Leita í fréttum mbl.is

Enn ein ástæða

fyrir því að ganga ekki í ESB? Svo segir í fréttum:

"  Danskir kaupmenn verða að hætta að selja neftóbak vegna tilskipunar Evrópusambandsins.Á fréttavef danska ríkisútvarpsins DR kemur fram að Danir hafi misskipið tilskipunina árum saman og því brotið gegn regluverki ESB. Haft er eftir Astrid Krag heilbrigðisráðherra að nú verði neftóbaksviðskiptunum að linna. Á næstunni verði lagt fram frumvarp til laga þar sem sala á neftóbaki verði afdráttarlaust bönnuð. Ástæðan er sú að framkvæmdastjórn ESB hefur hótað að höfða mál gegn danska ríkinu fyrir Evrópudómstólnum fylgið það ekki tilskipuninni um bann við verslun með neftóbak.Fram kemur í fréttinni að það séu einkum sjómenn, Svíar og einstaka áhugamenn um að taka í nefið sem kaupi neftóbak. "

Sem sagt, það er ESB sem mun sjá um það í framtíðinni að danskir séu ekki að snússa sig.Þar liggja Danir í því rétt einu sinni enn.

Neftóbakið á Íslandi hefur farið lágt undanfarið og ekki verið uppi á söluborðum. En gamla skroið er alveg horfið úr búðum vegna tilskipana ESB. Bödrene Braun eru líklega farnir á hausinn af þessa völdum.  

Ég sá á bensínstöðinni að fluttar eru nú  inn margar sortir af fallegum útlenskum dósum.  Nú geta Íslendingar hugsanlega farið að smygla snússi til Danmerkur og komið með  hass til baka. Ný viðskiptatækifæri er það sem vantar.

Er snússfrelsið fimmta frelsið sem okkur hlotnast eftir að hafa fótumtroðið öll hin fjögur EES frelsin sem okkur passar. Nema það alheilaga ferðafrelsi evrópskra hælisleitenda hingað.

Sjálfstæð þjóð  með sjálfstæð nef. Enn ein ástæðan fyrir því að ganga ekki í ESB? 

 


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Jóhann Kristinsson

Mikið er ég sammála þér í þessum pistli.

ESB kemur ekkert við hvað þegnar Danmerkur láta í sig og á. Nanystate á engan rétt á sér, ef fólk vill resikera lífi og heilsu vegna nautnasýki, þá það um það.

Ég vil undirstrika að ég nota ekki tóbak, en reykti 3 pakka á dag þangað til 2. ágúst 1987.

Svo segir fólk að það sé svo erfit að hætta, tóm tjara og vitleysa. Ég ákvað að hætta að reykja á afmælisdegi föður míns og hef ekki haft enga löngun til að reykja síðan.

Kveðja frá Houston

Jóhann Kristinsson, 5.3.2013 kl. 03:23

2 Smámynd: Halldór Jónsson

Takk fyrir þetta Jóhann

Við hjónin eru líka löngu hætt. Nema hún vann það afrek að grenna sig um leið og hún hætti, En ég fitna og fitna með hverju tóbakslausu ári. Hvernig fór hjá þér?

Halldór Jónsson, 6.3.2013 kl. 02:12

3 Smámynd: Jóhann Kristinsson

Ég fitnaði þegar ég varð 25 ára og reykti, fitnaði ekkert meira eftir að ég hætti að reykja.

En mamma hefur sama vandamál og þú svo hún vill frekar vera reykingar manneskja heldur en fitubolla segir hún.

86 ára og reykir Camel með engum filter.

En hún reykti ekki meðan hún gekk með mig og sistir mína.

Kanski að það sé kominn tími að fara að spila golf en þú verður að ganga ekki vera í einhveri rammagnskrru ;>)

Vona að veðrið hafi battnað hjá ykkur hjónunum á Flórída, í það minsta það er betra heldur en veðrið á íslandi í dag og á morgun.

Kveðja frá Houston

Jóhann Kristinsson, 6.3.2013 kl. 02:34

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Höfundur

Halldór Jónsson
Halldór Jónsson

verkfræðingur, flugdellukall, tennis-og badmintonspilari

-ekki góður í neinu af þessu-

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (1.5.): 0
  • Sl. sólarhring: 11
  • Sl. viku: 41
  • Frá upphafi: 0

Annað

  • Innlit í dag: 0
  • Innlit sl. viku: 39
  • Gestir í dag: 0
  • IP-tölur í dag: 0

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Eldri færslur

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband