14.2.2013 | 11:44
Menningararfurinn á Skeiðunum
er vel varðveittur á Skeiðunum ef marka má deilur sem þar eru risnar.
Svo segir Eiríkur Þórkellsson í Vorsabæ l í Fréttabréfi Skeiða og-Gnúpverjahrepps:
" Í síðasta fréttabréfi gerir Gunnar Örn fyrrverandi oddviti grein fyrir þeirri
ávörðun sinni að vera á móti framkvæmdum í landi Vorsabæjar 1 og gerir lítið úr ákvörðunum samstarfsfólks síns í hreppsnefndinni. Hvort er verra, að kynna sér ekki málin og segja nei, eða slá málunum á frest?
Í pistli þessum vil ég varpa ljósi á það ferli sem sem hófst þegar til mín kom maður sem sagðist hafa áhuga á að flytja í sveitina með sína fjölskyldu. Hafði hann farið vítt um Suðurland en fengið einkum augastað á Skeiða- og Gnúpverjahreppi þar sem þjónustan virtist góð hvað varðar skólana og sveitafélagið væri framalega í tækniþróun þar sem verið var að fara í framkvæmdir með lagningu ljósleiðara.
Komumst við að samkomulagi um að hann keypti af mér 40 hektara landspildu. Varð mér brátt ljóst að hann ætlaði ekki að vera kotbóndi út í sveit heldur byggja upp myndalegt býli og vera með starfsemi á jörðinni. Er hann mikill áhugamaður um vindmyllur og vill vera brautryðjandi á því sviði hér á landi. Á hann töluvert eigið fé eftir að hafa rekið útgerð erlendis og selt sinn hlut í henni fyrir nokkrum árum. Hluta af því fé ætlar hann að nota í uppbyggingu á framtíðar búgarði sínum og nýta vindorkuna í þá starfsemi sem hann ætlar sér að koma þar upp.
Hef ég hrifist af þessum áformum hans og talið það verða til hagsældar fyrir sveitafélagið að fá framkvæmdamann í sveitarfélagið og ekki síst að hann vilji setjist hér að með sína fjölskyldu. Í júlí fór hann að kynna áform sín fyrir skipulagafulltrúanum og stjórnendum sveitarfélagsins. Honum var tjáð að stofna þyrfti iðnaðarlóð þar sem staðsetja ætti vindmyllurnar og áhrifasvæðið yrði 500 metrar í kringum lóðina samkvæmt skipulagslögum. Mikilvægt væri að kynna fyrirhugaðar framkvæmdir fyrir næstu nágrönnum og þá sérstaklega fyrir þeim sem ættu land sem yrði innan áhrifasvæðisins. Hef ég aðstoðað hann við að kynna áform hans fyrir nágrönnunum og tel ég að það hafi tekist vel.
Á fundi sveitarstjórnar í ágúst var ákveðið að auglýsa breytingar á skipulagi í landi Vorsabæjar1 samkvæmt skipulagslögum. Kom ein athugasemd frá
eigendum tveggja sumarhúsa sem eru í 1,3 km fjarlægð frá fyrirhuguðu byggingasvæði vindmyllanna. Telja þau að þetta geti rýrt verðgildi eigna sinna.
Á 23 ha landspildu þeirra er 40 metra hátt háspennumastur í um 300 metra fjarlægð frá sumarhúsunum og kvöð á landspildunni þar sem Landsvirkjun hefur heimild til að fara yfir landið til að þjónusta mastrið. Því er hæpið að tvær vindmyllur í meira en eins kílómetra fjarlægð rýri verðgildi eigna þeirra frekar.
Á fundi sveitastjórnar í nóvember var ákveðið að fresta frekara auglýsingarferli varðandi breytingar á skipulagi í Vorsabæ þar sem sveitastjórn sú, sem samþykkt hafði vindmyllur rúmum mánuði áður á svæði sem er við náttúruperlur 22 sveitarfélagsins og framtíðar ferðamannaparadísar þess, virtist ekki vera nægjanlega upplýst um áhrif vindmylla á nánasta umhverfi.
Í framhaldi af þessari ákvörðun sveitastjórnar var þeim boðið á kynningarfund í Vorsabæ þar sem þau gátu kynnt sér frekar áform þau sem fyrirhuguð voru á jörðinni og tækni þá sem vindorka er og framtíðarmöguleika fyrir sveitafélagið. Öll þáðu þau boðið en Gunnar mætti ekki og boðaði ekki forföll. Hefur hann lítið viljað fræðast um þessi áform hjá framkvæmdaraðila.
Í framhaldi af þessum fundi var ákveðið að framkvæmdaraðili myndi útbúa myndir þar sem myllurnar sæjust frá nokkrum sjónarhornum í sveitinni. Síðan yrðu haldnir frekari kynningafundir í sveitinni. Var þetta gert og endað með kynningafundi í Brautarholti þar sem kom m.a. fulltrúi frá HS-orku sem ætlar að kaupa orkuna frá vindmyllunum og býður íbúum Skeiða og Gnúpverjahrepps 10% afslátt af orkuverði. Álítur HS-orka að vindorkan sé verðmæt í sitt orkuframboð og vil stuðla að því að þetta verkefni verði að veruleika.
Á síðustu þremur mánuðum hefur hreppsnefndin flækt þessu máli í þá stöðu að stofna á svæðisnefnd með sveitafélögunum í kring sem á að ákveða heildarskipulag hvað varðar vindmyllur á svæðinu og jafnvel að bíða eftir því að mörkuð verði stefna á landsvísu hvað varðar nýtingu vindorku.
Með þessu er verið að drepa fjárfestingaverkefni upp á fleiri hundruð milljónir hér í Skeiða og Gnúpverjahreppi. Það getur enginn einstaklingur beðið í fleiri ár með svona verkefni upp á von og óvon um hvort það verði samþykkt.
Kæru sveitungar. Eigum við að glutra niður svona fjárfestingartækifæri hér í
sveit. Okkur sár vantar aukin umsvif hér í sveit, með aukinni atvinnu og auknum tekjustofnum fyrir sveitarfélagið. Þarna er möguleiki að fá fjárfestingu upp á hundruð milljóna og fjölgun í sveitinni. Í framhaldinu mun skapast 1 til 2 störf við eftirlit og umsjón með myllunum auk þess í að framhaldinu yrði einhver starfsemi sem mun nýta orkuna á staðnum.
Framleiðsla orku úr vindi mun bæta ímynd sveitarinnar í augum útlendinga þar sem vindorka er álitin vistvæn. Markaðssetning ferðaþjónustufyrirtækja yrði auðveldari, auðveldara að fá vottanir og auka því forskot sveitarinnar í markaðssetningu afurða og þjónustu.
Hvað er svo neikvætt við að reisa tvær vindmyllur þar sem næsta íbúðarhús er nú í um 1,4 kílómetra fjarlægð (Vorsabær 1). Þær yrðu í manngerðu vistkerfi þar sem þegar eru háspennumöstur og misfagrar byggingar.
Það er misjafnt hvað fólki finnst um útlit vindmylla, eins og er um öll mannanna verk. Tel ég að það verði mikill álitshnekkir fyrir sveitafélagið ef við höfnum þessum fjárfestingarkosti. "
Þarna sjá menn að tilfinningar ráða för í þessu máli í sveitarfélaginu Forsjárhyggjan er slík að landeigandi má ekki reisa vindmyllur á eigin landisem er flóðasvæði og má ekki nota nema til annrs en grasnytja. Allt vegna afskipta nágranna sem eru langt í burtu. Þeim er slétt sama um þennan nýja nágranna sinn er sparka hiklaust í hann svo hann pilli sig í burtu.
Forfeður þessa fólks sem þarna stjórnar riðu 1904 til Reykjavíkur að mótmæla símanum. Þeir sem þekkja til á Skeiðunum eru sumir sagðir undrast ekki að þarna búi fólk sem varðveitir menningararf bændastéttarinnar.
Flokkur: Stjórnmál og samfélag | Breytt s.d. kl. 11:46 | Facebook
Heimsóknir
Flettingar
- Í dag (22.11.): 2
- Sl. sólarhring: 6
- Sl. viku: 39
- Frá upphafi: 3419712
Annað
- Innlit í dag: 2
- Innlit sl. viku: 33
- Gestir í dag: 2
- IP-tölur í dag: 2
Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar
Eldri færslur
- Maí 2022
- Apríl 2022
- Mars 2022
- Febrúar 2022
- Janúar 2022
- Desember 2021
- Nóvember 2021
- Október 2021
- September 2021
- Ágúst 2021
- Júlí 2021
- Júní 2021
- Maí 2021
- Apríl 2021
- Mars 2021
- Febrúar 2021
- Janúar 2021
- Desember 2020
- Nóvember 2020
- Október 2020
- September 2020
- Ágúst 2020
- Júlí 2020
- Júní 2020
- Maí 2020
- Apríl 2020
- Mars 2020
- Febrúar 2020
- Janúar 2020
- Desember 2019
- Nóvember 2019
- Október 2019
- September 2019
- Ágúst 2019
- Júlí 2019
- Júní 2019
- Maí 2019
- Apríl 2019
- Mars 2019
- Febrúar 2019
- Janúar 2019
- Desember 2018
- Nóvember 2018
- Október 2018
- September 2018
- Ágúst 2018
- Júlí 2018
- Júní 2018
- Maí 2018
- Apríl 2018
- Mars 2018
- Febrúar 2018
- Janúar 2018
- Desember 2017
- Nóvember 2017
- Október 2017
- September 2017
- Ágúst 2017
- Júlí 2017
- Júní 2017
- Maí 2017
- Apríl 2017
- Mars 2017
- Febrúar 2017
- Janúar 2017
- Desember 2016
- Nóvember 2016
- Október 2016
- September 2016
- Ágúst 2016
- Júlí 2016
- Júní 2016
- Maí 2016
- Apríl 2016
- Mars 2016
- Febrúar 2016
- Janúar 2016
- Desember 2015
- Nóvember 2015
- Október 2015
- September 2015
- Ágúst 2015
- Júlí 2015
- Júní 2015
- Maí 2015
- Apríl 2015
- Mars 2015
- Febrúar 2015
- Janúar 2015
- Desember 2014
- Nóvember 2014
- Október 2014
- September 2014
- Ágúst 2014
- Júlí 2014
- Júní 2014
- Maí 2014
- Apríl 2014
- Mars 2014
- Febrúar 2014
- Janúar 2014
- Desember 2013
- Nóvember 2013
- Október 2013
- September 2013
- Ágúst 2013
- Júlí 2013
- Júní 2013
- Maí 2013
- Apríl 2013
- Mars 2013
- Febrúar 2013
- Janúar 2013
- Desember 2012
- Nóvember 2012
- Október 2012
- September 2012
- Ágúst 2012
- Júlí 2012
- Júní 2012
- Maí 2012
- Apríl 2012
- Mars 2012
- Febrúar 2012
- Janúar 2012
- Desember 2011
- Nóvember 2011
- Október 2011
- September 2011
- Ágúst 2011
- Júlí 2011
- Júní 2011
- Maí 2011
- Apríl 2011
- Mars 2011
- Febrúar 2011
- Janúar 2011
- Desember 2010
- Nóvember 2010
- Október 2010
- September 2010
- Ágúst 2010
- Júlí 2010
- Júní 2010
- Maí 2010
- Apríl 2010
- Mars 2010
- Febrúar 2010
- Janúar 2010
- Desember 2009
- Nóvember 2009
- Október 2009
- September 2009
- Ágúst 2009
- Júlí 2009
- Júní 2009
- Maí 2009
- Apríl 2009
- Mars 2009
- Febrúar 2009
- Janúar 2009
- Desember 2008
- Nóvember 2008
- Október 2008
- September 2008
- Ágúst 2008
- Júlí 2008
- Júní 2008
- Maí 2008
- Apríl 2008
- Mars 2008
- Febrúar 2008
- Janúar 2008
- Desember 2007
- Nóvember 2007
- Október 2007
- September 2007
- Ágúst 2007
- Júlí 2007
- Júní 2007
- Maí 2007
- Apríl 2007
Bloggvinir
- ghe13
- sigurjonth
- andrigeir
- annabjorghjartardottir
- ansigu
- agbjarn
- armannkr
- asdisol
- baldher
- h2o
- bjarnihardar
- dullur
- bjarnimax
- zippo
- westurfari
- gattin
- bryndisharalds
- davpal
- eggman
- greindur
- bjartsynisflokkurinn
- elfarlogi
- eeelle
- sunna2
- ea
- fuf
- fhg
- vidhorf
- gerdurpalma112
- gilsneggerz
- gudni-is
- lucas
- zumann
- gp
- gun
- topplistinn
- tilveran-i-esb
- skulablogg
- gustafskulason
- gustaf
- heimssyn
- diva73
- helgi-sigmunds
- hjaltisig
- minos
- hordurhalldorsson
- astromix
- fun
- jennystefania
- johanneliasson
- johannvegas
- jonatlikristjansson
- fiski
- jonl
- jonmagnusson
- jonlindal
- bassinn
- jonvalurjensson
- jvj
- thjodarskutan
- juliusbearsson
- katagunn
- kje
- ksh
- kristinn-karl
- kristinnp
- kristjan9
- loftslag
- altice
- ludvikjuliusson
- maggij
- magnusthor
- mathieu
- nielsfinsen
- omarbjarki
- huldumenn
- svarthamar
- pallvil
- peturmikli
- valdimarg
- ragnarb
- samstada-thjodar
- fullveldi
- siggus10
- sisi
- siggisig
- ziggi
- siggith
- stjornlagathing
- pandora
- spurs
- kleppari
- saethorhelgi
- tibsen
- ubk
- valdimarjohannesson
- skolli
- valurstef
- vilhjalmurarnason
- vey
- postdoc
- thjodarheidur
- icerock
- steinig
- thorsteinnhelgi
- icekeiko
Athugasemdir
Amma mín var fædd á Reykjum og ég mun skyldur flest öllum Skeiðamönnum, þótt ég hafi sjaldan komið þar. En þetta er kjarngott bændafólk í besta skilningi orðisins og það skynjar hvernig slíkur óskapnaður mun stórspilla umhverinu þarna. Vel að merkja eru a.m.k. sumir túristar að koma hingað einmitt til að vera lausir við vindmyllu- hryllinginn sem hefur saurgað og spillt ýmsum náttúruperlum í Evrópu og t.d. í Englandi og Skotlandi berjast margir með kjafti og klóm gegn þessum fyrirbærum. Eins og Ágúst benti á í gær er orkuframleiðsan ótrygg og dýr og raunar gjörsamlega út í hött fyrir Íslendinga að spilla landinu með þessum hætti.
Vilhjálmur Eyþórsson, 14.2.2013 kl. 13:19
Jahérna Vilhjálmur. Ég hélt þú værir nú ekki svo innréttaður að þu viljir standa í vegi fyrir framkvæmdum nágrannans á eigin jörð. Þarna ætlaðai hann að byggja sér veglegt íbúðarhús, annað tónlistarhús með hundraðmanna tónleikasal sem vantar algerlega í sveitina með íbúðum fyrir listamenn.Auk stórefli vélahúss. Þetta bara í fyrsta áfanga.
Allt þetta verður ekki að veruleika sakir stjórnlyndis þíns og frænda þinna. Þú ert sannkallaður "stóribróðir"
Halldór Jónsson, 14.2.2013 kl. 15:20
Allt þetta sem þú nefnir er hið besta mál, bara að hann byggi ekki óskapnaðinn.
Vilhjálmur Eyþórsson, 14.2.2013 kl. 20:29
Jáhá Vilhjálmur,
besta mál að ekkert verði af neinu. Þeir hafa séð til þess frændur þínir.
Halldór Jónsson, 14.2.2013 kl. 20:49
Fannst þér ekki Steingrímur J. flottur að starta 600 milljónkallinum þínum?
Halldór Jónsson, 14.2.2013 kl. 20:50
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.