Leita í fréttum mbl.is

Steinsteypt hvel

monolithichouse in Floridaeru byggð um allan heim nema hér. Okur finnst þau ljót. Við byggjum bara kassa með þaki.

 

 

 

 

 

Þetta hús er í FLorida. Það hefur staðið af sér marga hurricanes og tornados sem lögðu allt umhverfið í rúst Eigandinn er hættur að fara að heiman þó að öllum sé skipað á burt þegar svona hvellir koma. Hann segir varla heyra í veðrinu fyrir utan.  Frá verkfærageymslum í risahús er byggt með þessari aðferð sem slær flest annað út nema kannski mjúkhús. En þessi eru steypt.

 En þetta er víst ljótt og hæfir ekki alvöru fólki.

monolithicstemwaal6

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Kolbrún Hilmars

Þetta eru ljómandi falleg hús :)

En þau eru steinsteypt (e.t.v. járnbent líka?) með þaki sem rokið nær ekki taki á.  Ætli það skipti ekki mestu máli?

Ég kom til St.Thomas í Karabíska hafinu 2 árum eftir fellibylinn Hugo (1989), sem olli gífurlegum skemmdum þar um slóðir.   Í nýlegu hverfi utan í hæðardragi stóðu þá enn steinsteyptir út- og milliveggir húsa þar sem þökin höfðu svipst af.

En pappahús eru algengust í suðrinu og ekki að undra að þau fjúki út í veður og vind.

Kolbrún Hilmars, 3.10.2012 kl. 17:56

2 Smámynd: Gunnar Heiðarsson

Þessi hús eru síður en svo ljót, Halldór. En hvað með byggingakostnað? Er mikið dýrara að byggja svona hús en hefðbundin kassa með bárujárnsþaki?

Gunnar Heiðarsson, 3.10.2012 kl. 19:26

3 Smámynd: Halldór Jónsson

Takk fyrir þetta Kolbrún. Það er sama reynsla og hér að hús sem lenda í snjóflóðum er til muna öruggari ef það er steypt plata ofan á veggjunum. Þá fer frekar efra þakið af en hitt stendur þvi veggirnir eru stífaðir af. Þessi hús hafa styrleika eggsins.

Gunnar, samkvæmt Því sem ég hef heyrt frá David B. South þá er þetta ódýrara en venjuleg hús. Steypan er þynnri og kúlan hefur meira rúmmál miðað við yfirborð en kassi. Það sem er að hver sem er getur byggt þetta, það þarf ekki mikla sérþekkingu við einföld hús. Floridahúsið er kannski ekki svo einfalt þannig að það þarf smiði við hluta þess. Einfalt kúluhús gert af dúk er fest ofan á hringlaga sökkul og blásið upp. Blaðran er ysta veðurkápan með einangrun næst sér, svo kemur þunnt lag af járnbentri steypu sem myndar hvel með ótrúlegum styrkleika.

Halldór Jónsson, 3.10.2012 kl. 20:10

4 Smámynd: Ágúst H Bjarnason

Ásmundarsafn og Íþróttahöllin í Laugardal standa nánast hlið við hlið.  Bæði með svona steinsteyptu hvolfþaki minnir mig. Eru ekki fleiri svona þök hér á landi?

Ágúst H Bjarnason, 3.10.2012 kl. 22:22

5 Smámynd: Halldór Jónsson

Einhver braggalaga þök eru í Hafnarfirði. Ég man ekki eftir fleiri skeljum eða hvelum hér.Trikkið við þetta er að þetta eru membrur, sem hafa litla beygjuáraun en aðallega beina þrýstiáraun. Þetta var helvítis torf stærðfræðilega þegar maður átti að læra þetta, tómir hyperbólskir cosinusar og differentialjöfnur, allt fyrir daga tölvanna og prógrammmanna

Halldór Jónsson, 3.10.2012 kl. 23:21

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Höfundur

Halldór Jónsson
Halldór Jónsson

verkfræðingur, flugdellukall, tennis-og badmintonspilari

-ekki góður í neinu af þessu-

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (18.5.): 9
  • Sl. sólarhring: 15
  • Sl. viku: 72
  • Frá upphafi: 3418433

Annað

  • Innlit í dag: 9
  • Innlit sl. viku: 67
  • Gestir í dag: 9
  • IP-tölur í dag: 9

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Eldri færslur

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband