Leita í fréttum mbl.is

En ein sönnun

þess að EES aðildin hefur fært okkur fleiri flækjur en friðsæld er vandræðagangurinn með Póstinn.

Munið þið eftir tímunum þegar maður gat treyst Póstinum til allra verka. Dreifa innrituðum blöðum í hvert hús, senda pakka á milli landshorna, senda ábyrgðarbréf, fjölpóst, jólapóst, pakka til útlanda.

Alveg eins og þegar Rarik var skipt upp í tvennt vegna einhverrar dellu frá ESB. Töföldun flækjustigsins, tvöföldun kostnaðar í innheimtu.

Sama vitleysan er að endurtaka sig fyrir augunum á okkur með Póstinn. Nú á að hleypa hverjum sem er í að meðhöndla mesta trúnaðarmál borgarans: Bréfleyndarmálið. Má kannski segja að friðhelgi einkalífsins sé löngu orðinn brandari á Islandi eftir að Skattinum leyfiðist að beintengja sig við alla innlánsreikninga í íslenskum bönkum. Maður brosir þegar hreinir reyfarar neita að svara spurningum dómara á grundvelli bankaleyndar. Hún er í raun ekki til í lýðveldinu Íslandi. Og þegar sá þykir mestur sem mestu getur lekið af ríkisleyndarmálum Íslands þá skín kratasólin í hádegi að mínu mati.

Borgarinn er hvergi lengur óhultur. Tölvupóstum er stolið og þjófunum leyfist að græða á verknaðinum. Nú á að eyðileggja Póstinn sem öruggan miðil. Búið er að eyðileggja Símann með því að selja hann í hendur nýrra aðila meðan fyrri kaupendur eiga að dúsa í tugthúsum. Ég veit ekki hver á koparnetið í dag sem hann afi minn tók þátt í að byrja byggingu á í byrjun síðustu aldar. hann hefði aldrei getað ímyndað sér hvernig kratisminn myndi fara  með Póst og Síma og selja í ræningjahendur.  

Póstur og Sími eins og Vegagerð, Lögregla, Her, Landhelgisgæsla, Yfirstjórn menntamála og heilbrigðismála eiga að vera undir pólitískri stjórn og heyra undir ríkið. Það á auðvitað að bjóða út eintaka þætti undir eftirliti eftir því sem hægt er. En að lepja upp allt Evrópubullið gagnrýnislaust hefur ekki fært okkur annað en aukinn kostnað og flækjustig.

Það er til skammar hvernig þingmenn hafa látið teyma sig á asanaeyrunum til að samþykkja hvað sem frá EES og ESB kemur þegar þeir viðurkenna að þeir séu of vitlausir til að skiljai hvað þeir eru að samþykkja.

Tökum okkur heldur Bandaríkin til fyrirmyndar  um flesta hluti og rekum öfluga póst- og grunnsímaþjónustu.  Við getum haldið því sem þegar er á komið úr þessu EES en það er komið gott. Segjum samningnum upp og þökkum fyrir okkur. Okkur má vera alveg sama þótt einhver síldarflök fá aukna tolla, það er bara verst fyrir ESB sjálft sem þá fær dýrari vöru.

það er löngu tímabært að hætta að apa allt upp sem frá Evrópu kemur. Sönnum að viið séum sjálfstæð þjóð sem tekur eigin ákvarðanir. 


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Jón Valur Jensson

Mjög þarfur pistill, Halldór. Heilar þakkir.

Menn verða víst að fara fá sér sína eigin sendiboða með bréf!

Og geturðu sagt mér eitt: Af hverju voru vatns- og frálosunargjöld aðskilin frá öðrum gjöldum? Hefur ekki átt sér stað í þessu efni mjög veruleg heildar-verðhækkun? Kemur þetta til af ofurgjaldastefnu Gnarrista og aftaníossa þeirra, kratanna?

Jón Valur Jensson, 3.4.2014 kl. 22:24

2 Smámynd: Halldór Jónsson

Það var nú Ingibjörg Sólrún sem fann upp holræsaskattinn

Halldór Jónsson, 3.4.2014 kl. 23:15

3 Smámynd: Kristmann Magnússon

Ja hérna ertu núbúinn að gera Davíð og Halldór að krötum. Ekki man ég betur en að það vlru einmitt þeir sem seldu símann á sínum tíma og gerðu meira að segja vin þinn Brynjólf Bjarnason að forstjóra þar. og ætluðu síðan að byggja landspítala fyrir andvirðið Man ekki betur - en kannski eru þessir aðilar alir orðnir kratar

Kristmann Magnússon, 3.4.2014 kl. 23:15

4 Smámynd: Halldór Jónsson

hún var búin að fullnýta allar aðrar matarholur til að fá fé í að fóðra Alfreð. Hún var eins og ljónatemjari í búsi með ljóni sem varð svangt reglulega og urraði, þá fleygði hún einni risarækju í opinn skoltinn og þar með búið að tryggja já atkvæði Alfreðs og á því hékk meirihlutinn. Gerspillt fyrirkomulag ögðu sumir

Halldór Jónsson, 3.4.2014 kl. 23:18

5 Smámynd: Kristmann Magnússon

Nú þarftu bara að setja á google Síminn seldur pg þá kemur upp að það var Halldór og Davíð sem seldu Símann og voru alveg sérstaklega ánægðir með verðið og að þei ætluðu að nota peningana í að byggja nýjan spótala.

Þú ættir nú að vita úr fyrri vinnunni að rétt skal vera rétt ! ! !

Kristmann Magnússon, 3.4.2014 kl. 23:32

6 Smámynd: Halldór Jónsson

Mannsi minn, ég veit alveg hverjir seldu Símann. Og ég var algerlega á móti því sem algerri dellu. Enda koma það á daginn. Líklega hefur Dabbi móral yfir þessu þó hann geti ekki talað um það því þetta mistókst herfilega hjá þeim Halldór. Þetta var algerlega mislukkað hjá þeim því mína bjargfasta skoðun er að þjóðin verði að eiga koparnetið því það er sálim í fólkinu. Að láta það í hendur á glæpamönnum er alveg útúr kortinu. Og sama gilti um bankasölurnar. það gat ekki farið verr.

Halldór Jónsson, 4.4.2014 kl. 21:17

7 Smámynd: Kristmann Magnússon

Það var mikið að við urðum sammála

Kristmann Magnússon, 5.4.2014 kl. 12:21

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Höfundur

Halldór Jónsson
Halldór Jónsson

verkfræðingur, flugdellukall, tennis-og badmintonspilari

-ekki góður í neinu af þessu-

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (17.5.): 1
  • Sl. sólarhring: 10
  • Sl. viku: 52
  • Frá upphafi: 3418408

Annað

  • Innlit í dag: 1
  • Innlit sl. viku: 50
  • Gestir í dag: 1
  • IP-tölur í dag: 1

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Eldri færslur

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband