Leita í fréttum mbl.is

Hver hættir?

Á Bjarni að hætta?

Á Illugi að hætta?

Á Guðlaugur þór að hætta?

Þetta eru umræðuefni sem maður heyrir hvar sem maður kemur orðið og Sjálfstæðisflokkinn ber á góma.

" Ég get ekki kosið flokkinn meðan þetta fólk er þarna."

" Ég fyrirgef ekki stuðninginn við Icesave. "

Þetta er ein  ástæðan sem fólk tilgreinir beint við mann að sé fyrir því að fylgi flokksins hrynur svona skelfilega.

Ekki málefni heldur menn skipta máli?

Höldum við sjálfir ekki hinu gagnstæða fram? Er fólk að kaupa það?

Önnur ástæða er tilgreind sem klaufalegar samþykktir Landsfundar.

Svo kemur annað fólk og segist ekki treysta forystumönnum flokksins til að fara eftir Landsfundarsamþykktum hvað varðar ESB. Talar um fyrri afstöðu einstakra manna.

Er það eitthvað gefið að fylgið myndi endurheimtast ef þetta fólk segði af sér?

Voru það ekki margir fleiri en þessir menn sem samþykktu Icesave?

Eiga þeir að hætta líka?

 Allir?

Eða bara sumir?

Sat ekki til dæmis Guðlaugur Þór  hjá við Icesave?

Er ekki  Tryggvi Þór hættur?

Er ekki  Árni Johnsen hættur?

Er ekki Ásbjörn hættur? 

Eru fleiri á aftökulistanum eða er allt í lagi með alla aðra þingmenn? Og úr öllum hinum flokkunum sem menn ætla nú að kjósa í stað Sjálfstæðisflokksins?

Svo kemur Júlíus Sólnes í Mbl. og reiknar út í Mbl. í dag  að tillögur Sjálfstæðisflokksins kosti helmingi meira en það sem Framsóknarflokkurinn ætlar að setja í heimilin ?

Framsóknarmenn fá þá  allt fylgið út á að gera helmingi minna fyrir heimilin en Sjálfstæðísflokkurinn?

Erum við Sjálfstæðismenn  enn einu sinni að flækja okkur í snöru Leiftursóknarinnar og hengjumst í því að geta ekki skýrt út hvað við meinum á máli sem kjósandinn skilur?

Skjótum við okkur alltaf í fótinn fyrir kosningar  Sjálfstæðimenn? 

Ef við skiptum um hesta í miðri ánni, mun þá kjósandinn hætta við að hætta að kjósa okkur? 

 


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Jónatan Karlsson

Sæll Halldór.

Þessar vangaveltur eða efasemdir þínar eiga fullan rétt á sér. Forysta flokksins er einfaldlega ótrúverðug og Hanna Birna sýndi ótvíræðan kvenlegan veikleika, þegar hún treysti sér ekki í slaginn við laskaðan formanninn. Er ekki helst til ráða að styðja Hægri græna til dáða?

Jónatan Karlsson, 27.3.2013 kl. 21:51

2 Smámynd: Hrólfur Þ Hraundal

Við þurfum á Sjálfstæðis flokknum að halda, því ef ekki þá ræður Framsókn ekki við þvertrjáa skóg BF, SF og VG og einhverja snata þeirra,  sem allir fjölmiðlar á Íslandi berjast nú fyrir leynt og ljóst, nema ef væri þriðjungur af Morgunblaðinu. . 

Það er hinsvegar engum til sóma að lasta það fólk sem varð óánægt með að formaður Sjálfstæðisflokksins lét afvegaleiðasig á síðustu metrunum í Icesave 3, og gerði stóran hluta af kjósendum flokksins að viðundrum, nákvæmlega eins og Steingrímur fór með sína kjósendur. 

Það fór hinsvegar þannig að kjósendur á íslandi gerðu þennan vingul, formann Sjálfstæðis flokksins að fífli og í framhaldi af því var hann beðin um að biðjast afsökunar á þessum kjánaskap sínum, en hann kvaðst stoltur af sínu ískalda mati.  Afsökunnar beiðni, iðrun hefði lagað. 

Þar kom svo sögu í þessu máli að það voru engir aðrir en kjósendur á íslandi sem höfðu rétt fyrir sér frammi fyrir dómstólum, í þessu máli sem aldrei hefði orðið að þeim óskapnaði sem það varð, hefðum við fengið að njóta starfskrafta eldri foringja Sjálfstæðisflokksins lengur.

En ástæða þess að það gerðist ekki var vinguls háttur og undirferli Ingibjargar Sólrúnar og allra hennar flokksmanna, sem hata sjálfstæði og áræði íslendinga og þann gjaldmiðil sem þeir notuðu til að koma sér útúr torfbæjunum á rétt rúmum hundrað árum. 

Það hefur eingin þjóð komið sér útúr fornöldinni jafn hratt og upp að þeim lífsgæðum sem aðeins efnuðustu þjóðir geta státað af, og það er fyrir dugnað Íslendinga, sjálfsöryggis þeirra og sjálfstæðisvilja, með aðstoð Sjálfstæðisflokksins  og Krónunnar okkar.

    

Hrólfur Þ Hraundal, 27.3.2013 kl. 21:59

3 Smámynd: Jón Baldur Lorange

Áhugaverðar vangaveltur, verð ég að segja.

Jón Baldur Lorange, 28.3.2013 kl. 00:09

4 Smámynd: Ómar Bjarki Smárason

Kannski þarf "skuggaráðið" að draga sig í hlé...?

Ómar Bjarki Smárason, 28.3.2013 kl. 02:42

5 Smámynd: K.H.S.

Að fá Davíð að borðinu var eina vonin fyrir flokkinn, en orðið of seint. Hanna Birna var helsta vonin , en hún sýndi sittt ESB fés um daginn er hún hvað Landsfundinn hafa farið offari í ESB málum.

Sannir Sjálfstæðismenn sjá því helst von í að vinna eftir samþykktum flokksins með að kjósa Framsóknarflokkinn.

Eftir næstsíðustu kosningar voru Framsóknarmenn sviknir af Sjálfstæðisflokknum, eftir að stjórnin hélt velli. þar fóru þær fremstar samstöllurnar Þorgerður og Sólrún . Þá var mynduð stjórn með erkióvininum sem að líkum var aldrei heill í starfi, hljóp undan merkjum er tækifæri gafst og kannaðist svo ekki  við eitt né neitt.

Við sannir Sjálfstæðismenn kjósum Framsókn nú og vonum að Sjálfstæðisflokkurinn taki til í skottinu fyrir þarnæstu kosningar sem verða svo ekki langt undan.

K.H.S., 28.3.2013 kl. 07:44

6 Smámynd: Jónas Gunnlaugsson

Af hverju gleymdi flokkurinn að vinna að einkaeign á húsnæði.Hvers vegna fá fjármálaöflin að færa eignir heimilana til sín.Af hverju lærir flokkurinn ekki á það, hvernig eignirnar voru færðat frá fólkinu,og til fjármálaaflana,fyrst með verðbólgu og síðan með verðhjöðnun. http://www.herad.is/y04/1/2012-01-26-thomasjefferson.htm http://jonasg-egi.blog.is/blog/jonasg-egi/entry/1243291/http://jonasg-egi.blog.is/blog/jonasg-egi/ Egilsstaðir, 28.03.2013 Jónas Gunnlaugsson

Jónas Gunnlaugsson, 28.3.2013 kl. 12:02

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Höfundur

Halldór Jónsson
Halldór Jónsson

verkfræðingur, flugdellukall, tennis-og badmintonspilari

-ekki góður í neinu af þessu-

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (28.3.): 5
  • Sl. sólarhring: 5
  • Sl. viku: 52
  • Frá upphafi: 3417960

Annað

  • Innlit í dag: 5
  • Innlit sl. viku: 49
  • Gestir í dag: 5
  • IP-tölur í dag: 5

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Eldri færslur

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband