Leita í fréttum mbl.is

Björt framtíð

finnst mér blasa við í íslensku þjóðlífi  um þessar mundir. Stór hluti kýs flokk sem hefur ekki einu sinni stefnuskrá, aðeins sætan skeggjaðan formann. Til hvers var vort starf í sjöhundruð .....

Eftir euphoríuna yfir því hvernig Össur upp á sitt eindæmi bjargaði þjóðinnni með því að ráða eitursnjallan  lögfræðing hann Tim Ward  til að snúa niður EFTA dómstólinn  og lét hann úrskurða Íslendingum í vil, þá kemur grár hversdagsleikinn aftur. En við vorum auðvitað með koltapaðan málstað samkvæmt ítrekaðri yfirferð þeirra Jóhönnu, Össurar og Steingríms og svo sérstaklega meirihluta Alþingis með Sjálfstæðisflokkinn innanborðs utan einhverja fimm þingmenn. Aðeins ótímabær afskipti forsetans af Icesave komu í veg fyrir að hér yrði Kúba norðursins og efnahagsleg móðuharðindi að því að áður hafði verið upplýst um að samningsleysi myndi færa þjóðinni.

En nú er sem sagt kominn nýr formaður í Samfó og við getum haldið áfram að undirbúa beina för  í Evrópusambandið til að redda málunum. Á meðan það tefst og ekki gerist þá  hrannast upp óveðursskýin á efnahagshimninum.

 Hjúkrunarfræðingar geta ekki beðið lengur með taxtaleiðréttingar og heldur ekki smærri hagsmunafélög sem hafa dregist aftur úr í kjörum. 5.8 % ofaná á almennar taxtahækkanir uppá 3.8 % eða eiithvað álíka lítilræði til þessara kvöldu klára  munu gera allt lífið auðveldara. Taxtaleiðréttingar þarna fyrst, svo meira til einhverra sérstakra hópa, svo áfram og áfram.

Gamlir tuðarar sem tala um verðbólgu og almennar launahækkanir í kjölfar svona "taxtaleiðréttinga"  eru fortíðareðlur em enginn hlustar á. Þó við séum með sérfræðing í Kúbufræðum í Seðlabankanum til að stjórna gjaldeyrishöftunum góðu sem tekst það með þeim ágætum að nú fellur gengið daglega, þá virðumst við ekki sjá samhengið milli launa og lífskjara. Verðbólga er sá eini skattur sem þessi þjóð sættir sig við því hún er öðrum að kenna og kemur harðast niður á þeim sem ekki eru í skilanefnd Glitnis.

Það þýðir ekki að reyna að færa rök fyrir skynsemi þess  að bera saman 10 % gengishækkun með lækkun á verðlagi við enga taxtalaunahækkun. Þetta hefur oft verið orðað en aldrei reynt fyrr en í þjóðarsáttinni.  Hvað þá við núverandi haftaaðstæður sem gera eiginlega talið um einhvern gjaldeyrismarkað Seðlabankans hlægilegt. Það er eins og að stéttabaráttan megi ekki glatast. Auðvaldið verði alltaf að beygja og sýna að forystan vinnur fyrir kaupinu sínu og fríðindum. 

Við þessar aðstæður eru utan-og innanhússarkitektar á fullu að skipuleggja  122 þúsund fermetra nýbyggingu  Landspítala við Hringbraut. Ingibjörg Pálmadóttir ákvað staðinn í sinni ráðherratíð og þar við situr. Engin endurskoðun, engar umræður,  bara byggja stórt.  Það skal ekki þarfagreint, það skal ekki leitað að neinu öðru, það skal bara byggt. Almenningur, þing né þjóð skal engu ráða hér um. Ekki að ræða það.

Byggðum við ekki líka Hörpu til bjarga atvinnuástandinu og fluttum inn 100 Kínverja til þess að búa til míglekt listaverk Ólafs Elíassonar?  Er ekki hægt að fá næga Kínverja til að byggja einn spítala eins og Kárahnjúkavirkjun þar sem við fluttum inn þúsund Kínverja því þessi þjóð getur ekki lengur óhreinkað á sér lúkurnar?

Hér er atvinnuleysi. Hér er engin fjárfesting. Hér stendur yfir og hefur staðð lengi landflótti menntaðara Íslendinga meðan inn flæðir minna menntaður lýður frá þriðjaheims löndum við fagnaðarlæti lopapeysuliðsins og Schengenaðdáenda.  Gamla fólkið er sagt í svelti eftir skerðingarnar, öryrkjar barðir, opinberir starfsmenn kvaldir.  Háskólinn klekur út læknum og sérfræðingum  sem fara beint til Noregs því að  engin framtíð sé sjáanleg innanlands?

Er það í raun og veru ekki þess vegna sem fólk vill ganga í Evrópusambandið? Mun ástandið geta versnað við það?  Sérmenntað fólk á Landspítalanum vill ekki vinna þar lengur. Yfir hann skulu samt byggðir meira en  hundrað þúsund fermetrar við Hringbraut, Ein röksemdin er að núverandi starfsfólk geti þá haldið áfram að hjóla í vinnuna. Hvenær verður hjólreiðakunnátta prófuð af sérstakri ríkisstofnun áður en ráðið verður í opinber störf? Hvað er í gangi ef þetta eru breyturnar sem til grundvallar staðarvalinu voru valdar?

Helmingur þjóðarinnar býr ekki á höfuðborgarsvæðinu og er  að mestu án læknisþjónustu. Heilsugæslustöðvar á landsbyggðinni fá ekkert menntað starfsfólk. Á höfuðborgarsvæðinu  fást ekki  heilsugæslu- né heimilslæknar  heldur.  Það er flogið með alla alvarlega veika á landsbyggðinni suður á yfirkeyrt kerfið. Hinir fá parkodín og penbrítin sem helst enginn fær hér fyrir sunnan.

Vaxandi efasemdir finnst manni vera  meðal fólks að kosningarnar í vor  muni breyta nokkru afgerandi. Þeir sem við taki hafi annaðhvort fá sem engin úrræði eða þá getu,  hvað þá einhverja  ástríðu til að berjast við vandamálin fyrir fólkið án þess að fá borgaðan tímaseðilinn að kvöldi.  Enda margt af því sem í boði er  gamalt vín á nýjum belgjum.  Fólk  sem hugsar fyrst um eigið skinn en þjóðarinnar eins og maður sér óþyrmilega hvernig var á árum áður í bók Styrmis Gunnarssonar. Þar féll margur gamall átrúnaðurinn.

Þetta land virðist í raun eiga bjarta framtíð Guðmundar og Roberts framundan. Sérlega ef fyrstu skrefin verða  innanlandsstyrjöld um kauptaxta í byrjun byggingar nýs Landspítala þegar ekki er hægt að manna þann gamla lengur. Þeir verða ekki lengi að töfra kanínur úr höttum sínum.

Björt framtíð er það sem fólkið kýs án þess að hún hafi verið kortlögð sérstaklega.

 

Er ekki bara bjart framundan ? 


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: rhansen

Ertu að meina "Enga framtið" Guðmundar Steingrims /co .?...nátturlega eins og aðrar bólur sem blása út og hjaðna svo með timanum ,og enginn vissi hvenar komu eða fóru ! Fyndnasta fyrirbærið i stjórnmála hrærigrautnum i dag ! Hvert svo að öðru leiti er bjart framundan skal eg ekki segja ...hef mjög blendnar tilfinningar   ......En takk fyrir góðann pistil kv.

rhansen, 3.2.2013 kl. 23:55

2 Smámynd: Ómar Geirsson

Takk Halldór.

Takk kærlega.

Kveðja að ausan.

Ómar Geirsson, 4.2.2013 kl. 09:40

3 Smámynd: Þórarinn Baldursson

Frábær pistill,þetta sjá allir sem vilja opna augun.

Þórarinn Baldursson, 4.2.2013 kl. 09:53

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Höfundur

Halldór Jónsson
Halldór Jónsson

verkfræðingur, flugdellukall, tennis-og badmintonspilari

-ekki góður í neinu af þessu-

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (18.5.): 8
  • Sl. sólarhring: 16
  • Sl. viku: 71
  • Frá upphafi: 3418432

Annað

  • Innlit í dag: 8
  • Innlit sl. viku: 66
  • Gestir í dag: 8
  • IP-tölur í dag: 8

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Eldri færslur

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband