Leita í fréttum mbl.is

Ritskoðun á Netið?

er það sem SMÁÍS fer fram á við fjarskiptafyrirtækin. Spyrja má sig hvort tölvurisar standi þarna á bak við til þess að verja stöður sína á PC-markaðnum?

Um langan aldur hafa Torrent-síður verið bjarghringur litlamannsins til að komast í kynni við risaforrit heimsins og læra á þau.Þarna er yfirleitt gömul módel á ferð en þjóna menntunarhlutverkinu ágætlega. Nýjustu útgáfur sem atvinnumenn nota eru yfirleitt lengra undan. Menningarhlutverk Torrent-síðanna  er því ótvírætt og stuðla frekar að útbreiðslu afurða þekkingarfyrirtækjanna. Enda vita þau það sjálf og því eru þau með sífelldar uppfærslur sem gera gömlu útgáfurnar úreltar og óbrúklegar í alvöru viðskiptum. Eyðing ólöglegs efnis af tölvu hefur engan tilgang því það er hægt að endurheimta það með lítilli fyrirhöfn.Það er alveg eins hægt að banna mönnum að sjá eða heyra vissa hluti með lagaboði. Hvernig og hver á að greina á milli? Hið stóreflda umhverfiseftirlit Svandísar Svavarsdóttur? 

Annað efni svo sem tónlist og bíómyndir, klám og ofbeldisefni, leikir osfrv. er þarna auðvitað líka og svo eru auglýsingar frá innlendum og erlendum vændisiðnaði í boði. Áður en þetta varð almennt þá voru mikil hugbúnaðarheildsöluhús starfandi, mikið í A-Evrópu, sem seldu þetta allt með niðurhali eða sendu fólki geisladiska gegn vægu gjaldi. Tillögur um lokun á Torrent-síðum er svona álíka vænleg tl árangurs og að segja vatni að renna upp í móti. Eiginlega sprenghlægileg ef hún væri ekki svona raunalega óupplýst um netið. Á að loka á klámiðnaðinn? Eða gjaldeyrismarkaðinn? Á að banna allt niðurhal?  Hvar sér SMÁÍS endirinn?

Það er sama hvort menn séu brenndir á báli fyrir þekkinguna eins og kaþólska kirkjan beitti Bruno eða SMÁÍS haldi að þeir geti bannað þetta eða hitt, þá er sú barátta dæmd til að mistakast. Wikipedia segir sannleikann um menn og málefni ókeypis. Öll þekking er komin í almannaeigu á Internetinu. Kínverski kommúnistaflokkurinn er í sömu stöðu og SMÁÍS því hann getur ekki stöðvað Internetið hvað sem hann reynir. Internetið kemur í veg fyrir að andlýðræðisleg öfl geti blekkt fólk í stórum stíl. Menn hugsi andartak til Hitlers og helfararinnar sem hefði ekki geta orðið á tíma þvílíkra samkipta og nú eru uppi. 

Lifi frjáls fjölmiðlun! Lifi Netið! Niður með heimsku og fáfræði! Niður með óvini mannkyns!

Ritskoðun Netsins er sem betur fer óframkvæmanlega tilgangslaus rétt eins eins og galdrabrennurnar gengu sér til húðar á sinni tíð. 

 


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Ágúst H Bjarnason

Sææ frændi.

Ég er hræddur um að svona bann hafi nánast engin áhrif, því minnsta mál er að nota VPN/PROXY til að komast í kringum svona sýndarhindrun eins og menn eru að velta fyrir sér.

Ágúst H Bjarnason, 3.10.2013 kl. 10:28

2 Smámynd: Halldór Jónsson

Sæll frændi

Ég sé það ekki að menn geti stoppað svona sé ferðaferlsi úr landi og í. Það verður ekki mikið að sækja hér ef til þess kemur eða mikil þörf fyrir nútímann þá. Er það ekki helst Microsoft sem stendur að baki svona upphlaupum, þeir eru þeir einu sem geta gert mönnum skurk þar sem Linuxið hefur ekki þróast nægilega síðustu ár eða hvað finnst þér?

Halldór Jónsson, 3.10.2013 kl. 16:57

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Höfundur

Halldór Jónsson
Halldór Jónsson

verkfræðingur, flugdellukall, tennis-og badmintonspilari

-ekki góður í neinu af þessu-

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (17.5.): 1
  • Sl. sólarhring: 10
  • Sl. viku: 52
  • Frá upphafi: 3418408

Annað

  • Innlit í dag: 1
  • Innlit sl. viku: 50
  • Gestir í dag: 1
  • IP-tölur í dag: 1

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Eldri færslur

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband