Leita í fréttum mbl.is

40 kærur á lögregluna !

fyrir harðræði við handtökur vistola drukkins eða dópaðs skríls ganga fram af mér.

Sá sem ekki vill sæta handtöku hefur ekkert leyfi til að verjast henni. Ekki með neinum hætti. Hann skal hlýða fyrirmælum lögreglu. Hann má ekki svara handtöku með ofbeldi eða kjafthætti. Lögreglan á að yfirbuga óróaseggi. Með illu ef ekki gengur með góðu.

Ég man í Þýskalandi að Íslendingar sem ég þekkti fóru eitt sinn fullir að brúka kjaft við lögguna. Þeir hættu því snarlega þegar pólarnir drógu upp skammbyssurnar. Viðvörunarskot í gegnum höfuðið var ekki óþekkt fyrirsögn í Bild til að ófrægja lögregluna og birta myndir af "dauðaskyttum". 

Ef að sú stefna á að verða hér uppi að lögreglumenn megi ekki taka á skrílnum sem allstaðar veður uppi blindfullur og vitlaus þá verður afleiðingin sú að við fáum ekki hæfa lögreglumenn. Þá verðum kannski að ráða pakistanska löggæslusveitir eins og emírarnir hafa í Mið-Austrinu. Það vita þar allir menn að þeim körlum er nákvæmlega sama hverja þeir drepa eða slasa. Tala ekki einu sinni mál innfæddra hvað þá að þeir hlusti  á viðfangsefnin. Þeir bara framfylgja skipunum sínum.

Lögreglumaður á að vera friðhelgur við skyldustörf. Það er fáránlegt þegar gula pressan okkar veltir sér upp úr því að einhver fyllibyttan verði fyrir hnjaski þegar almannaheill krefst þess að hún sé fjarlægð. Ofbeldi gegn lögreglu á að kosta skilyrðislaust fangelsi. Strax.

40 kærur á lögregluna er fáránleg misnotkun á réttarkerfinu. 

 


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Jóhann Kristinsson

Hvenær var þetta Halldór 1930 og eitthvað sem þessir íslendingar fóru að rífa kjaft við þýsku lögguna?

þegar þú varst í verkfræði námi í þýskum háskóla? :>)

Kveðja frá Houston

Jóhann Kristinsson, 19.12.2013 kl. 05:04

2 Smámynd: Halldór Jónsson

Ég bjó þarna 1957-62

Halldór Jónsson, 19.12.2013 kl. 21:07

3 Smámynd: Halldór Jónsson

Hvað gerist ef þú ferð fullur að kássast upp á lögguna í Houston? Þorir hún ekki í þig?

Halldór Jónsson, 19.12.2013 kl. 21:07

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Höfundur

Halldór Jónsson
Halldór Jónsson

verkfræðingur, flugdellukall, tennis-og badmintonspilari

-ekki góður í neinu af þessu-

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (11.6.): 5
  • Sl. sólarhring: 7
  • Sl. viku: 30
  • Frá upphafi: 3420902

Annað

  • Innlit í dag: 3
  • Innlit sl. viku: 25
  • Gestir í dag: 3
  • IP-tölur í dag: 3

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Eldri færslur

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband