Leita í fréttum mbl.is

Auðólfur læknir

Gunnarsson skrifar yfirvegaða og skynsama grein í Morgunblaðið í dag. 

Þó að Auðólfur sé að nálgast þanna aldur að vera dæmdur óhæfur læknir vegna langrar reynslu sinnar þá er vert að velta því fyrir sér sem hann segir. M.a.þetta:

 "......Ég minnist margra einstaklinga sem bjargað var frá bana vegna þess hve fljótt sjúklingarnir komust á spítalann þar sem sérhæft teymi brást hratt og rétt við ástandi þeirra og fáeinar mínútur skildu oft á milli feigs og ófeigs. .....

 

 .... Í umræðunni um flutning sjúkraflugs til Keflavíkur gleymist oft að þótt aksturstími frá Keflavík til Reykjavíkur sé ekki mjög langur við bestu skilyrði getur bæst við hann veruleg töf vegna veðurs og slæmra akstursskilyrða og umferðaröngþveitis í nágrenni Lsp. á álagstímum.

 

 Því hefur verið haldið fram að Vatnsmýrin sé svo dýrmætt byggingarland fyrir Rvk. að flugvöllurinn verði að víkja þótt vitað sé að jarðvegur mýrarinnar sé óheppilegur fyrir byggingar. Það vekur furðu mína sem gamals umhverfissinna að núverandi framverðir umhverfisverndar virðast láta sig litlu skipta þótt lífríki og friðland fugla í mýrinni eyðist og vatnsbúskapur væntanlega breytast þannig að Tjörnin laskist eða hverfi og þar með það lífríki og augnayndi, sem henni fylgir. Meira virðist skipta að koma í veg fyrir lagningu háspennulínu um Sprengisand vegna sjónmengunar þótt þar sé um að ræða afturkræfa framkvæmd sem fáir berja augum miðað við Tjörnina í Reykjavík.

 

 Ég hef áður talað fyrir því að í stað þess að tjasla við gamlar og úreltar byggingar á Landspítalalóðinni og byggja dreift í lágreistu plani, verði nýjum spítala fundinn staður þar sem yrði greiðari aðgangur og unnt að byggja færri en háreistari byggingar en á núverandi stað. Slíkt mundi auðvelda öll samskipti starfsfólks og gera flutninga sjúklinga og vista í lyftum mögulega, í stað þess að aka þeim á vögnum eftir löngum göngum. Nauðsynlegt er að bráðaspítali hafi gott aðgengi og umferðartafir mega ekki hindra komu mikið veikra sjúklinga á spítalann í tæka tíð.

 

Ég tel því að nýr spítali yrði betur staðsettur annars staðar en á núverandi lóð, t.d. í Fossvogi, á Vífilsstöðum eða Keldum. Sennilega yrði viðbygging við spítalann í Fossvogi raunhæfasti kosturinn til að leysa bráðavanda Landspítalans. Í stað þess að taka Vatnsmýrina undir byggingar og fórna þar með lífríki hennar og flugvellinum, mætti við flutning Landspítalans nýta það land sem losnaði og sumar byggingar, sem þar eru, fyrir aðra starfsemi tengda háskólunum og miðbæ Reykjavíkur, t.d. stúdentagarða og hótel. Þaðan gætu stúdentar gengið í skólann og aðrir sótt sér þjónustu í miðbæinn.

 

 Þótt Landspítalinn sé stór vinnustaður er fátítt að starfsfólk hans eigi erindi í miðbæinn. Ýmis önnur starfsemi styður betur við blómlegan miðbæ.

Í mínum huga má líkja skipulagi og umferðaræðum borga við hjarta- og æðakerfi mannslíkamans. Ef æðar þrengjast eða lokast, koma fyrst kvalir og síðan drep í viðkomandi líkamshluta. Ef hjartað stöðvast deyr allur líkaminn. Miðborgar, sem er án miðlægs samgöngukerfis og greiðra umferðaræða, geta beðið svipuð örlög.."

 

Þarna kemur fram verkfræðileg hugsun í logistics sem menn mættu taka eftir þar sem þetta kemur frá gömlum lækni með reynslu. Þetta sem Auðólfur nefnir með lárétta og lóðrétta flutninga innan spítala er auðskilið öllum öðrum en borgaryfirvöldum  í Reykjavík.

 

Ég fullyrði samt fyrir ólæknandi Kvosarsinna að að sambýli 20 hæða turns á Landspítalalóðinni  og aðflugs að norður- suður brautinni verður hið ágætasta og ekkert öðruvísi en að fljúga ekki á Hallgrímskirkju. Og að fljúga á Alþingishúsið er ekkert öðruvísi slys en að fljúga á eitthvað annað hús eða að jafnvel fá loftstein eða sprengjubrot  í hausinn í Austurstræti. Lífið er hættulegt hvernig sem á það er litið þó maður reyni sitt besta til að forðast hættur.

 

Það er fengur í svo frábærri grein sem Auðólfur Gunnarsson skrifar. Við flugumst á ungir strákar í skógræktinni í gamla daga og vorum samverkamenn og perluvinir í mörg ár. Það má treysta Auðólfi Gunnarssyni til að hafa vit á því sem hann talar um, hvort sem það er flugvallarmál, spítalabyggingar eða náttúruvernd. Hann fer ekki með fleipur karlinn sá.

 


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Sigurður Sigurðsson

Það ætti að kanna þennan vinkil á byggingu Landspítalans áður en haldið er lengra

Sigurður Sigurðsson, 7.10.2013 kl. 11:00

2 Smámynd: Ómar Geirsson

Blessaður Halldór.

Þetta með fleipurnar ferð þú heldur ekki með í þessari grein.

Kveðja að austan.

Ómar Geirsson, 7.10.2013 kl. 11:22

3 Smámynd: Ágúst H Bjarnason

Ég las þessa góðu grein Auðólfs með kaffisopanum í morgun og var sammála hverju orði.

Menn hljóta að taka mark á skynsamlegum skrifum hans, enda er Auðólfur með langa reynslu vegna starfa erlendis og á Íslandi, og er líklega mikill náttúruunnandi síðan hann vann hjá skógræktinni í gamla daga, þar sem menn kynntust alvöru náttúruvernd af eigin raun.

Ágúst H Bjarnason, 7.10.2013 kl. 11:27

4 Smámynd: Halldór Jónsson

Takk fyrir þetta Sigurður. Mér finnst ég alveg sjá það fyrir mér að lyftur séu hraðvirkari en hlaupahjól.

Ómar, aflvaldur Austurlands, takk fyrir undirtekt.

Halldór Jónsson, 7.10.2013 kl. 11:28

5 Smámynd: Þorkell Guðnason

Grein Auðólfs læknis var rökföst og ánægjuleg tilbreyting frá froðusnakki samfylkingarlæknisins sem ræður Borginni.

Þorkell Guðnason, 7.10.2013 kl. 12:59

6 Smámynd: Rúnar Már Bragason

Sammála þessu með staðsetningu að núverandi Landspítalalóð er allra versti kostur. Hins vegar tel ég betri kost þegar komið er upp úr Ártúnsbrekkunni að Keldum því núverandi gatnagerð er lang best hönnuð þar og nóg rými. Held að Borgaspítalalóðin sé líka orðin slæmur kostur vegna búið að þrengja of mikið að staðnum. Vífilstaðir væri betri kostur.

Ég er ósammála því að byggja hátt hús. Flöskuhálsinn væri þá ekki umferð heldur lyfturnar. Miklu nær væri að hanna húsið eins og sól þar sem innkoman væri í hringnum og út frá því væru stuttir gangar með mk. tveimum lyftum hver. Auðvelt væri að byggja ofan á slíkar einingar. Mun skilvirkara en ein há bygging.

Rúnar Már Bragason, 7.10.2013 kl. 21:37

7 Smámynd: Halldór Jónsson

Keli, ég hef meira álit á Auðólfi sem lækni en honum Atterdag. Hefur hann nokuð læknað lengi? HAnn er alltaf að tala við Gnarrinn og það getur varla farið saman við vísindamennsku.

Rúnar, ég get alveg séð fyrir mér að þetta form gæti virkað og þá líka þótt það væri margar hæðir. Einn turn eins og Borgó er kannski ekki sá hentugasti. En svona hjól þar sem lyftum væri raðað í hringinn og stuttir gangar, það líst mér vel á. Er ekki til einhversstaðar svona spítali?

Halldór Jónsson, 7.10.2013 kl. 23:38

8 Smámynd: Rúnar Már Bragason

Hef ekki þekkingu á hvar þetta hefur verið gert en heyrði af þessu í samtali og þá fylgdi ekki hvaðan það kom.

Hugmyndin er samt greinilega þekkt og með smá google þá fann ég þetta sem dæmi: http://redevelopment.northlanddhb.org.nz/index.php/plans-maps/plans-stage1a/

Rúnar Már Bragason, 8.10.2013 kl. 00:23

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Höfundur

Halldór Jónsson
Halldór Jónsson

verkfræðingur, flugdellukall, tennis-og badmintonspilari

-ekki góður í neinu af þessu-

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (17.5.): 1
  • Sl. sólarhring: 10
  • Sl. viku: 52
  • Frá upphafi: 3418408

Annað

  • Innlit í dag: 1
  • Innlit sl. viku: 50
  • Gestir í dag: 1
  • IP-tölur í dag: 1

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Eldri færslur

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband