Leita í fréttum mbl.is

B.Dagur og S.Björn blekktu

með bandvitlausri gjöf þegar þeir settu svonefnda Rögnu-nefnd á stofn til að finna nýtt flugvallarstæði utan Vatnsmýrar. Auðvitað vissu þessir kumpánar upp á hár að slíkt er hvergi að finna.  B.Dagur settist sjálfur í samstarfshópinn og hefur að sögn haldið þar uppi innihaldslausu snakki út um móa og grundir til dæmis um hugsanleg önnur verðurskilyrði á Hólmsheiði en þegar er um vitað og annað álíka gáfulegt. Læknir í flugvélaleik sem talar og talar og blekkir og blekkir. Allavega hefur þeim tekist að nota nefndina sem pólitíska skiptimynt sem verður fleygt á haug strax eftir kosningar.

Tilgangur þeirra kumpána með nefndarskipaninni var aldrei annar en að drepa flugvallarmálinu á dreif svo að þeir hefðu frið fyrir því um kosningarnar. Það er raunalegt til þess að vita að grandvarir menn og gegnir létu þá prakka sig til að taka sæti í nefndinni sem þeim var talin trú um að myndi hafa alvarlegan tilgang.  Blessaðir mennirnir áttuðu sig bara ekki á því að hér er aðeins um undirmál og blekkingar þessara pólitísku kumpána að ræða. Þeir ætla sér ekkert með neinar niðurstöður að gera. Hverjar sem þær verða.

Þeir eru nefnilega ekki að leita að einu né neinu. Það er ekki þeirra stíll. Þessir kumpánar gera aldrei neitt annað en þeim sýnist sjálfum með rök eða tillögur sem þeim eru ekki þóknanaleg,  sbr. afstöðu þeirra til 70.000 undirskrifta eða hundruða mótmæla við Aðalskipulaginu, sem þeir neyddu í gegn um Borgarstjórn með atbeina nytsamra sakleysingja úr minnihlutanum.

Öll barátta Samfylkingarinnar í Borgarstjórn frá og með regeringtíð Ingibjargar Sólrúnar með Alfreð sem hækju er ein samfelld saga undirferlis, blekkinga  og óheilinda í pólitík þar sem svart verður hvítt og rekstrarafgangur sem breytist í rektrarhalla er bara undirliggjandi halli sem er allt annað en rekstrarhalli sem allir Samfylkingarmenn vita að er ekki rekstrarhalli eins og hjá Sjálfstæðismönnum. Og það var líka bara þá eins og hún útskýrði það.

Öll þeirra pólitík er þannig blekking og Pótemkintjöld til að breiða yfir aulaháttinn í rekstrinum sem blasir við hverjum sem vill sjá í yfirmönnun Borgarapparatsins.  Þeim tókst meistaralega allt kjörtímabilið að fela sig á bak við Gnarrinn  sem tók skóla-og gatnaþrengingaskellina með sínu barnslega brosi og hreinleika hjartans sem enginn getur reiðst. Mér finnst hinsvegar ljótt þegar svona pólitískir pörupiltar fara svona með góðhjartað fólk og grandvart eins og hann Jón Gnarr er svo sannarlega. Enda hefur Samfylkingin reynst öllum óhollur félagsskapur sem reynt hafa. Kratar  eru verstir sagði Tryggvi Ófeigsson og vissi hvað hann söng. 

Þeir frómu menn sem létu prakka sig til að taka sæti í Rögnu-nefndinni ættu að átta sig á því að þeir hafa verið misnotaðir sem peð í blekkingaleik B.Dags og S.Björns með flugvallarmálið til að halda því úr umræðunni yfir blákosningarnar.  Mér finnst að þeir væru menn að meiri að átta sig á þessu og segja sig úr þessari nefnd án tafar.  Ragna Árnadóttir, þaulvön griðkona og blómaskreyting úr Jóhönnustjórninni, getur sem best klárað þessa leit upp á eigin spýtur enda ekki um ókunn lönd að fara. Öll skipun Rögnu-nefndarinnar var nefnilega ekki gerð til annars en að afvegaleiða og blekkja kjósendur til að bæta pólitíska vígstöðu þessara áminnstu kumpána. 

Skiptir það ekki máli að maður átti sig á staðreyndum í hinu pólitíska spili þótt seint sé  þar sem þeir B.Dagur og S.Björn hafa hvort sem er gefið vísvitandi vitlaust? 


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Ómar Ragnarsson

Í síðasta leiðara Fréttablaðsins voru hafðar um hönd þrjár blekkingar:

1. Vel hægt að finna annað jafn gott vallarstæði í Reykjavík.

2. Aflagt flug yfir byggð. Rangt, það verður flogið meira yfir byggð að flugvelli á Hólmsheiði en í bættum flugvelli í Vatnsmýri. (Mest af honum er á Skildinganesmelum og í Skerjafirði)

3. Það fást alveg nýir fjármunir með lóðasölu, sem nægja til að fjármagna nýjan flugvöll. Rangt; þessir fjármunir detta ekki af himnum ofan og mynd alveg eins fást við sölu lóða annars staðar við þéttingu byggðar.

Ómar Ragnarsson, 30.4.2014 kl. 13:22

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Höfundur

Halldór Jónsson
Halldór Jónsson

verkfræðingur, flugdellukall, tennis-og badmintonspilari

-ekki góður í neinu af þessu-

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (5.6.): 4
  • Sl. sólarhring: 4
  • Sl. viku: 30
  • Frá upphafi: 3420876

Annað

  • Innlit í dag: 3
  • Innlit sl. viku: 26
  • Gestir í dag: 3
  • IP-tölur í dag: 3

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Eldri færslur

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband