Leita í fréttum mbl.is

Hvað með aðra texta?

Ég vil nú ekki nota stór  orð  um þetta Evróputrúarfólk okkar. Þetta er þeirra heilagt Gral eins og Múhammeð er fyrir Múslíma. Hinsvegar datt mér aldrei í hug að neinn reyndi að stýra merkingu tilskipana ESB á þann hátt serm Frosti Sigurjónsson hefur komið auga á að gert hefur verið. Að menn beinlínis umorði setningar til að breyta merkingunni eins og kemur fram í rangþýðingum ÞM á Lisaabon-sáttmálanum, sem er stjórnarskrá Evrópusambandsins. Verið sé að stýra skilningi fólks beinlínis?

Það er búið að þýða þúsundir af tilkipunum frá ESb og margar orðnar að lögum hérna. Margir þolendur haf kvartað fyrir íslenskum embættismönnum að þeir séu kaþólskari en páfinn í framfylgninni eins og td. Flugmálastjórn þar sem menn kvarta sáran undan kreddufestu.
 
Þarf virkilega að fara að lesa allt regluverkið saman til að leita að samskonar dæmum eins og koma þarna fram í Lissabonsáttmálanum? Hvað með uppskiptin á raforkusköffun okkar í öflun og sölu? Margföldun kostnaðar fyrir þjóðina? Var kannski hægt að skilja þetta öðruvísi og túlka okkur í hag?
 
Verður ekki Alþingi að lesa lögin sem það er búið að samþykkja vegna EES og virkilega sannprófa að rétt hafi verið með farið? 

Ef þetta er svona þarna í grunninum, hvað með aðrar reglugerðir hins opinbera sem grundvallast é EES ? Hefur verið rétt þýtt?
 
Það hefur verið margoft sagt að Alþingi hafi ekki alltaf kynnt sér þau lög sem það er að samþykkja  og koma vegna samkiptanna við ESB í gegnum EFTA og EES. Hvar matreiðir textana ofan í Alþingi?
 
Eru fleiri dæmi um skilningstýringar eins og Frosti hefur fundið dæmi um í þýðingunni á Lissabonsáttmálanum? 

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Ómar Bjarki Smárason

Það er vafalaust margt sem þarf að endurskoða og þeir sem hafa átt að standa vaktina við innleiðingu tilskipana hafa e.t.v. ekki haft hagsmuni Íslands að leiðarljósi.

Breytingar á reglugerð um neysluvatn milli áranna 1995 og 2001 er t.d. með öllu óskiljanleg. Þar er verið að innleiða reglur um styrk nítrats og leiðni vatnsins sem er langt utan við það sem við ættum að sætta okkur við og getur virkað sem tól í höndum aðila sem eru að menga vatn að óþörfu en geta haldið því fram að vatnið standist samt kröfur reglugerðar! Dæmin eru vafalaust fleiri.

Ómar Bjarki Smárason, 25.3.2013 kl. 00:57

2 Smámynd: Halldór Jónsson

Ef til vill er svo um fleira Ómar Bjarki, að þeir setji reglur sem eru þeim í hag í nýlendunum. Þeirra eigin heimahagar eru orðnir svo mengaðir að óspillt náttúra passar ekki þar inn. Það getur orðið okkur hættulegt eins og þú bendir á.

Halldór Jónsson, 25.3.2013 kl. 02:18

3 Smámynd: Sigurður Þorsteinsson

Gott innlegg hjá þér Halldór, að vanda. Það verður mjög gott að hafa Frosta inn á næsta þingi og í ríkisstjórn með góðu fólki

Sigurður Þorsteinsson, 25.3.2013 kl. 05:31

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Höfundur

Halldór Jónsson
Halldór Jónsson

verkfræðingur, flugdellukall, tennis-og badmintonspilari

-ekki góður í neinu af þessu-

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (19.4.): 2
  • Sl. sólarhring: 8
  • Sl. viku: 58
  • Frá upphafi: 3418161

Annað

  • Innlit í dag: 2
  • Innlit sl. viku: 54
  • Gestir í dag: 2
  • IP-tölur í dag: 2

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Eldri færslur

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband