Leita í fréttum mbl.is

Fáránlegir þættir

birtast á RÚV um stjórnmál nú í aðdraganda kosninga.

Hvernig er hægt að leggja það  á fólk þegar RÚV stillir upp ellefu frambjóðendum í röð til að ræða efnahagsmál. Þar af eru kannski fjórir sem eiga einhverja von í að ná 10-20 þingmönnum og fara í stjórn eftir kosningar.  Þeir alvörukallarnir eru látnir hlusta á helmingi fleiri nóboddía nota sama ræðutíma og þeir til að tala um hluti sem þeir í versta falli botna ekki í sjálfir hvað þá að þeir munu hafa áhrif á málaflokkinn eftir kosningar. Mig vantar ekkert að frétta neitt hjá þessu fólki.

Það er ekki leggjandi á venjulegt fólk að hlusta á þetta. Fulltrúa þessarar sérvitringaframboða á að hafa í sérþætti og fulltrúar flokka sem eiga einhvern þingstyrk vísan eiga að vera í öðrum. Menn verða að  rífasat á janfréttisgrundvelli. Fluguvigtarmenn eru aldrei sendir í þungavigtarkeppnir í íþróttum eða unglingalið í meistaraflokka.

Þessi fræðsluþáttur um stjórnmál  er eyðilagður fyrir fróðleiksfúsum alvörukjósanda því hann  nennir ekki að eyða tíma í að hlusta á fimbulfambið í þessum eða hinum sem engin áhrif mun hafa hvort eða er eftir kosningar.Maður sem þarf að einbeita sér um hvað hann eigi að gera við atkvæðið til árangurs getur ekki eytt tíma í þetta.

Hugsanlega væri líka best að raunverulegir áhrifaforystumenn tali bara sína ræðu einir í sér þætti eða gangi á hólm við einn jafningja sinn.  Maður getur þá spilað það sem maður vill heyra en ekki láta nauðga sér andlega eins og svona línudansaraþættir eru.

Vonandi dettur forystumönnum alvöruflokkanna ekki í hug að láta teyma sig aftur í sjónvarp rétt fyrir kosningar til að munnhöggvast við Sturlu bílstjóra,  Pétur á Sögu eða Þorvald Gylfason þó ágætir séu annarsstaðar. Það hefur engan tilgang í þeirri baráttu sem háð verður. Þessir þrír geta svo bara ágætlega rifist hvor við annan eða Birgittu en eiga ekki að fá að eyða tíma frá öðrum og drepa öllu sem máli skiptir á dreif. Við höfum annað betra við tímann að gera.

Alvöru stjórnmálamenn láti ekki poppara á fjölmiðlum stýra sér!   Þeir eru sjálfir söluvaran og eiga að ráða hvernig þeir láta stilla sér upp en ekki einhverjir sjónvarpsstarfsmenn.

 Okkur vantar ekki meiri fáránlega umræðuþætti í sjónvarpið. 


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Ómar Ragnarsson

Þetta er ekki svona einfalt. Samkvæmt þessu ætti fjórflokkurinn einn að einoka umræðuna eins og hann hefur gert síðan 1942. Þegar umræðuþættirnir hófust var þessu fjórflokkur ekki með nema um 70% atkvæða í skoðanakönnunum en "sérvitringaframboðin" með 30%.

Segjum að þú hefðir samþykkt að Björt framtíð fengi ein að vera með af nýju framboðunum, af því að þá voru þeir með allt að 15% fylgi, þá hefðu samt allt upp í 17% kjósenda ekki fengið að heyra í neinum sem tengdust þessum framboðum.

Þú verður að athuga að það eru alveg ný og áður óþekkt hlutföll að skapast í íslenskum stjórnmálum vegna þess álitshnekkis sem stjórnmálamenn almennt og þá einkum Alþingi hafa orðið fyrir.

Í ljós hefur komið síðustu vikur að af nýju framboðunum hafa Píratar fengið flug og hafa fylgi sem gæti skilað þeim minnst fimm þingmönnum.

Engin leið var í upphafi þáttanna að sjá það fyrir hvað af nýju framboðunum kæmist fyrst í gegn. Það, að til dæmis Pírötum hefði verið meinað að vera í hópi annarra hefði verið hliðstætt við það að Hannibal og hans fólki í Samtökum frjálslyndra og vinstri manna hefði verið meinað að vera innan um aðra í umræðuþáttum 1971, af því að þeir voru "sérvitringaframboð."

Gengi sérvitringaframboðanna í sveitarstjórnarkosningunum 2010, meðal annars í Reykjavík og á Akureyri sýnir, að hvort sem mönnum líkar það betur eða verr er veldi fjórflokksins að molna í öðrum stóru kosningunum í röð.

Það er pólitískur veruleiki sem Sjónvarpið getur ekki komið í veg fyrir að birtist um 30% kjósenda sem undanfarna mánuði hafa gefið til kynna í skoðanakönnunum að þeir vilji að komi fram.   

Ómar Ragnarsson, 11.4.2013 kl. 05:30

2 Smámynd: Halldór Jónsson

Hvaða tilgang hefur að ræða efnahagsmál við pirataflokkinn sem hefur ekkert slíkt á stefnuskrá sinni heldur lögleiðingu fíkniefni, ritskoðunarmál og svoleiðis mál. Ég held að enginn þeirra viti neitt um þjóðmál sem hægt sé að ræða við þá. Fjórflokkurinn verður þá bara að ákveða sjálfur að mæta ekki til umræðna með þeim og það er það sem ég er að segja, að alvöruflokkar láti ekki sjórnvarpsliðið setja sig upp í gapastokk með svona liði heldur ákveða sjálfir við hverja þeir tala. Hinir geta bara talað saman án þeirra.

Halldór Jónsson, 11.4.2013 kl. 13:57

3 identicon

Er ég e.t.v. einfaldur og einfeldningslegur eða sjá ekki aðrir hrokann í þessari færslu?

H.T. Bjarnason (IP-tala skráð) 11.4.2013 kl. 14:26

4 Smámynd: Halldór Jónsson

Hvað er hroki? Ég hef þessa skoðun hvað sem þér finnst um hana. Þú hefur aðra skoðun, Ég er að leggja til betra verklag, hætt að eyða tíma í vitleysu eða tilgangsleysi eins og við höfum gert of mikið á síðustu 4 árum

Halldór Jónsson, 11.4.2013 kl. 16:59

5 Smámynd: Elle_

Fluguvigtarmenn?  Stórsniðugt orð fyrir ýmislegt þó ég ætli ekki að tjá mig um það í samhengi við pistilinn.  Var þetta nýyrði?

Elle_, 11.4.2013 kl. 20:49

6 Smámynd: Halldór Jónsson

Nei kære Elle, þetta kemur úr hnefaleikum, fluguvigt, bantamvigt,millivigt, léttþungavigt eða veltivigt og þungavigt, mig minnir að þettga sé svona. Hann Ómar veit allt um þetta.

Halldór Jónsson, 11.4.2013 kl. 21:24

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Höfundur

Halldór Jónsson
Halldór Jónsson

verkfræðingur, flugdellukall, tennis-og badmintonspilari

-ekki góður í neinu af þessu-

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (20.5.): 0
  • Sl. sólarhring: 10
  • Sl. viku: 70
  • Frá upphafi: 0

Annað

  • Innlit í dag: 0
  • Innlit sl. viku: 67
  • Gestir í dag: 0
  • IP-tölur í dag: 0

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Eldri færslur

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband