Leita í fréttum mbl.is

Gísla Martein til Orlando

svo hann geti séð fyrir sér hvaða þýðingu farþegaflug hefur fyrir efnahagslíf borga.

Á Orlando svæðinu eru minnst 2 stórir alþjóðaflugvellir auk aragrúa viðskiptaflugvalla. Hér streyma þoturnar upp og niður allan daginn á 5 mínútna fresti.Hversu margar milljónir dollara streyma með þeim?

Af hverju prófar ekki Gísli Marteinn að skrifa hér í blöð og vekja athygli á því hversu margar byggingalóðir megi fá undan td. McCoy flugvellinum ef ekki líka Orlando Excecutive? Sjá hvernig hérlendir pólitíkusar tækju í svona hugmyndir. Það er alveg óþarfi að vera að þenja byggðina út í víðlendar sveitirnar hér í kring. Hér er nú aldeilis hægt að þétta byggðina til að draga úr bílaumferðinni og fara að reiðhjóla.

Sendum Gísla Martein til Orlando og Samtökin um Betri Byggð í heild sinni með honum. Við hljótum að hafa ráð á einni sætaröð í svo vinsamlegum tilgangi við Bandaríkjamenn sem hafa áreiðanlega ekki velt þessu mikið fyrir sér.


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Axel Jóhann Hallgrímsson

Hefur þú eitthvað á móti íbúum Orlando Halldór? Það er hugsamlega eina skýringin á því að þú viljir gera þeim þann óleik að senda þeim trúðinn og kjánann Gísla Martein.

Axel Jóhann Hallgrímsson, 12.3.2012 kl. 15:56

2 Smámynd: Halldór Jónsson

Ja ég hugsaði þetta nú í því skyni að Gísli gæti lært eitthvað af Orlando búum. Ég held að hann hræri ekkert í þeim til skaða, þetta er skynsamt fólk.

Halldór Jónsson, 12.3.2012 kl. 17:22

3 Smámynd: Júlíus Björnsson

Ísland er ekki háð EU um Orku, hinsvegar skuldbundið til gegna Commission Brussell í grundvallaratriðum sósíal Democrata. Gera allt nógu ódýrt hér, með því að skera niður gjöld felur líka í sér niðurskurð á tekjum, sé rétt bókað: fair trait.

Söluskattar eru hlutfallslegir og allir seljendur raunraunvirðis, þegar frjáls keppni ríkir á mörkuðumm geta ekki lifað ef þeir sýna hlutafallalegan hagnað af veltu umfram meðatalið ár frá ári og hvað þá ef hann er veldisvísislegur. Arður er ekki bara beinar reiðufjárgreiðslur til hluthafa, fram að næsta hruni.

Það er gott að búa í Flórída hef ég heyrt. 30% meiri gæði=raunvirði en í meðalríkjum EU. Meira segja hveitið er glænýjum pakkningum. Það geta margir Íslendingar lært margt af Orlando búum. Menn lifa ekki af orðunum einum saman.

Júlíus Björnsson, 13.3.2012 kl. 04:32

4 Smámynd: Sigurður Þórðarson

Gísli var iðulega skemmtanastjóri í boðsferðum bankanna þegar þeir voru að narra fé út úr lífeyrissjóðum.

Gísli Marteinn er lélegri trúður en Jón Gnarr.

Sigurður Þórðarson, 13.3.2012 kl. 11:22

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Höfundur

Halldór Jónsson
Halldór Jónsson

verkfræðingur, flugdellukall, tennis-og badmintonspilari

-ekki góður í neinu af þessu-

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (26.4.): 4
  • Sl. sólarhring: 4
  • Sl. viku: 53
  • Frá upphafi: 3418219

Annað

  • Innlit í dag: 4
  • Innlit sl. viku: 51
  • Gestir í dag: 4
  • IP-tölur í dag: 4

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Eldri færslur

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband