Leita í fréttum mbl.is

Þór þrykkir inn

með réttlætingu sína á árásum á lögmenn og rukkara.

Hann segir:"

„Það hefur vakið athygli mína í fjölmiðlaumfjöllun um það voðaverk sem framið var á lögfræðistofu hér í bæ í gær þar sem starfsmaður var slasaður lífshættulega í morðtilraun, að flestir sem hafa tjáð sig segjast ekki skilja hvernig svona getur gerst....Hitt er svo annað mál að það að slíkt skuli gerast í því ástandi sem hefur verið viðvarandi hér á landi undanfarin tæp fjögur er hreint ekki undarlegt eða óskiljanlegt.

Hér á landi hefur smátt og smátt verið að byggjast upp ákveðið ástand, ástand örvæntingar, vonleysis og reiði sem hjá þúsundum manna er komið á hættulegt stig, ástand sem mun ef svo fer sem horfir sennilega hafa áframhaldandi ofbeldi í för með sér. Íslenskt samfélag samtímans hefur á sér yfirbragð samfélags þar sem meginstoðirnar eru grautfúnar, réttarríkið vafa undirorpið og stjórnvöld afskiptalaus og jafnvel vitlaus.

Samfélag þar sem ósanngirni, óréttlæti og jafnvel hrein glæpamennska viðgengst þar sem yfirvöld hafa gefist upp fyrir ástandi sem þau ráða ekki við vegna skilningsleysis, kjarkleysis og þvergirðingsháttar æðstu ráðamanna. Slíkt samfélag mun fyrr eða síðar verða dómstól götunnar að bráð hvort sem mönnum líkar vetur eða verr,...... Ótal fjölskyldur hafa splundrast og ótal manns hafa í örvæntingu tekið eigið líf og nú virðist sem nýjum „áfanga“ í ömurðinni hafi verið náð með morðtilraun á lögmanni í innheimtugeiranum. Í þessu samhengi er tilgangslaust að benda á þá sem ekki skulda, þá sem hafa flutt til landsins og þá sem hafa samt haldið sjó.....Slíkur samanburður breytir engu fyrir hina sem fyrr voru upptaldir og þó að ríkisstjórnin haldi á lofti statistík með tölum um minnkandi halla á ríkissjóði, aðflutta í stað brottfluttra og fjölgun fæðinga þá breytir það heldur engu fyrir hina sem fyrr voru upp taldir,“

Hvernig væri að Þór Saari skoðaði þessi ummæli sín í ljósi þess að hann hefur látið kaupa sig til þess að halda lífinu í ríkissjórn sem hefur skapað og viðheldur þessu ástandi. Það er Þór Saari sem er ábyrgur fyrir því að vonleysið er framlengt mánuð eftir mánuð til þess eins að hann fái kaup sem þingmaður á kostnað hnípinnar þjóðar í þrengingum. Er þetta stórmannlegt?

Þór þrykkir inn í mig áliti á honum sjálfum sem ekki breytist svo glatt.


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Höfundur

Halldór Jónsson
Halldór Jónsson

verkfræðingur, flugdellukall, tennis-og badmintonspilari

-ekki góður í neinu af þessu-

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (29.4.): 8
  • Sl. sólarhring: 9
  • Sl. viku: 52
  • Frá upphafi: 3418240

Annað

  • Innlit í dag: 8
  • Innlit sl. viku: 50
  • Gestir í dag: 8
  • IP-tölur í dag: 8

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Eldri færslur

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband