Leita í fréttum mbl.is

The ugly American

skýtur upp kollinum í huga Hollande Frakklandsforseta. Hann vill hætta fríverslunarviðræðum við þessa skúrka sem njósna um allt og alla í umboði Obama Bandaríkjaforseta og handhafa friðarverðlauna Nóbels. Vonandi verður Hússein ekki gripinn í sænsku akademíunni við hleranir. Bretaskammirnar eru víst ekki hótinu betri og njósna um alla allsstaðar. Auðvitað  fer Bundesnachrichtendienst Angelu Merkel sem erfði Stasi-staflana og Gestapo-gögnin ekki að spæja um nokkuð sem henni ekki kemur við eða hvað? Enda Þjóðverjar stútfullir af vandlætingu yfir athæfi Kanans án þess að vera spurðir neins um eigin hegðun.

Heimspólitíkin og stórveldastefnan byggir auðvitað algerlega á upplýsingaöflun. Það væri til lítils að segjast ætla að reyna að afstýra hryðjuverkum ef ekki má fylgjast með múslímunum sem eru yfirleitt gerendurnir. Allt sem maður veit skaðar mann ekki en það sem maður ekki veit kemur á óvart.

Mér finnst sjálfsagt að reyna að afla þeirra upplýsinga sem menn komast upp með að ná, hvort sem menn kalla það njósnir, persónunjósnir eða eitthvað annað. Eða hvað skyldi 500 manna kínverskt sendiráð hérna í Reykjavík vera að gera hérna? Spila maríjas?  Ef það er bannað að hlera þá er það lögbrot að hlera. En menn reyna oft að komast upp með allan fjárann þó þeir viti að það sé bannað. Það er bara svoleiðis.

Mest af hlerunum og njósnavinnu er auðvitað til einskis en eitt og eitt lykilatriði getur dottið inn sem getur skipt sköpum.  Hugsið ykkur ef maður sem njósnari þyrfti að hlusta á allt sem Össur eða Jón Baldvin segðu á hverjum degi. Þeir sem ekkert hafa fela þurfa ekkert að óttast. Þeir sem hafa grámað mél í pokahorninu þurfa að gæta sín. En umræðan snýst öll um þessa minnihlutaaðila eins og Birgittu og Pirata á sömu forsendum að það má ekki selja Parkódín af því að rónarnir misnota það.

Þetta njósnatal fellur saman við þegar Íslendingar eiga að hætta að nota bandaríska barnastóla í bílana sína. Evrópusambandið er búið að skrifa lýsingu á barnastól sem bandarískir stólar uppfylla ekki frekar en litarefnin í Cocoa-Puffs frá Bandaríkjunum.

Ætla Íslendingar ekki að sjá það, að EES samningurinn færir okkur yfirleitt bara íþyngjandi kvaðir sem stefnt er gegn Bandaríkjunum til að að útiloka þau frá viðskiptum. Þessvegna gekk mörgum illa að skilja tilganginn með umræðum um fríversluna á milli ESB og USA. Maður hélt að ESB hefði verið beinlínis stofnað gegn USA. Þessvegna eigum við ekki að hlaupa eftir allskyns vitleysu sem þessi samningur treður upp á okkur heldur bara þegja og þumbast við því sem okkur ekki passar. Það gera nefnalega mótaðilarnir þegar þeim passar meðan okkar embættismenn eru kaþólskari en páfinn að keyra alla delluna ofan í okkur. Það sem er í lagi getum við tekið upp. 

Íslendingum er best borgið að standa fyrir utan útlenskar sérviskur  í beygjum á agúrkum, orkusölu,flugmálum, barnastólum eða litarefnum. Velja sjálfir hvað þeir vilja nota sem sjálfstætt og upplýst fólk en láta ekki kratana troða fullveldisafsali og fordómum upp á okkur.

Staðreyndin er að The ugly American er ekkert ljótari en hinir sem læðast  í hörðum heimi.


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Júlíus Björnsson

Þjóðverjar fyrir nokkrum árum að mig minnir lentu í einhverju óhappni með fullkomsu njósnastofnum í heimi að þeirra mati.  Meningar arfleið er nokkur þúsund ára og flugumenn hafa alltaf verið til staðar, Franska var smíðuð um 800 til gera t.d. njósurum annrra ríkja erfit fyrir.  EU elítur hefur alltaf öfundað USA. Það milku fleiri góðar hliðar á USA en slæmar. Í Evrópu er bara einblínt á flísina auga USA. Obama var í S-Afríku og sagði að Afríka þyrfti að spyrja sig að því hvort fjárfestar [Kína t.d.] í þeirra grunni skildu eitthvað eftir. USA byggir upp grunna til að geta átt viðskipti í framtíðinni og selt ykkur ipot og flugvélar.   USA eftir stríð borgað hærri taxta en heima élítur, og það fór mjög í taugarnar á þeim.

Júlíus Björnsson, 1.7.2013 kl. 19:43

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Höfundur

Halldór Jónsson
Halldór Jónsson

verkfræðingur, flugdellukall, tennis-og badmintonspilari

-ekki góður í neinu af þessu-

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (6.5.): 4
  • Sl. sólarhring: 6
  • Sl. viku: 76
  • Frá upphafi: 3418316

Annað

  • Innlit í dag: 4
  • Innlit sl. viku: 72
  • Gestir í dag: 4
  • IP-tölur í dag: 4

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Eldri færslur

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband