26.11.2013 | 13:13
Vinstri-hægri?
hver er eiginlega munurinn?
Ungir kjósendur virðast í auknum mæli vera algerlega hlutlausir í þessum málum. Þeir trúa ekki á að stjórnmálamenn eða aðrir opinberir starfsmenn geri eitt eða neitt fyrir þá. Hvorki vilji né geti. Milli kosninga hugsi þeir bara mest um að skara eld að eigin kjaraköku. Þeim sé í grunninn slétt sama um pródúktið sem þeir skila því það eru þeirra eigin kjör og upphefð sem skipta mestu máli.
Það er mála sannast að deilt er um hvort pródúktin eða framleiðslan séu átættanleg hvort sem horft er til skólanna eða opinbera kerfisins á mörgum sviðum.
Arnar Sigurðsson veltir fyrir sér þessum mun og því í hvaða mæli Ísland sé fjötrað í kerfi áætlunarbúskapar og sósíalisma.
Grípum niður í grein Arnars:
"Flestir, aðrir en ráðamenn Norður-Kóreu, þekkja skipbrot miðstýrðs áætlunarbúskapar.
Hér á landi er útbreiddur sá misskilningur að einungis rauðliðar í VG aðhyllist miðstýringu og ríkisforsjárhyggju. Því miður virðist hinsvegar þverpólitísk sátt ríkja um áætlunarbúskap í mikilvægum þjónustugreinum þar sem þó væri full ástæða til að innleiða umbætur til að bæta skilvirkni og þjónustu.
Rétt eins og í Sovétríkjunum sálugu eru allir óánægðir sem hlut eiga að máli. Læknar og sjúklingar eru óánægðir, en þrátt fyrir fjársveltið sligast skattgreiðendur undan kostnaði. Kennarar eru einnig óánægðir með bág kjör og nemendur mælast sífellt verr í alþjóðlegum könnunum, þrátt fyrir hærri rekstrarkostnað skólakerfis. Bændur eru síður en svo vel haldnir þrátt fyrir hátt matvælaverð og miklar niðurgreiðslur skattgreiðenda.
Staðnaðar og óskilvirkar stofnanir eru ekki ávinningur neins heldur allra tap, pólitísk úthlutun gæða gerir það hins vegar að verkum að enginn einn hópur er reiðubúinn að gefa hagsmuni sína eftir af ótta við að aðrir hópar muni ekki gera slíkt hið sama. Þannig styðja bændur niðurgreiðslur sem eru hluti af kerfi sem heldur þeim í fátæktargildru og margir læknar styðja áframhaldandi ríkisrekstur heilbrigðiskerfisins þrátt fyrir að óhagkvæmni þess komi niður á kjörum þeirra. Þegar stjórnmálamenn heimila sjálfum sér að ráðast í verklegar framkvæmdir er afleiðingin svipuð og þegar unglingum eru réttir bíllyklar og brennivín....
......Öðru hvoru heyrast kvartanir vegna afleiðinga þess að framkvæmdir fari úr böndum, verkfallshótun kennara, uppsagnir lækna, gjaldþrot Byggðastofnunar og Íbúðalánasjóðs og svo mætti lengi telja. Aldrei virðist hinsvegar ná upp á yfirborðið greining á orsök og afleiðingu.
Sú árátta sumra einstaklinga að vilja og telja sig þess umkomna að miðstýra framboði og verði á; mjólk, kjöti, kennurum eða læknum, gerir þá hina sömu hinsvegar fullkomlega vanhæfa til að fara með slíkt vald. ....
.... má nefna áætlun um náttúrupassa sem ráðherrann vonast eftir að ný stofnun í hennar kjördæmi sjái um. Slíkt fyrirkomulag getur þó aldrei verið annað en skattur, en til að fyrirbyggja óánægju kjósenda og forðast mismunun á grundvelli þjóðernis, er gert ráð fyrir að náttúrupassi fyrir alla Íslendinga verði greiddur af ríkissjóði. Að ríkissjóður greiði skatta fólks er klárlega ný vídd í afvegaleiddum stjórnmálum á heimsvísu...
..... og ætlar galvösk að innleiða lög um 3,5% íblöndun matarolíu og baneitraðs tréspíra í bílaeldsneyti landsmanna og leggja þannig sitt lóð á vogarskálar til hækkunar matvælaverðs í heiminum. Ráðherrann varðar ekkert um varnaðarorð um að slíkt geti valdið tjóni á bílvélum, né heldur að meðaleyðsla bíla muni aukast í réttu hlutfalli við íblöndunina.
Fjármálaráðherra yppir sömuleiðis öxlum yfir því að ríkissjóður verði af 800 m.kr. skatttekjum og að innkaupaverð á olíu hækki úr $900 á tonn í $1.600 fyrir lífdísil! Þess má jafnframt geta að umrætt lagafrumvarp var samið af starfsmanni Carbon Recycling en það fyrirtæki er einmitt staðsett í heimakjördæmi Ragnheiðar og er eini aðilinn sem ætlað er að hagnast á þessari breytingu....."
Höfum við hugleitt hvernig efnahag Íslendinga er í rauninni stýrt? Launakjörum í landinu er eiginlega miðstýrt af opinberum starfsmönnum sem taka allar ákvarðanir. Viðleitni kjörinna fulltrúa er að skera niður. Ef þú vilt fækka folki þá ertu hægri öfgamaður.Ef þú vilt skera niður fjárfestingar og innkaup þá ertu göfugur félagshyggjumaður sem er að slá skjalborg um störfin.
Landbúnaðnum er stýrt með tilskipunum, bensínverðinu er stýrt með tilskipunum, vínverðlagi og samræmdri vaxtastefnu bankanna er stýrt með tilskipunm þannig að engin samkeppni ríkir í raun á bankamarkaði. Og merkilegt er svo að stjórnmálaflokkar virðast ekki skynja þetta ástand og tala um markaðshagkerfi. Er það nokkur furða að grínflokkar eigi greiða leið til valda? Björt framtíð og Píratar sópa að sér fylgi án þess að nokkur hafi hugmynd um hvaða afstöðu þetta fólk hefur til eins eða neins?
Mér fannst þessi grein Arnar athyglisverð sem innlegg í þjóðfélagsheimspekina og þokuna sem þyrlað er upp um flest einföld mál.
Flokkur: Stjórnmál og samfélag | Breytt s.d. kl. 13:41 | Facebook
Heimsóknir
Flettingar
- Í dag (6.2.): 0
- Sl. sólarhring: 7
- Sl. viku: 75
- Frá upphafi: 0
Annað
- Innlit í dag: 0
- Innlit sl. viku: 42
- Gestir í dag: 0
- IP-tölur í dag: 0
Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar
Eldri færslur
- Maí 2022
- Apríl 2022
- Mars 2022
- Febrúar 2022
- Janúar 2022
- Desember 2021
- Nóvember 2021
- Október 2021
- September 2021
- Ágúst 2021
- Júlí 2021
- Júní 2021
- Maí 2021
- Apríl 2021
- Mars 2021
- Febrúar 2021
- Janúar 2021
- Desember 2020
- Nóvember 2020
- Október 2020
- September 2020
- Ágúst 2020
- Júlí 2020
- Júní 2020
- Maí 2020
- Apríl 2020
- Mars 2020
- Febrúar 2020
- Janúar 2020
- Desember 2019
- Nóvember 2019
- Október 2019
- September 2019
- Ágúst 2019
- Júlí 2019
- Júní 2019
- Maí 2019
- Apríl 2019
- Mars 2019
- Febrúar 2019
- Janúar 2019
- Desember 2018
- Nóvember 2018
- Október 2018
- September 2018
- Ágúst 2018
- Júlí 2018
- Júní 2018
- Maí 2018
- Apríl 2018
- Mars 2018
- Febrúar 2018
- Janúar 2018
- Desember 2017
- Nóvember 2017
- Október 2017
- September 2017
- Ágúst 2017
- Júlí 2017
- Júní 2017
- Maí 2017
- Apríl 2017
- Mars 2017
- Febrúar 2017
- Janúar 2017
- Desember 2016
- Nóvember 2016
- Október 2016
- September 2016
- Ágúst 2016
- Júlí 2016
- Júní 2016
- Maí 2016
- Apríl 2016
- Mars 2016
- Febrúar 2016
- Janúar 2016
- Desember 2015
- Nóvember 2015
- Október 2015
- September 2015
- Ágúst 2015
- Júlí 2015
- Júní 2015
- Maí 2015
- Apríl 2015
- Mars 2015
- Febrúar 2015
- Janúar 2015
- Desember 2014
- Nóvember 2014
- Október 2014
- September 2014
- Ágúst 2014
- Júlí 2014
- Júní 2014
- Maí 2014
- Apríl 2014
- Mars 2014
- Febrúar 2014
- Janúar 2014
- Desember 2013
- Nóvember 2013
- Október 2013
- September 2013
- Ágúst 2013
- Júlí 2013
- Júní 2013
- Maí 2013
- Apríl 2013
- Mars 2013
- Febrúar 2013
- Janúar 2013
- Desember 2012
- Nóvember 2012
- Október 2012
- September 2012
- Ágúst 2012
- Júlí 2012
- Júní 2012
- Maí 2012
- Apríl 2012
- Mars 2012
- Febrúar 2012
- Janúar 2012
- Desember 2011
- Nóvember 2011
- Október 2011
- September 2011
- Ágúst 2011
- Júlí 2011
- Júní 2011
- Maí 2011
- Apríl 2011
- Mars 2011
- Febrúar 2011
- Janúar 2011
- Desember 2010
- Nóvember 2010
- Október 2010
- September 2010
- Ágúst 2010
- Júlí 2010
- Júní 2010
- Maí 2010
- Apríl 2010
- Mars 2010
- Febrúar 2010
- Janúar 2010
- Desember 2009
- Nóvember 2009
- Október 2009
- September 2009
- Ágúst 2009
- Júlí 2009
- Júní 2009
- Maí 2009
- Apríl 2009
- Mars 2009
- Febrúar 2009
- Janúar 2009
- Desember 2008
- Nóvember 2008
- Október 2008
- September 2008
- Ágúst 2008
- Júlí 2008
- Júní 2008
- Maí 2008
- Apríl 2008
- Mars 2008
- Febrúar 2008
- Janúar 2008
- Desember 2007
- Nóvember 2007
- Október 2007
- September 2007
- Ágúst 2007
- Júlí 2007
- Júní 2007
- Maí 2007
- Apríl 2007
Bloggvinir
- ghe13
- sigurjonth
- andrigeir
- annabjorghjartardottir
- ansigu
- agbjarn
- armannkr
- asdisol
- baldher
- h2o
- bjarnihardar
- dullur
- bjarnimax
- zippo
- westurfari
- gattin
- bryndisharalds
- davpal
- eggman
- greindur
- bjartsynisflokkurinn
- elfarlogi
- eeelle
- sunna2
- ea
- fuf
- fhg
- vidhorf
- gerdurpalma112
- gilsneggerz
- gudni-is
- lucas
- zumann
- gp
- gun
- topplistinn
- tilveran-i-esb
- skulablogg
- gustafskulason
- gustaf
- heimssyn
- diva73
- helgi-sigmunds
- hjaltisig
- minos
- hordurhalldorsson
- astromix
- fun
- jennystefania
- johanneliasson
- johannvegas
- jonatlikristjansson
- fiski
- jonl
- jonmagnusson
- jonlindal
- bassinn
- jonvalurjensson
- jvj
- thjodarskutan
- juliusbearsson
- katagunn
- kje
- ksh
- kristinn-karl
- kristinnp
- kristjan9
- loftslag
- altice
- ludvikjuliusson
- maggij
- magnusthor
- mathieu
- nielsfinsen
- omarbjarki
- huldumenn
- svarthamar
- pallvil
- peturmikli
- valdimarg
- ragnarb
- samstada-thjodar
- fullveldi
- siggus10
- sisi
- siggisig
- ziggi
- siggith
- stjornlagathing
- pandora
- spurs
- kleppari
- saethorhelgi
- tibsen
- ubk
- valdimarjohannesson
- skolli
- valurstef
- vilhjalmurarnason
- vey
- postdoc
- thjodarheidur
- icerock
- steinig
- thorsteinnhelgi
- icekeiko
Athugasemdir
Þessar hægri og vinstri lita-flokkanir eru orðnar úreltar.
=Það er hægt að vinna með alla liti á bæði jákvæðan & neikvæðan hátt.
Ef að ég er fylgjandi ESB; hvaða lit á ég þá að flagga?
ESB fáninn er blár.
Svo eru til allskyns mál sem eru þvert á flokka og rugla málið.
Jón Þórhallsson, 26.11.2013 kl. 13:58
Á Íslandi eru allir flokkarnir til vinstri. Bara mislangt. Munurinn liggur mest í hve miklar eignir einstaklingar meiga eiga.
Þetta hefur haldið landinu niðri síðan... alltaf.
En, fólk vill víst hafa þetta svona, vegna þess að það er svo göfugt.
Ásgrímur Hartmannsson, 26.11.2013 kl. 17:17
Ef ég væri t.d. mikill jafnaðarmaður sem væri mikið á móti giftingum samkynhneygðra= Hvað mynduð þið ráðleggja mér að kjósa?
Jón Þórhallsson, 26.11.2013 kl. 17:58
Jón ég mundi segja að þú ættir að kjósa Pírataflokkinn, þeir eru á móti öllu.
Kveðja frá Houston.
Jóhann Kristinsson, 26.11.2013 kl. 18:46
Jón, kjóstu samfylkinguna þá. Þegar lesbían hættir í flokknum þá verður hjúskapur samkynhneigðra bannaður aftur af þeim.
Ásgrímur Hartmannsson, 26.11.2013 kl. 20:16
30 ára rekstrarkostaður í grunni á vera fastur og fylgja raunvirði PPP þjóðartekna því þær eru reiknað af Worldbank og AGS og öll Markaðaríki samþykkja sem réttar. Síðan leggur Ríkið hlutfallslega jafna samgrunntryggingar skatta á útborganir til allra einstaklinga á hverju ári , 35% lagt á í USA og Svipað í þýskalandi. Söluskattar eftir eðli geira , borga opinbera þjónustu við þá. Þreps innkomu skattar borg rekstur stjórasýslustiga [3 í þýskalandi] og klippa af verðbólgu. þetta þurfa Íslendingar að læra. Skuldir á þýsku fyrirtækjum eftir fyrri heimstyjöld öllu reiknlegri verðbólgu þar þetta er staðreynd. Ekki almennir starfsmenni í grunni.
þrepskattur veitir ekki aflátta af sköttum erlendis eins og hér, þar er aflættir að heildar innkom með með hverju þrepi.
þannig að sá með 10.000.000 komu að borga kannské 5.0% af 4.000.000 þar sem skatta höfuðstólsafsláttur er 6.000.0000 kr. það er persónutengt erlendis hverjir hala inn 10 milljónum . Íslendingar 100% skilja ekki uppensku frekar en 90 % útlendinga. Ríki gefa ekki afslátt fyrir fram erlendis. og mismuna ekki persónum . Eins flestir ráðherra hér halda fram ó beint. Í USA kostar það einstakling 1.750.000 að hala inn 10.000.000 kr. af markaði í velferða skatta. Starfsmanna höldur verður leggja 3.500.000 kr. á 10.000.000 kr.útborgun til starfsmanns til fjármagn almanntryggingar í USA.
Ríkið ákveður lámarks útborgun á tíma. Vinnuveitendur eru allir jafn að lögum og semja ekki um skatta við einn eða neinn. Skattar leggjast hlutfallslega jafnt á alla. Skattar er til að uppfylla lög. Íslendingar eru í skattmálum tossar. Langt undir meðalgreind þar. Þingmenn hinsvegar samþykkja ekki lög sem kosta aukna skatta sem mismuna . Í Norður Kóreu þá getur stjórasýslan verið tossar því þar skipa rök og mannréttindi engu máli. Ísland er tossa ríki í skatta málum og þess vegna komma ríki. það leggur 100% skatta á úrborganir til starfsmanna hér og þá stóran hluta í varasjóði sumra vinnuveitenda[ lífeyrisjóðir fjármagn með bréfa kaupum. Veitir 50.000 kr. afslátt af velferðarstofni [í öðrum ríkjum]í af fyrstu 150.000 kr. útborguðum. Fjölgi 75% [150 stundir á mán] starfsmönnum á lámarkstöxtum þá minnar innkoma heilsu og velferðakerfisins hér. Þetta er reiknalegt fyrirfram sem sannar að sér í lagi Hagfræðingar hér frá 1903 er lágstéttar tossar að upplagi. Raunvirði lækkar ef gæði vöru og þjónustu lækka , þegar Worldbank reiknar raunvirði sölu veltu vsk. í ríkjum heims. það er ekki hægt að hækka raunvirði PPP með arði, vöxtum og sköttum. Summa af þessu er allt með sýna alþjóðlegu raun meðal prósentu.
Júlíus Björnsson, 26.11.2013 kl. 22:47
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.