Leita í fréttum mbl.is

Jón Bjarnason

ætti manna best að vita hvað fram fór milli Íslands og ESB og hvað var rætt í ríkisstjórninni þegar svikin voru framin sem voru auðvitað mest í því fólgin að sækja um aðild að ESB án þess að spyrja þjóðina.

Það eru svikin sem fólk ætti að vera að mótmæla á Austurvelli á laugardögum. Það er bara af því að fólk veit að siferðisstig VG og Steingríms J. er með þeim hætti að það gerir enginn kröfu til neins af þessu fólki. Það hefur aldrei skeytt neinu um skömm né heiður og fer varla að taka upp á því núna þegar stjórnin er farin og fnykurinn einn eftir. Hinsvegar ætti þetta lið að hætta að gera gys að greindarstigi almennings með því að klifa á lygunum aftiur og aftur. Fólkið er hætt að hlusta. Það bíður hinsvegar eftir að núverandi ríkisstjórn taki sig meira saman í andlitinu og fari að taka til baka allar skattahækkanirnar og mætti gjarnan byrja á þeirri vitlausustu sem var sykurskatturinn.

Jón Bjarnason var rekinn úr ríkisstjórninni fyrir að þora að standa á rétti Íslands og láta ekki landsöluliðið beygja sig. Hann skrifar svo á blogg sitt:

"

"Undirskriftir á fölskum forsendum

Það er í sjálfu sér sorglegt að til séu þeir íslenskir stjórnmálamenn í dag sem eru reiðubúnir að framselja  fullveldið og forræði þjóðarinnar á fiskveiðiauðlindinni. Samningaferlið við ESB er stopp, varð það strax  árið 2011 þegar Evrópusambandið neitaði að opna á samningaviðræður um sjávarútvegsmál og lagði fram harðar og óaðgengilegar  kröfur fyrir viðræðum um landbúnað. Alþingi hafð sett mjög ákveðin skilyrði, sem fylgdu umsókninni, þröskulda sem ekki mætti stíga yfir.   ESB neitaði í raun  að halda samningaviðræðum áfram  nema að Íslendingar féllu frá þeim fyrirvörum sem Alþingi hafði sett. Þetta þekkti ég mjög vel sem ráðherra þessara mála á þeim tíma.

Fyrirvarar Alþingis skýrir

Þá verði forræði þjóðarinnar tryggt yfir sjávarauðlindinni og þannig búið um hnútana að framlag sjávarútvegsins til efnahagslífsins haldist óbreytt".

Og  áfram segir í lok greinargerðar Alþingis frá 2009:

 "  Á hinn bóginn leggur meiri hlutinn áherslu á að ríkisstjórnin fylgi þeim leiðbeiningum sem gefnar eru með áliti þessu um þá grundvallarhagsmuni sem um er að ræða.  Að mati meiri hlutans verður ekki vikið frá þeim hagsmunum án undanfarandi umræðu á vettvangi Alþingis og leggur meiri hlutinn til að orðalagi þingsályktunartillögunnar verði breytt með hliðsjón af þessu".

Svar ESB hefur alltaf verið ljóst

„Ríki geta ekki staðið fyrir utan sameiginlega sjávarútvegsstefnu Evrópusambandsins gangi þau í sambandið“ sagði  Thomas Hagleitner  fulltrúi stækkunardeildar Evrópusambandsins á þingmannfundi í Hörpunni nýlega. Og það er ekki í fyrsta sinni sem fulltrúar ESB árétta þá kröfu sína.

Þannig er staðan. Þetta ætti samninganefndarmaðurinn Þorsteinn Pálsson sem nú hefur hvað hæst  af ESB sinnum að vita manna best. Eða hversvegna lagði ESB aldrei fram rýniskýrslu sína um sjávarútveg sem var forsenda frekari viðræðna? Þorsteinn Pálsson hefur  sjálfur ítrekað sagt að ríkisstjórn sem er andvíg inngöngu í sambandið geti ekki leitt innlimunarferlið í samningum.

Undirskriftir á fölskum forsendum

Þeir sem nú kalla eftir áframhaldandi samningum og heimta um það þjóðaratkvæðagreiðslu eiga  að hafa kjark til  að segja beint:  við erum reiðbúnir að fórna forræði okkar á auðlindunum, við viljum bara fá ganga í Evrópusambandið og undir það ertu beðinn að skrifa. Vinsældir eða óvinsældir ríkisstjórnarinnar í öðrum málum eiga ekki að blandast þar inn í.

Það er mjög ódrengilegt og óheiðarlegt að kalla fólk til liðs við sig á fölskum forsendum og heimta þjóðaratkvæðagreiðslu um eitthvað sem ekki er fyrir hendi.  Alþingi setti fyrirvara og þá verður þingið fyrst að afturkalla ef halda á áfram.

Þessi ríkisstjórn sem nú situr og meirihlutinn sem hún styðst við var kosin  til að hætta aðildarviðræðunum og að Alþingi  afturkalli umsóknina. Við það ber henni að standa. "

Svo stendur Þorsteinn Pálsson á torgum og hrópar um stærstu svik sögunnar að vilja hætta þessari vitleysu. Sem Landsfundur ályktaði að gera. Hvað er maðurinn að fara eiginlega? Eða þeir aftaníossarnir hans sem gala bakraddirnar og tala núna um að stofna nýjan flokk? 

Jón Bjarnaon vissi mætavel hvað klukkan sló í þessum aðlögunarviðræðum þó að samráðherrarnir hans lygju að þjóðinni hver um annan þveran og þá Össur fremstur meðal jafningja.


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Anna Sigríður Guðmundsdóttir

Halldór. Jón Bjarnason segir það sem hann meinar, og meinar það sem hann segir. Hann er ómetanlegur og traustvekjandi persónueiginleiki.

Hugsjón krefst þess að fólk standi og falli með sinni raunverulegu sannfæringu, sama hvað það hefur í för með sér. Peningar og völd eiga ekkert sameiginlegt með réttlætis/friðarhugsjón. 

Við lifum á iðn-tæknibyltingar-breytingartímum, sem verður að fara varlega í gegnum. Annars endurtekur siðlaus heimsstyrjöldin sig, og það eigum við, sem siðvitsmunalega bornar og menntaðar manneskjur að skilja!

Það er ekki, og hefur aldrei verið takmark Jóns Bjarnasonar, að svíkja heiðarlegan almenning/fyrirtæki á Íslandi. Hann fórnaði völdum fyrir almenningshagsmuni.

En það þykir víst ekki nógu gáfulegt á Íslandi og í EES/ESB, að fórna völdum/stólum, fyrir hugsjónir og kosningaloforð. En það gerði reynslumikill Jón Bjarnason, og fær ekki þakkir fyrir, frá banka/lífeyrissjóðs-stjórasjálftöku-ræningjunum.

Skömm þeirra valdagráðugu, siðblindu og bankasjálftöku-afbrotanna/kvenna, sem hröktu Jón Bjarnason úr ríkisstjórn er mikil.

Það er tímabært að átta sig á, að gúmmítékka-bankaræningjastjórnendur stjórna heiminum í dag.

M.b.kv. 

Anna Sigríður Guðmundsdóttir, 1.4.2014 kl. 19:16

2 Smámynd: Anna Sigríður Guðmundsdóttir

...afbrotamanna/kvenna...

Anna Sigríður Guðmundsdóttir, 1.4.2014 kl. 19:20

3 Smámynd: Elle_

Halldór, ég er sammála megninu sem þú skrifar, en þegar þú skrifaðir um VG: Það hefur aldrei skeytt neinu um skömm né heiður - - - held ég ekki að þú hafir meint allt fólkið frá stofnun VG, en mestmegnis pakkið sem vann fyrir Jóhönnu og Össur og co.

Elle_, 2.4.2014 kl. 00:55

4 Smámynd: Elle_

Það sést líka á hvað þú skrifar um Jón.

Elle_, 2.4.2014 kl. 01:02

5 Smámynd: Halldór Jónsson

Já réttlætið á nú víst víðast erfitt uppdráttar Anna Sigríður mín. Mannskepnan er rándýr og kvikindi í sér.

Elle mín

Var ekki síðasta ríkisstjórna eina skiptið þar sem VG fólk komst til ranverulegra áhrifa. Var þetta ekki áður mestan part rövlandi sérvitringaflokkur.

En Steingrímur komst áður einu sinni að kötlunum í gegnum VG. Þá lögleiddi hann framsal og veðsetningu kvótans, atriðið sem varð að þeim eldi sem er í dag og kklýfur þjóðina. Icesave I,II og III og bankagjafirnar til vogunarsjóðanna, Landsbankadellan, Sjóvá, Spk,Byr,Saga Capita, VBS og ESB umsóknin og allir þeir þekkstusu skandalarnir eru frá seinna valdatímabili hans sem vonandi verður það síðasta.

Halldór Jónsson, 2.4.2014 kl. 20:10

6 Smámynd: Elle_

Halldór, ég var ekki í landinu og var ekkert einu sinni að pæla í íslenskum röflandi flokkum.  Var svo vitlaus skömmu eftir að ég kom að halda að ég hefði himin höndum gripið heiðarleikann í Steingrími mikla og VG, miðað við orðaflaum hans (nú er Kata litla komin í hans spor).  Það voru hrikaleg mistök.

Elle_, 3.4.2014 kl. 00:44

7 Smámynd: Elle_

Það skal samt koma fram að ég dæmi ekki alla sem voru í VG, og þar með talinn Jón.

Elle_, 3.4.2014 kl. 00:50

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Höfundur

Halldór Jónsson
Halldór Jónsson

verkfræðingur, flugdellukall, tennis-og badmintonspilari

-ekki góður í neinu af þessu-

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (3.5.): 5
  • Sl. sólarhring: 11
  • Sl. viku: 63
  • Frá upphafi: 3418282

Annað

  • Innlit í dag: 5
  • Innlit sl. viku: 63
  • Gestir í dag: 5
  • IP-tölur í dag: 5

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Eldri færslur

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband