20.5.2012 | 10:31
Fastgengi
er krafa Gylfa Arnbjörnssonar fyrir sig og sína umbjóðendur í ASÍ. Hann dásamar tímana fyrir 1990 sem fastgengistíma. Hefði hann ekkei frekar átt að minna á hvernig gengið hélst að mestu stöðugt á Davíðstímanum og lengra meðan útgerðin náði að hagræða sem aldrei fyrr og lifa við hátt gengi krónunnar? Það komu vissulega sveiflur í gegnið en Davíð setti upp sólgleraugun og talaði kjark í þjóðina. Og það tókst því hann er leiðtogi að upplagi.
Lífskjör almennings hafa aldrei náð þeim hæðum sem á Davíðstímanum. Það fór strax að halla undan þegar heilsu Davíðs hrakaði og endaði í krassinu.
Fólkið í landinu gerir sér þetta ljóst og nægir að vísa í skoðanakönnunina hér til hliðar. Þar sést að Davíð nýtur meira en þrisvar sinnum meira trausts en nokkur annar stjórnmálamaður þegar nærri sexþúsund hafa svarað.
Nú kemur þessi kratíski hagfræðingur Gylfi Arnbjörnsson og talar um fastgengi sem bjargvætt Alþýðusambandsins. Er ekki fastgengi um þessar mundir. Hvað eru gjaldeyrishöft annað en fastgengi? Ég hélt að Gylfi sem góður hagfræðingur myndi gera sér það ljóst og tala meira útfrá því.
Kommúnistarnir í ríkisstjórn og Seðlabanka settu hér á gjaldeyrishöft og stilla gengið á helming þess sem var 2008. Er einhver furða að útgerðin tvöfaldi tekjurnar? Eigið fé hennar fer úr mínus 60 milljörðum árið 2008 í núll 2009, í plús 60 2010, í plús 120 árið 2011 og í plús 160 2012, allt samkvæmt upplýsingum Steingríms J. í ræðunni góðu á Egilsstöðum.
Nú er þetta orðið eitthvað flókið. Útgerðin græðir svo mikið að hún er orðin aflögufær um stóraukið veiðigjald í sjóði Stengríms J. !
Þetta leiðir svo til endalausra heimspekilegra vangavelta um upphæð veiðigjalds sem kemur málinu bara ekkert við ef grannt er skoðað. Sérsköttun eftir atvinnugreinum er ekki góð hagfræði. Hér áður fyrr þá felldu menn fastgengið ef þurfti að redda útgerðinni. Hún jók framleiðni sem mildaði áhrif kostnaðarhækkana. Það er eins og menn skilji ekki samhengið á milli markaðsgengis, afkomu útflutningsatvinnuveganna og kommúnisma Steingríms J. með "Skatt-og eyðslu" stefnunni sem sveigir allt undir hið pólitíska vald. Sovét-Íslands í stað Davíðs-stjörnunnar.
Hver hefur borgað fyrir þetta? Eru það ekki heimilin í landinu sem hafa lagt alla þessa peninga til? Borgað hærra bensín, mat og hvaðeina? Þau eru þrautpínd og fá ekki neitt til baka. Þau fá hinsvegar vísitöluhækkun á lánum sínum sem sligar heimilin sem þó alþýðuvinunum Jóhönnu og Steingrími þykir svo vænt um við kosningar. Í þeim málum hafa þau svikið stærst og mest.
Í fastgengisstefnunni sem nú ríkir í samstarfi kommúnistanna Steingríms J. og Mávs í Seðlabankanum græðir útgerðin sem aldrei fyrr og nú ætlar Steingrímur að hirða peningana og setja þá í sitt EinkaSovét. Öðrum orðum pólitísk gæluverkefni, borga fyrir Evrópusambandsaðildina, skapa núna 11.000 störf með Guðmundi Steingrímssyni, osfrv. Sem sagt allt nema lina þjáningar fólksins í landinu sem hann þóttist elska svo heitt við síðustu kosningar og fékk fólkið til að kjósa sig út á.
Svo kemur Gylfi Arnbjörnsson og heimtar fastgemgi fyrir sig og sína. Hvað gengi vildi maður spyrja? Hvað á útgerðin að græða mikið? Fastgemgið á seinni hluta Davíðstímans og fram að krassi var því miður nært á innstreymi snjóhengjunnar sem sótti í innlend vaxtakjör Seðlabankans og bankarnir notuðu til að stórauka peningamagnið sem blés út bóluhagkerfið. Hagstjórnin brast við þessar aðstæður sem allir þekkja og nú stöndum við Íslendingar uppi rúnir alþjóðlegu trausti.
Við verðum að koma á markaðsgengi sem allra fyrst. Við verðum að semja frið við snjóhengjuna og fá hana til að vera kyrra hjá okkur ef það er hægt með nokkru móti. Við þurfum að færa skattlagningu fyrirtækja, eigna og fjármagns aftur til Davíðstímans. Stöðugleiki er það sem við óskum okkur. En það eru oftar en ekki þeir gylfarnir sem kollvarpa stöðugleikanum frekar en nokkuð annað. Litlum bófaflokkum sem kalla sig stéttarfélög er leyft að þvinga fram stórhækkanir á sínum kjörum sem setja verðbólguboltann af stað.
Þessvegna er ekkert fastgengi til. Hvergi í heiminum.
Flokkur: Stjórnmál og samfélag | Breytt s.d. kl. 14:58 | Facebook
Heimsóknir
Flettingar
- Í dag (22.11.): 4
- Sl. sólarhring: 5
- Sl. viku: 41
- Frá upphafi: 3419714
Annað
- Innlit í dag: 4
- Innlit sl. viku: 35
- Gestir í dag: 4
- IP-tölur í dag: 4
Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar
Eldri færslur
- Maí 2022
- Apríl 2022
- Mars 2022
- Febrúar 2022
- Janúar 2022
- Desember 2021
- Nóvember 2021
- Október 2021
- September 2021
- Ágúst 2021
- Júlí 2021
- Júní 2021
- Maí 2021
- Apríl 2021
- Mars 2021
- Febrúar 2021
- Janúar 2021
- Desember 2020
- Nóvember 2020
- Október 2020
- September 2020
- Ágúst 2020
- Júlí 2020
- Júní 2020
- Maí 2020
- Apríl 2020
- Mars 2020
- Febrúar 2020
- Janúar 2020
- Desember 2019
- Nóvember 2019
- Október 2019
- September 2019
- Ágúst 2019
- Júlí 2019
- Júní 2019
- Maí 2019
- Apríl 2019
- Mars 2019
- Febrúar 2019
- Janúar 2019
- Desember 2018
- Nóvember 2018
- Október 2018
- September 2018
- Ágúst 2018
- Júlí 2018
- Júní 2018
- Maí 2018
- Apríl 2018
- Mars 2018
- Febrúar 2018
- Janúar 2018
- Desember 2017
- Nóvember 2017
- Október 2017
- September 2017
- Ágúst 2017
- Júlí 2017
- Júní 2017
- Maí 2017
- Apríl 2017
- Mars 2017
- Febrúar 2017
- Janúar 2017
- Desember 2016
- Nóvember 2016
- Október 2016
- September 2016
- Ágúst 2016
- Júlí 2016
- Júní 2016
- Maí 2016
- Apríl 2016
- Mars 2016
- Febrúar 2016
- Janúar 2016
- Desember 2015
- Nóvember 2015
- Október 2015
- September 2015
- Ágúst 2015
- Júlí 2015
- Júní 2015
- Maí 2015
- Apríl 2015
- Mars 2015
- Febrúar 2015
- Janúar 2015
- Desember 2014
- Nóvember 2014
- Október 2014
- September 2014
- Ágúst 2014
- Júlí 2014
- Júní 2014
- Maí 2014
- Apríl 2014
- Mars 2014
- Febrúar 2014
- Janúar 2014
- Desember 2013
- Nóvember 2013
- Október 2013
- September 2013
- Ágúst 2013
- Júlí 2013
- Júní 2013
- Maí 2013
- Apríl 2013
- Mars 2013
- Febrúar 2013
- Janúar 2013
- Desember 2012
- Nóvember 2012
- Október 2012
- September 2012
- Ágúst 2012
- Júlí 2012
- Júní 2012
- Maí 2012
- Apríl 2012
- Mars 2012
- Febrúar 2012
- Janúar 2012
- Desember 2011
- Nóvember 2011
- Október 2011
- September 2011
- Ágúst 2011
- Júlí 2011
- Júní 2011
- Maí 2011
- Apríl 2011
- Mars 2011
- Febrúar 2011
- Janúar 2011
- Desember 2010
- Nóvember 2010
- Október 2010
- September 2010
- Ágúst 2010
- Júlí 2010
- Júní 2010
- Maí 2010
- Apríl 2010
- Mars 2010
- Febrúar 2010
- Janúar 2010
- Desember 2009
- Nóvember 2009
- Október 2009
- September 2009
- Ágúst 2009
- Júlí 2009
- Júní 2009
- Maí 2009
- Apríl 2009
- Mars 2009
- Febrúar 2009
- Janúar 2009
- Desember 2008
- Nóvember 2008
- Október 2008
- September 2008
- Ágúst 2008
- Júlí 2008
- Júní 2008
- Maí 2008
- Apríl 2008
- Mars 2008
- Febrúar 2008
- Janúar 2008
- Desember 2007
- Nóvember 2007
- Október 2007
- September 2007
- Ágúst 2007
- Júlí 2007
- Júní 2007
- Maí 2007
- Apríl 2007
Bloggvinir
- ghe13
- sigurjonth
- andrigeir
- annabjorghjartardottir
- ansigu
- agbjarn
- armannkr
- asdisol
- baldher
- h2o
- bjarnihardar
- dullur
- bjarnimax
- zippo
- westurfari
- gattin
- bryndisharalds
- davpal
- eggman
- greindur
- bjartsynisflokkurinn
- elfarlogi
- eeelle
- sunna2
- ea
- fuf
- fhg
- vidhorf
- gerdurpalma112
- gilsneggerz
- gudni-is
- lucas
- zumann
- gp
- gun
- topplistinn
- tilveran-i-esb
- skulablogg
- gustafskulason
- gustaf
- heimssyn
- diva73
- helgi-sigmunds
- hjaltisig
- minos
- hordurhalldorsson
- astromix
- fun
- jennystefania
- johanneliasson
- johannvegas
- jonatlikristjansson
- fiski
- jonl
- jonmagnusson
- jonlindal
- bassinn
- jonvalurjensson
- jvj
- thjodarskutan
- juliusbearsson
- katagunn
- kje
- ksh
- kristinn-karl
- kristinnp
- kristjan9
- loftslag
- altice
- ludvikjuliusson
- maggij
- magnusthor
- mathieu
- nielsfinsen
- omarbjarki
- huldumenn
- svarthamar
- pallvil
- peturmikli
- valdimarg
- ragnarb
- samstada-thjodar
- fullveldi
- siggus10
- sisi
- siggisig
- ziggi
- siggith
- stjornlagathing
- pandora
- spurs
- kleppari
- saethorhelgi
- tibsen
- ubk
- valdimarjohannesson
- skolli
- valurstef
- vilhjalmurarnason
- vey
- postdoc
- thjodarheidur
- icerock
- steinig
- thorsteinnhelgi
- icekeiko
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.