Leita í fréttum mbl.is

Della

finnst mér allt þetta tal um utanþingsráðherra og ókosna og ópólitíska sérfræðinga í það að stjórna orkuveitum og ráðuneytum.

Fólk sem fer í pólitík og er kosið er hæft til hvaða verka sem er. Annars viðurkennir kjósandinn að hann er bara dellumakari sem ætti ekki að hafa kosningarétt.

Sérfræðingar eru oft fólk sem hefur ekki almenna skynsemi til að bera. Við sáum nú hvernig það var að vera með tvær blómaskreytingar eins og Ingvi Hrafn kallaði Gylfa Magnússon og Rögnu Árnadóttur sem ráðherra. Fínasta fólk og enginn efast um það. En það kaus þetta fólk enginn og það galt þess. Fólk agtar ekki svona fulltrúa. Fólk horfði á þau og klóraði sér í hausnum. Hvað ert þú eiginlega að vilja upp á dekk, af hverju ertu ekki bara heima hjá þér?

Annað hvort kýs maður fólk sem er hæft eða maður kýs það ekki. Annars gætum við bara afhent fullveldið til Brüssel, lögmannstofunnr Lex, Æðarræktarfélagsins eða hvers sem er utan þings. Ef þeir hæfu vilja ekki stjórna þá verður þeim stjórnað af hinum minna hæfu.

Þegar ég kýs fólk á þing þá er það vegna þess að ég treysti flokknum sem það er í kjöri fyrir. Ef því sinnast við flokkinn þá á það ekki lengur þingsætið og á að pilla sig burt því ég gaf því ekki atkvæði til annars en að vera á lista flokksins. Það er sumt ekki fyrr komið á þing en það heldur að upphefð þess sjálfs komi frá Guði og það geti bara valsað yfir í aðra flokka. Fjandinn fjarri mér, ég myndi ekki hleypa þessi dóti inn. Já, þetta er bara dót í mínum augum hvaða fólk sem á í hlut.

Ráðherra verður að vera á þingi til að hægt sé að vera í kallfæri við hann.
Allt tal um utanþingsfólk er bull útí loftið. Þessvegna eru tillögur stjórnlagaráðs bara bull í mínum augum sem ég samþykki aldrei.

Svo finnst mér allt ritverkið með tillögum stjórnlagaráðs með þessu líka málsskrúði vera tilraun til að afvegaleiða fólk í merkingarlausu kjaftæði til þess að geta troðið Islandi inn í ESB með einföldum meirihluta a Alþingi skv. 111.gr. Og fleira í þeim dúr er þarna inni sem á lævísan hátt á að renna oní þjóðina til að geta hirt af henni sjálfstæðið í framhjáhlaupi, eins og Pétur Blöndal er búinn að benda á með afgerandi hætti.

Stjórnlagaráðtillögurnar eru della, atkvæðagreiðslan della og allt sem þessi ríkisstjórn eer að gera er líka della. Burt með hana. Ef við mætum þá segjum við nei við fyrstu spurningunni og sleppum öllu öðru.


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 identicon

Sæll Halldór

Algerlega sammmála þér. Þetta er ein allsherjar della, eins og allt sem frá kratabjálfunum kemur.

Ég ætla ekki að þátt í þessum kosningum, af tveimur ástæðum.

 Í fysta lagi eru kosningarnar ólögmætar, þar sem Alþingi ákvað aldrei kjördaginn eins og því bar skylda  til. Með því að kjósa  væri ég að taka þátt í ólöglegu athæfi og þá væntanlega orðinn “krimmi” í kjölfarið.  Og í öðru lagi þyrfti  ég að leggja á mig 80 kílómetra langt ferðalag til að taka þátt í þessari ólöglegu skoðanakönnun.

Skil ekki fólk sem tekur þátt í þessum skrípaleik.

Kári S. Lárusson (IP-tala skráð) 14.10.2012 kl. 16:23

2 Smámynd: Halldór Jónsson

Takk fyrir þeta Kári.

Ég viðurkenni að ég á í sálarstríði við minn innri mann sems egir að ég eigi ekki að láta þetta lið draga mig á kjörstað vegna máls sem ég er ekki hið minnsta sammála um að ætti að vera á dagskrá svo vitlaust sem mér finnst það allt í heild sinni og ég er svo ósammála því öllu grundvallarlega. En Bjarni segist ætla að mæta og segja nei, Verð ég ekki að fylgja leiðtoganum?

Halldór Jónsson, 14.10.2012 kl. 21:54

3 identicon

Bjarni forystusauður okkar Sjalla hljóp fyrir björg með hálfa þinghjörðina í Icesave málinu forðum, og ég elti ekki svoleiðis sauð í blindni eftir þá "forystu".  Hef varúð á mér síðan.

En mér lízt samt að mörgu leyti vel á Bjarna sem forystumann, þó ég ætli ekki að fara að hans fordæmi í þessum efnum.

Þannig að mér finnst þú ekkert endilega þurfa að fylgja leiðtoganum að þessu sinni.

Kári S. Lárusson (IP-tala skráð) 14.10.2012 kl. 23:04

4 Smámynd: Halldór Jónsson

Formaður hefur vissulega gert ýmislegt sem ég er ekki ánægður með. Sumt er honum ekki fyrirgefið af til dæmis þér. En ég á ekki annan formann en hann og ég verð að treysta á að hann læri af mistökum eins og flestir. Miðsetningin þín segir líka að þú getir tekið undir það í eintaka málum. En passaðu þig á því að nei við fyrstu spurningu verði ekki túlkað sem já ef þú fitlar við aðrar spuringar.

Halldór Jónsson, 15.10.2012 kl. 08:16

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Höfundur

Halldór Jónsson
Halldór Jónsson

verkfræðingur, flugdellukall, tennis-og badmintonspilari

-ekki góður í neinu af þessu-

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (5.5.): 5
  • Sl. sólarhring: 12
  • Sl. viku: 67
  • Frá upphafi: 3418299

Annað

  • Innlit í dag: 5
  • Innlit sl. viku: 64
  • Gestir í dag: 5
  • IP-tölur í dag: 1

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Eldri færslur

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband