tekið eftir ályktun Landsfundar Sjálfstæðisflokksins síðasta Landsfundi. Þar segir:

"Sjálfstæðisflokkurinn vill færa niður höfuðstól verðtryggðra og gengistryggðra húsnæðislána. Þessi aðgerð og önnur endurskipulagning skulda heimilanna er forsenda fyrir auknum hagvexti og framtíðaruppbyggingu íslensks þjóðfélags. Aðgerðir til lausnar skulda einstaklinga eiga að vera almennar en ekki það sértækar að leiði til mismununar borgaranna og brjóti gegn jafnræðisreglu stjórnarskrárinnar."

Þetta þýðir á mannamáli og kom fram í umræðunum að höfuðstóllinn skuli verða eins og hann var fyrir stökkbreytingu. Verðtryggingarklukkan færð aftur.

Mér er sagt að innan þingflokks Sjálfstæðimanna séu hinsvega margir sem vilja hunsa þetta og segja að bankarnir og Íbúðalánasjóður hafi ekki ráð á þessu. Auðvitað verður þetta dýrt. En hvað kostar það að þjóðin flýji land vegna kjarkleysis forystumanna hennar?

Staðreyndin er sú að það ráðleysislið sem nú stundar slímsetur sínar í eiginhagsmunaskyni á Alþingi og kemur í veg fyrir kosningar er gersamlega búið að sýna vanmátt sinn til að leysa vanda þjóðarinnar. Þangað verður að fá nýtt fólk með nýjar hugmyndir þegar sýnt er að þessi núverandi kauptékkakaball gengur ekki.

Þá má minna á að síðar í ályktun Landsfundar stendur:

"Sjálfstæðisflokkurinn telur nauðsynlegt að upplýsa um efni samninga sem ríkisstjórnin gerði við yfirfærslu áeignum á milli gömlu og nýju bankanna. Án þeirra upplýsinga er erfitt að fjalla um skuldamál heimilanna með málefnalegum hætti."

Væri ekki ráð að taka umræðu um þetta þegar það er staðreynd að raunhæfar aðgerðir í þágu meginmarkmiðsins eru að týnast í málæðinu um einstaka þætti vandans, sérstækar lausnir, afrekaskrá þessa banka eða hins og raangupplýsinga ríkisstjórnarinnar. Allt í stað þess að hafa lausn vandans tæra og almenna.

Skuldavandi heimilanna verður auðvitað aldrei leystur án endurreists atvinnulífs og stóriðjuframkvæmda í landinu. Það gerist ekki meðan ríkisstjórn ráðstjórnar, rógs og ráðleysis situr geld og gæfulaus i þessu landi.


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Höfundur

Halldór Jónsson
Halldór Jónsson

verkfræðingur, flugdellukall, tennis-og badmintonspilari

-ekki góður í neinu af þessu-

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (23.4.): 11
  • Sl. sólarhring: 11
  • Sl. viku: 57
  • Frá upphafi: 3418199

Annað

  • Innlit í dag: 11
  • Innlit sl. viku: 54
  • Gestir í dag: 11
  • IP-tölur í dag: 11

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Eldri færslur

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband