Leita í fréttum mbl.is

Þór slifsislausi þenur sig

við Jógrímu.

Annaðhvort lofið þið dagsettum efndum á mínum málum eða ég sparka stólnum undan ykkur. Einhver myndi segja að það væri bara talsverður kjaftur á keilunni.

Einhverjir bíða hinsvegar spenntir eftir því hvaða dagsetningar Þór sættir sig við aðrar en útmánuði 2013 þegar menn fara hvort sem er að huga að kosningum. Hingað til hefur hann mátt þola svik og niðurlægingar eftir hentugleikum á loforðum skötuhjúanna. Þau vita sem hugsanlega að launatékkinn vegi þungt í málefnabaráttunni hjá Hreyfingunni?

Þau telja það kannski bara goluþyt þegar Þór slifsislausi þenur sig? Hann stóð allavega við það kosningaloforð að brúka ekki hálstau í þinginu. Enn fyrr hefur þungt hlass oltið um litla þúfu.


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Anna Sigríður Guðmundsdóttir

Halldór. Nú ætla ég að vera með smá útúrdúr og hráan húmor, og horfa fram hjá mikilvægu málunum: Er slaufa ekki hálstau?

Þór hefur nú látið sig hafa það að vera með einhverja krullaða tusku um hálsinn, svona á hátíðar-stundum.  Kannski var hann bara kominn með vafning á bindið. Einhver reynsluríkur herra eða frú hefur nú getað kennt honum þann flókna bindishnút, sem vafnings-slaufan er.

Ég gat bara ekki stillt mig um að koma með smá háðsglósu um stóra baráttumálið hans Þór Saari.

M.b.kv.

Anna Sigríður Guðmundsdóttir, 20.5.2012 kl. 21:34

2 Smámynd: Hörður Einarsson

Var það ekki bara fyrirsláttur hjá Þór að ganga ekki með bindi, er, vegna þess að hann kann ekki binda bindishnút, og hefur ekki gáfur til þess að læra það.

Hörður Einarsson, 20.5.2012 kl. 21:44

3 Smámynd: Anna Sigríður Guðmundsdóttir

Hörður. Það verður aldrei sagt um Þór að hann hafi ekki gáfur til að læra það sem honum þykir skipta máli, hvort sem það eru klækjabrögð í ræðumennsku eða sérhagsmunagæsla. Svo er spurning hvort hann skilur og virðir það mikilvægasta af öllu, að nota vitið sem guð gaf, til heiðarlegra og góðra verka, eftir bestu getu og möguleikum.

Okkur var ekki gefið vit til að misnota það í eiginhagsmunaskyni, sem bitnar svo á saklausu og velviljuðu fólki. Það gildir um alla, en ekki bara Þór.

Birgitta blessunin er ekki öfundsverð af félagsskapnum, því hún er að mínu mati velviljuð sál, sem finnur ekki veg réttlætisins, þrátt fyrir mikla baráttu. Margrét er svo legan í hjólabúnaðinum (þrjú hjól undir bílnum), enda virka þessi þrjú hjól alls ekki rétt. Það er alveg augljóst að mínu mati.

M.b.kv.

Anna Sigríður Guðmundsdóttir, 20.5.2012 kl. 22:39

4 Smámynd: Anna Sigríður Guðmundsdóttir

Varadekkið er nefnilega bara aumingi, sem er hraðlygin ríkisstjórn með ESB-forrit eitt og sér, til að vinna eftir.

Nú er ég orðin of dómhörð, og kominn tími til að hætta.

M.b.kv.

Anna Sigríður Guðmundsdóttir, 20.5.2012 kl. 22:44

5 Smámynd: Halldór Egill Guðnason

Þegar andstæðir pólar nota einungis persónunýð sem sinn máflutning, fellur sá ketill í punginn á báðum ( eða legið á báðum , til að gæta hér alls réttlætis). Aldrei nota veikasta punkt andstæðings þíns til varna, nema þú sérst að dauða kominn. Hæðin á andstæðingi þínum , er nákvæmlega það sem þú ert tilbúinn að leggjast LÁGT. Leggist hins vegar slifsið neðar en hálsinn.....tja, hvað skal segja um slíkt SVÍNARÍ?

GÓÐAR STUNDIR.

Halldór Egill Guðnason, 21.5.2012 kl. 04:10

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Höfundur

Halldór Jónsson
Halldór Jónsson

verkfræðingur, flugdellukall, tennis-og badmintonspilari

-ekki góður í neinu af þessu-

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (18.5.): 8
  • Sl. sólarhring: 17
  • Sl. viku: 71
  • Frá upphafi: 3418432

Annað

  • Innlit í dag: 8
  • Innlit sl. viku: 66
  • Gestir í dag: 8
  • IP-tölur í dag: 8

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Eldri færslur

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband