3.2.2013 | 01:15
Björt framtíð
finnst mér blasa við í íslensku þjóðlífi um þessar mundir. Stór hluti kýs flokk sem hefur ekki einu sinni stefnuskrá, aðeins sætan skeggjaðan formann. Til hvers var vort starf í sjöhundruð .....
Eftir euphoríuna yfir því hvernig Össur upp á sitt eindæmi bjargaði þjóðinnni með því að ráða eitursnjallan lögfræðing hann Tim Ward til að snúa niður EFTA dómstólinn og lét hann úrskurða Íslendingum í vil, þá kemur grár hversdagsleikinn aftur. En við vorum auðvitað með koltapaðan málstað samkvæmt ítrekaðri yfirferð þeirra Jóhönnu, Össurar og Steingríms og svo sérstaklega meirihluta Alþingis með Sjálfstæðisflokkinn innanborðs utan einhverja fimm þingmenn. Aðeins ótímabær afskipti forsetans af Icesave komu í veg fyrir að hér yrði Kúba norðursins og efnahagsleg móðuharðindi að því að áður hafði verið upplýst um að samningsleysi myndi færa þjóðinni.
En nú er sem sagt kominn nýr formaður í Samfó og við getum haldið áfram að undirbúa beina för í Evrópusambandið til að redda málunum. Á meðan það tefst og ekki gerist þá hrannast upp óveðursskýin á efnahagshimninum.
Hjúkrunarfræðingar geta ekki beðið lengur með taxtaleiðréttingar og heldur ekki smærri hagsmunafélög sem hafa dregist aftur úr í kjörum. 5.8 % ofaná á almennar taxtahækkanir uppá 3.8 % eða eiithvað álíka lítilræði til þessara kvöldu klára munu gera allt lífið auðveldara. Taxtaleiðréttingar þarna fyrst, svo meira til einhverra sérstakra hópa, svo áfram og áfram.
Gamlir tuðarar sem tala um verðbólgu og almennar launahækkanir í kjölfar svona "taxtaleiðréttinga" eru fortíðareðlur em enginn hlustar á. Þó við séum með sérfræðing í Kúbufræðum í Seðlabankanum til að stjórna gjaldeyrishöftunum góðu sem tekst það með þeim ágætum að nú fellur gengið daglega, þá virðumst við ekki sjá samhengið milli launa og lífskjara. Verðbólga er sá eini skattur sem þessi þjóð sættir sig við því hún er öðrum að kenna og kemur harðast niður á þeim sem ekki eru í skilanefnd Glitnis.
Það þýðir ekki að reyna að færa rök fyrir skynsemi þess að bera saman 10 % gengishækkun með lækkun á verðlagi við enga taxtalaunahækkun. Þetta hefur oft verið orðað en aldrei reynt fyrr en í þjóðarsáttinni. Hvað þá við núverandi haftaaðstæður sem gera eiginlega talið um einhvern gjaldeyrismarkað Seðlabankans hlægilegt. Það er eins og að stéttabaráttan megi ekki glatast. Auðvaldið verði alltaf að beygja og sýna að forystan vinnur fyrir kaupinu sínu og fríðindum.
Við þessar aðstæður eru utan-og innanhússarkitektar á fullu að skipuleggja 122 þúsund fermetra nýbyggingu Landspítala við Hringbraut. Ingibjörg Pálmadóttir ákvað staðinn í sinni ráðherratíð og þar við situr. Engin endurskoðun, engar umræður, bara byggja stórt. Það skal ekki þarfagreint, það skal ekki leitað að neinu öðru, það skal bara byggt. Almenningur, þing né þjóð skal engu ráða hér um. Ekki að ræða það.
Byggðum við ekki líka Hörpu til bjarga atvinnuástandinu og fluttum inn 100 Kínverja til þess að búa til míglekt listaverk Ólafs Elíassonar? Er ekki hægt að fá næga Kínverja til að byggja einn spítala eins og Kárahnjúkavirkjun þar sem við fluttum inn þúsund Kínverja því þessi þjóð getur ekki lengur óhreinkað á sér lúkurnar?
Hér er atvinnuleysi. Hér er engin fjárfesting. Hér stendur yfir og hefur staðð lengi landflótti menntaðara Íslendinga meðan inn flæðir minna menntaður lýður frá þriðjaheims löndum við fagnaðarlæti lopapeysuliðsins og Schengenaðdáenda. Gamla fólkið er sagt í svelti eftir skerðingarnar, öryrkjar barðir, opinberir starfsmenn kvaldir. Háskólinn klekur út læknum og sérfræðingum sem fara beint til Noregs því að engin framtíð sé sjáanleg innanlands?
Er það í raun og veru ekki þess vegna sem fólk vill ganga í Evrópusambandið? Mun ástandið geta versnað við það? Sérmenntað fólk á Landspítalanum vill ekki vinna þar lengur. Yfir hann skulu samt byggðir meira en hundrað þúsund fermetrar við Hringbraut, Ein röksemdin er að núverandi starfsfólk geti þá haldið áfram að hjóla í vinnuna. Hvenær verður hjólreiðakunnátta prófuð af sérstakri ríkisstofnun áður en ráðið verður í opinber störf? Hvað er í gangi ef þetta eru breyturnar sem til grundvallar staðarvalinu voru valdar?
Helmingur þjóðarinnar býr ekki á höfuðborgarsvæðinu og er að mestu án læknisþjónustu. Heilsugæslustöðvar á landsbyggðinni fá ekkert menntað starfsfólk. Á höfuðborgarsvæðinu fást ekki heilsugæslu- né heimilslæknar heldur. Það er flogið með alla alvarlega veika á landsbyggðinni suður á yfirkeyrt kerfið. Hinir fá parkodín og penbrítin sem helst enginn fær hér fyrir sunnan.
Vaxandi efasemdir finnst manni vera meðal fólks að kosningarnar í vor muni breyta nokkru afgerandi. Þeir sem við taki hafi annaðhvort fá sem engin úrræði eða þá getu, hvað þá einhverja ástríðu til að berjast við vandamálin fyrir fólkið án þess að fá borgaðan tímaseðilinn að kvöldi. Enda margt af því sem í boði er gamalt vín á nýjum belgjum. Fólk sem hugsar fyrst um eigið skinn en þjóðarinnar eins og maður sér óþyrmilega hvernig var á árum áður í bók Styrmis Gunnarssonar. Þar féll margur gamall átrúnaðurinn.
Þetta land virðist í raun eiga bjarta framtíð Guðmundar og Roberts framundan. Sérlega ef fyrstu skrefin verða innanlandsstyrjöld um kauptaxta í byrjun byggingar nýs Landspítala þegar ekki er hægt að manna þann gamla lengur. Þeir verða ekki lengi að töfra kanínur úr höttum sínum.
Björt framtíð er það sem fólkið kýs án þess að hún hafi verið kortlögð sérstaklega.
Er ekki bara bjart framundan ?
Flokkur: Stjórnmál og samfélag | Breytt s.d. kl. 10:15 | Facebook
Heimsóknir
Flettingar
- Í dag (22.11.): 4
- Sl. sólarhring: 5
- Sl. viku: 41
- Frá upphafi: 3419714
Annað
- Innlit í dag: 4
- Innlit sl. viku: 35
- Gestir í dag: 4
- IP-tölur í dag: 4
Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar
Eldri færslur
- Maí 2022
- Apríl 2022
- Mars 2022
- Febrúar 2022
- Janúar 2022
- Desember 2021
- Nóvember 2021
- Október 2021
- September 2021
- Ágúst 2021
- Júlí 2021
- Júní 2021
- Maí 2021
- Apríl 2021
- Mars 2021
- Febrúar 2021
- Janúar 2021
- Desember 2020
- Nóvember 2020
- Október 2020
- September 2020
- Ágúst 2020
- Júlí 2020
- Júní 2020
- Maí 2020
- Apríl 2020
- Mars 2020
- Febrúar 2020
- Janúar 2020
- Desember 2019
- Nóvember 2019
- Október 2019
- September 2019
- Ágúst 2019
- Júlí 2019
- Júní 2019
- Maí 2019
- Apríl 2019
- Mars 2019
- Febrúar 2019
- Janúar 2019
- Desember 2018
- Nóvember 2018
- Október 2018
- September 2018
- Ágúst 2018
- Júlí 2018
- Júní 2018
- Maí 2018
- Apríl 2018
- Mars 2018
- Febrúar 2018
- Janúar 2018
- Desember 2017
- Nóvember 2017
- Október 2017
- September 2017
- Ágúst 2017
- Júlí 2017
- Júní 2017
- Maí 2017
- Apríl 2017
- Mars 2017
- Febrúar 2017
- Janúar 2017
- Desember 2016
- Nóvember 2016
- Október 2016
- September 2016
- Ágúst 2016
- Júlí 2016
- Júní 2016
- Maí 2016
- Apríl 2016
- Mars 2016
- Febrúar 2016
- Janúar 2016
- Desember 2015
- Nóvember 2015
- Október 2015
- September 2015
- Ágúst 2015
- Júlí 2015
- Júní 2015
- Maí 2015
- Apríl 2015
- Mars 2015
- Febrúar 2015
- Janúar 2015
- Desember 2014
- Nóvember 2014
- Október 2014
- September 2014
- Ágúst 2014
- Júlí 2014
- Júní 2014
- Maí 2014
- Apríl 2014
- Mars 2014
- Febrúar 2014
- Janúar 2014
- Desember 2013
- Nóvember 2013
- Október 2013
- September 2013
- Ágúst 2013
- Júlí 2013
- Júní 2013
- Maí 2013
- Apríl 2013
- Mars 2013
- Febrúar 2013
- Janúar 2013
- Desember 2012
- Nóvember 2012
- Október 2012
- September 2012
- Ágúst 2012
- Júlí 2012
- Júní 2012
- Maí 2012
- Apríl 2012
- Mars 2012
- Febrúar 2012
- Janúar 2012
- Desember 2011
- Nóvember 2011
- Október 2011
- September 2011
- Ágúst 2011
- Júlí 2011
- Júní 2011
- Maí 2011
- Apríl 2011
- Mars 2011
- Febrúar 2011
- Janúar 2011
- Desember 2010
- Nóvember 2010
- Október 2010
- September 2010
- Ágúst 2010
- Júlí 2010
- Júní 2010
- Maí 2010
- Apríl 2010
- Mars 2010
- Febrúar 2010
- Janúar 2010
- Desember 2009
- Nóvember 2009
- Október 2009
- September 2009
- Ágúst 2009
- Júlí 2009
- Júní 2009
- Maí 2009
- Apríl 2009
- Mars 2009
- Febrúar 2009
- Janúar 2009
- Desember 2008
- Nóvember 2008
- Október 2008
- September 2008
- Ágúst 2008
- Júlí 2008
- Júní 2008
- Maí 2008
- Apríl 2008
- Mars 2008
- Febrúar 2008
- Janúar 2008
- Desember 2007
- Nóvember 2007
- Október 2007
- September 2007
- Ágúst 2007
- Júlí 2007
- Júní 2007
- Maí 2007
- Apríl 2007
Bloggvinir
- ghe13
- sigurjonth
- andrigeir
- annabjorghjartardottir
- ansigu
- agbjarn
- armannkr
- asdisol
- baldher
- h2o
- bjarnihardar
- dullur
- bjarnimax
- zippo
- westurfari
- gattin
- bryndisharalds
- davpal
- eggman
- greindur
- bjartsynisflokkurinn
- elfarlogi
- eeelle
- sunna2
- ea
- fuf
- fhg
- vidhorf
- gerdurpalma112
- gilsneggerz
- gudni-is
- lucas
- zumann
- gp
- gun
- topplistinn
- tilveran-i-esb
- skulablogg
- gustafskulason
- gustaf
- heimssyn
- diva73
- helgi-sigmunds
- hjaltisig
- minos
- hordurhalldorsson
- astromix
- fun
- jennystefania
- johanneliasson
- johannvegas
- jonatlikristjansson
- fiski
- jonl
- jonmagnusson
- jonlindal
- bassinn
- jonvalurjensson
- jvj
- thjodarskutan
- juliusbearsson
- katagunn
- kje
- ksh
- kristinn-karl
- kristinnp
- kristjan9
- loftslag
- altice
- ludvikjuliusson
- maggij
- magnusthor
- mathieu
- nielsfinsen
- omarbjarki
- huldumenn
- svarthamar
- pallvil
- peturmikli
- valdimarg
- ragnarb
- samstada-thjodar
- fullveldi
- siggus10
- sisi
- siggisig
- ziggi
- siggith
- stjornlagathing
- pandora
- spurs
- kleppari
- saethorhelgi
- tibsen
- ubk
- valdimarjohannesson
- skolli
- valurstef
- vilhjalmurarnason
- vey
- postdoc
- thjodarheidur
- icerock
- steinig
- thorsteinnhelgi
- icekeiko
Athugasemdir
Ertu að meina "Enga framtið" Guðmundar Steingrims /co .?...nátturlega eins og aðrar bólur sem blása út og hjaðna svo með timanum ,og enginn vissi hvenar komu eða fóru ! Fyndnasta fyrirbærið i stjórnmála hrærigrautnum i dag ! Hvert svo að öðru leiti er bjart framundan skal eg ekki segja ...hef mjög blendnar tilfinningar ......En takk fyrir góðann pistil kv.
rhansen, 3.2.2013 kl. 23:55
Takk Halldór.
Takk kærlega.
Kveðja að ausan.
Ómar Geirsson, 4.2.2013 kl. 09:40
Frábær pistill,þetta sjá allir sem vilja opna augun.
Þórarinn Baldursson, 4.2.2013 kl. 09:53
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.