Leita í fréttum mbl.is

Hvað nú ungi maður?

Þór Saari?

Það gekk ekki hjá þér stjórnarskráin. Það  gekk ekki hjá þér vanstraustið. Hefur eitthvað gengið hjá þér yfirleitt þennan tíma á þinginu?

Jú, eitt verðu ekki af þér tekið. Slifsisleysistískan sem þú innleiddir til að auka virðingu þingsins væntanlega. Það mun halda nafni þínu á lofti um langa framtíð. Þó eru víst horfur á því að þið Björn Valur ætlið hvorugur að verða á næsta þingi.

Langaafi minn Jón Ólafsson rítstjóri sagði oftar af sér þingmennsku en nokkur annar. Í eitt skiptið tilfærði hann þá ástæðu að hann gæti ekki stundinni lengur setið þar með þeim vitleysingum sem þar væru innanstokks. Svo álit okkar samtíðarmanna á okkar þingmönnum er ekkert nýtt.

Það var annars hann Jón Ólafsson sem kom böndum á það þá fram úr hófi skrílslegt orðafar þingmenna sem þeir tíðkuðu með því að fá þá til að fallast á að nefna hvern annan ávallt hæstvirtan  þingmann svo og svo í stað þess til dæmis að kalla hverjir aðra til dæmis gungur með skítlegt eðli og svo framvegis. Honum var annt um virðingu þingsins þó hann hefði alltaf verið talinn mesti orðhákur íslenskrar blaðamennsku. Hann varð tvívegis landflótta fyrir kjaftinn á sér um ráðamenn og Dani.

Síðast sagði Jón kallinn af sér embætti konungskjörins þingmanns, en því embætti hafði honum verið úthlutað tl að hann hefði eitthvað að lifa á því hann var alla tíð fátækur baslari. Nei, Jón Olafsson var maður með skap. Hann hafði verið bókavörður í Chicago í nærri áratug og vissi þessvegna meira um bókasöfn en margir aðrir. Hann hlaut ekki kosningu í undirbúningsnefnd Landsbókasafnsins  heldur var landlæknir kosinn í hans stað af pólitík einni saman. Jón Ólafsson  sagði umsvifalaust af sér embættinu og þar með eftirlaununum og hvarf í baslið sitt aftur til dauðadags 1916.

Þá hafði hann meðal annars gefið út stafrófskver sitt í meira en 16 000 eintökum frá byrjun aldarinnar Kenndi þjóðinni að lesa ef svo má segja..Auk margra kennslubóka en hann kenndi í Verslunarskólanum lengi. Gaf út blöð og tímarit einn eða með tengdasyni sínum prófessor dr.Ágústi H. Bjarnason, Iðunni, Reykjavíkina svo eitthvað sé nefnt.   Einn afkomandi hans Ársæll Valfells lektor sýndi það framtak að gefa út kennslubók hans í hagfræði. Annar gaf út sýnishorn ljóða eftir hann ásamt Gilsi Guðmundssyni. En Jón var prýðilegt skáld og orti talsvert. "Máninn hátt á himni skín, hrímfölur og grár" ætti að nægja til þess að bera þjóðskáldstitil.

Hann varð oftar ritstjóri en nokkur annar Íslendingur fyrr eða síðar. Hann kjaftaði herskip með fullri áhöfn út úr Ulysses Grant Bandaríkjaforseta og hershöfðingja Lincolns til að kanna búsetuskilyrði á Alaska sem hann taldi mjög henta Íslendingum. Skýrsla hans er í Library of Congress.  Hann drakk Hvítahúsið þurrt eina nótt með Grant og þurfti Jón að borga sjálfur fyrir báða  þegar þeir fóru á búllugang eftir meira brennivíni því Grant var blánkur. 

Gils Guðmundsson skrifaði bók um Ævintýramanninn Jón Ólafsson sem er stórgóð lesning eins og Gils var von og vísa slíkur afbragðsmaður hann var hvað sem pólitíkinni hans leið en hann var ekki Sjálfstæðismaður. 

 Ég er ekki vel kunnugur mörgum  afrekum Þórs Saari en held samt að þeir gætu átt eitthvað sameiginlegt  Jón Ólafsson og hann Þór ef grannt er skoðað.

Því má nú spyrja:  Í hverja skal heima nú halda?  Hvernig verður ástandið á Alþingi með 19 flokka? Kannski verður þetta þing okkar sem nú er að kveðja bara hátíð miðað við það næsta?

Hvað nú ungi maður Þór Saari? 

 


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Jón Steinar Ragnarsson

Arfleyfð Þórs Saari í Íslenskum stjórnmálum er sú að nú veit öll þjóðin að pontan á Alþingi er stillanleg.

Jón Steinar Ragnarsson, 12.3.2013 kl. 17:13

2 Smámynd: Vilhjálmur Örn Vilhjálmsson

Hér má finna upplýsingar um Jón Ólafsson:

http://fornleifur.blog.is/blog/fornleifur/entry/1279701/

Þór Saari var einu sinni með mér í bekk í barnaskóla og var hinn vænsti drengur. Svo hvarf hann og sagt var að hann hefði siglt vestur um haf. Svo kemur hann eins og skrattinn úr sauðaleggnum og lýsir yfir vantrausti á allt og alla.

Þannig menn verða ekki bundnir með bindi, Halldór Jónsson. En ég vona eiginlega dálítið að Saari komist inn á þing eftir næstu kosningar, en var hann ekki búinn að lýsa því yfir að hann hefði engan áhuga.

Vilhjálmur Örn Vilhjálmsson, 12.3.2013 kl. 17:19

3 Smámynd: Sigurður Þórðarson

Var það ekki einhver varaþingmaður VG að norðan sem fyrst lýsti yfir stríði gegn hálsbindum?  En gott ef Saari fer ekki á Borgina í staðin fyrir Dómkirkjuna fyrir þingsetningu.  Hann er víst ekki í framboði og kemst því miður ekki til þings konungskjörinn eins og hann langafi þinn Halldór. Annars var þetta stórfróðlegur pistill um Jón Ólafsson og viðbót Fornleifs vinar okkar um spítalafatnaðinn er nokkuð skondin. Þeirra tíma Útvarp Saga?

Sigurður Þórðarson, 12.3.2013 kl. 19:58

4 Smámynd: Jósef Smári Ásmundsson

Sæll halldór.Varðandi þessa bindistísku þá verð ég að segja það að hún virkar svolítið öfugt á mig.Ég forðast yfirleitt menn með bindi,finnst þeir eiginlega ótraustverðir.Eins þegar menn eru með fleðjulæti og uppgerðar kurteisi.Það eru aðrir hlutir sem vekja traust hjá mér.

Jósef Smári Ásmundsson, 13.3.2013 kl. 16:19

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Höfundur

Halldór Jónsson
Halldór Jónsson

verkfræðingur, flugdellukall, tennis-og badmintonspilari

-ekki góður í neinu af þessu-

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (28.4.): 6
  • Sl. sólarhring: 7
  • Sl. viku: 50
  • Frá upphafi: 3418231

Annað

  • Innlit í dag: 6
  • Innlit sl. viku: 48
  • Gestir í dag: 6
  • IP-tölur í dag: 6

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Eldri færslur

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband