Leita í fréttum mbl.is

Landsdómsástæður?

til þess að ákæra Steingríms J. Sigfússon gætu  verið vegna ráðstöfunar hans á innheimtukröfum á hendur íslenskum heimilum til útlendra vogunarsjóða.

Svo hefur áður verið sagt:

"Steingrímur J. Sigfússon framdi gerræðisfullt fullveldisframsal með því að afhenda "erlendum kröfuhöfum" þessa 2 stóru banka, Nú hefur FME upplýst að erlendir vogunarsjóðir eiga 60 % í þessum bönkum. Til hluthafanna í þessum bönkum hafa runnið 80 milljarða arðgreiðslur. Þetta er fjármagn sem bíður brottferðar og mun seint gagnast Íslendingum. Hverjir eiga afganginn af hlutafénu hafa menn aðeins óljósar hugmyndir. En í hópi þeirra eru mörg nöfn sem minna óþyrmilega á íslenska útrásarvíkinga og Tortólareikninga.

Mest þetta hlutafé hafa þessir aðilar keypt á hrakvirði af lánveitendum gömlu bankanna. Þeir hafa líklega fá önnur sjónarmið en að blóðmjólka íslensk heimili og fyrirtæki. Eigendurnir þessara  banka hafa skiljanlega sáralitlar hugsjónir um að stunda hér bankastarfsemi eins og þjóðin þarfnast heldur að komast úr landi með eins mikið fé og þeir geta náð.

Það er furðulegt geðleysi ef Hrun-Íslendingar eru með sín viðskipti við þessa banka en fara ekki með þau annað. Alþingi ætti auðvitað að taka hér myndarlega á málum og kanna hvort ástæða sé til að draga Steingrím J. Sigfússon fyrir Landsdóm til að skýra ráðstafanir sínar í fjármálum svo sem í sambandi við þessa banka og svo Landsbankann,  BYR, Sparisjóð Keflavíkur, Sjóvá og þannig má telja. Reyna að koma þessum bönkum í íslenska almenningseigu með einum eða öðrum hætti. Þjóðin þarf viðskiptabankakerfi sem ætlar að vera þátttakandi í uppbyggingu landsins. Hana vantar ekki erlend rukkunarfyrirtæki í eigu erlendra og íslenskra skuggabaldra sem margir einhverjir kunna að eiga óuppgerðar sakir innanlands.

Sjálfstæðismenn eru ekki vanir að tala fyrir þjóðnýtingu. Enda væri þeim hugnanlegra að sniðganga þessa erlendu vogunarsjóðabanka þar til að þeir sæju sitt óvænna og lokuðu. En þetta er óþolandi ástand að þjóðin skuli ekki eiga viðskiptabanka, sem vilja taka þátt í atvinnulífinu og uppbyggingu Íslands." En MP-banki og Landsbanki eru einu viðskiptabankarnir um þessar mundir sem Íslendingar geta treyst að gangi ekki erinda erlendra vogunarsjóða og skuggabaldra.

Eru þessar ráðstafanir Steingríms J. Sigfússonar ekki Landómsástæður? 


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Höfundur

Halldór Jónsson
Halldór Jónsson

verkfræðingur, flugdellukall, tennis-og badmintonspilari

-ekki góður í neinu af þessu-

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (27.4.): 0
  • Sl. sólarhring: 4
  • Sl. viku: 47
  • Frá upphafi: 0

Annað

  • Innlit í dag: 0
  • Innlit sl. viku: 45
  • Gestir í dag: 0
  • IP-tölur í dag: 0

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Eldri færslur

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband