Leita í fréttum mbl.is

Þriggja kosta völ !

var fyrirsögn á grein hjá próf.dr.Þorvaldi Gylfasyni í apríl 2009.

Þar velti höfundur fyrir sér af hverju ein mynt hentaði ekki öllum þjóðum?.

Greinin er merkileg fyrir þær sakir að höfundur hefur hamast gegn Sjáflstæðisflokknum og einarðri afstöu hans gegn inngöngu í Evrópusambandið og upptöku Evru og varðstöðu hans um krónuna.

Davíð Oddsson forsætisráðherra og formaður flokksins benti iðullega á það á sinni amtstíð, að efnahagsfasinn væri allt annar hjá Íslendingum en umheiminum . Þessvegna hentaði Evran ekki endilega Íslendingum alltaf eða þá Bandaríkjadalurinn. Enda kom það á daginn að dollarinn fór úr rúmum fimmtíukalli í talsvert meira en hundrað og svo niður í sama aftur undir stjórn Davíðs.

Rifjum upp þessa grein prófessorsins:


"Hugsum okkur, að heimurinn allur hefði sameinazt um einn gjaldmiðil, eina mynt. Þá myndi seðlabanki heimsins bregðast við merkjum um vaxandi verðbólgu um heiminn með því að hækka vexti og skyldum aðgerðum og við auknu atvinnuleysi með því að lækka vexti. Ekki myndu þó öll lönd njóta góðs af þessu fyrirkomulagi, því að þau búa við ólík skilyrði. Þótt verðbólga færi vaxandi um heiminn á heildina litið, gæti atvinnuleysi verið aðalvandinn sums staðar. Í þeim löndum, þar sem atvinnuleysi er aðalvandinn, myndi vaxtahækkun gera illt verra. Einmitt þess vegna hefur heimurinn ekki sameinazt um eina mynt. Heimurinn er stærri og fjölbreyttari en svo, að hann geti talizt vera hagkvæmt myntsvæði eins og það heitir á hagfræðimáli. Hvað þarf þá margar myntir?

Eina mynt fyrir hvert land?

Myntir heimsins eru mun færri en löndin, þar eð margar þjóðir hafa séð sér hag í að sameinast um eina mynt. Sextán ESB-lönd nota evru auk sex smáríkja. Fjórtán lönd í Afríku nota CFA-frankann. Ekvador, El Salvador og Panama auk sex smáríkja nota Bandaríkjadal. Sjö eyríki í Kyrrahafi nota ýmist ástralska eða nýsjálenzka dollarann. Abkasía og Suður-Ossetía nota rúblur. Bútan notar indverska rúpíann. Liechtenstein notar svissneska frankann. Namibía, Lesótó og Svasíland og - já! - Simbabve nota suður-afríska randið. Ríkisstjórn Simbabve lagði eigin gjaldmiðli fyrir skömmu eftir að hafa eyðilagt hann með botnlausri óreiðu og óðaverðbólgu. Eftir stendur eigi að síður á annað hundrað landa með eigin gjaldmiðla. Hvað á Ísland að gera? Krónan er illa löskuð.

Þrjú markmið?...

Meðal þeirra markmiða, sem flestar þjóðir setja sér, eru viðskiptafrelsi, gengisfesta og fullveldi. En rök og reynsla sýna, að þessi þrjú stefnumið stangast á. Þjóð, sem nær tveim þessara þriggja markmiða, þarf að kasta hinu þriðja fyrir róða. Lítum í kringum okkur. Bandaríkin leyfa frjálst flæði fjármagns inn og út úr landinu og ráða peningamálum sínum sjálf að fullu án afskipta annarra. Til að halda óskoruðu frelsi og fullveldi þurfa Bandaríkjamenn að færa þá fórn, að gengi dollarans flýtur á gjaldeyrismarkaði. Gengi dollarans er því ekki stöðugt, heldur sveiflast það til. Sama gildir um Bretland og brezka pundið, Japan og jenið, Noreg og Svíþjóð. Sextán ESB-lönd hafa annan hátt á: þau deila fullveldi sínu í peningamálum með öðrum ESB-löndum til að tryggja fast gengi innan evrusvæðisins. Frakkar fórnuðu frankanum, Þjóðverjar markinu og þannig áfram land úr landi til að girða fyrir gengissveiflur. En Kína? Kínverjar búa við fast gengi (kínverska myntin er bundin við Bandaríkjadal), og þeir áskilja sér fullt frelsi til að ráða stjórn eigin peningamála. Til að þetta sé hægt, þurfa Kínverjar að fórna frjálsum fjármagnshreyfingum, því að eina leiðin til að tryggja fast gengi og óskorað fullveldi í peningamálum um leið er að hefta flæði fjármagns inn og út úr landinu.

...en þau stangast á

Viðbrögð við bankahruninu hér heima spegla þennan vanda. Stjórnvöld kepptu að öllu þrennu: viðskiptafrelsi, gengisfestu og fullveldi, en þau þurfa að sleppa takinu á einu þessara markmiða til að halda hinum tveim. Ein leiðin væri að láta gengisfestuna lönd og leið og leyfa gengi krónunnar að falla hindrunarlaust. Ríkisstjórnin og Seðlabankinn hafa hafnað þessari leið í samráði við Alþjóðagjaldeyrissjóðinn með þeim rökum, að gengið gæti þá fallið langt niður fyrir eðlileg mörk, svo sem gerist iðulega við svipaðar aðstæður, og legið þar lengi. Þá áhættu vildu stjórnvöld ekki taka, þar eð mörg heimili og fyrirtæki tóku lán í erlendri mynt og myndu því skaðast meira en ella af slíkri gengislækkun. Þegar þetta lá fyrir, áttu stjórnvöld aðeins tveggja kosta völ.

Annar kosturinn var að deila með öðrum fullveldi Íslands í peningamálum, og þá lægi beint við að óska eftir aðild að ESB með hraði, ef hægt væri, og binda krónuna við evruna. Ríkisstjórnin hafnaði þessari leið. Þá var aðeins um eitt að ræða: að hefta fjármagnsflutninga að og frá Íslandi. Það var gert, enda þótt slík höft séu nú orðið nær óþekkt í okkar heimshluta.

Því var heitið, að höftin yrðu tímabundin. Þetta fyrirheit felur í sér, að annaðhvort verður gengi krónunnar innan tíðar sleppt lausu og leyft að falla, ef svo ber við, án verulegra afskipta af hálfu Seðlabankans eða gengið verður fest með því að binda krónuna kirfilega við annan gjaldmiðil. Bezta leiðin til að tryggja stöðugt gengi gjaldmiðils er að deila honum með öðrum. Og bezta leiðin til að tryggja fullveldi er að deila því með öðrum."

Það er eiginlega magnað hvernig prófessorinn hefur beitt skynsamlegu viti til að komast að kolrangri niðurstöðu af því að hann og aðrir kratar vill afsala landinu fullveldi og ganga í Evrópusambandið, fá gengisfestu með Evrunni og  frelsi í fjármagnsflutningum. Evrópuþráin yfirskyggir allt. Hann gerir sér ekki grein fyrir því að Bandaríkjadalurinn flýtur ekki sjálfur heldur fljóta allar aðrar myndtir í kring um hann. Forex-markaðurinn verslar með 5 trilljónir dala á dag þar sem heimurinn hamast við að skipta öðru myntum fyrir dollara. Það varðar Bandaríkjamen nákvæmlega engu hvernig þau kaup gerast á eyrinni. Dollarinn er alltaf 100 cent og kaupir flest á stöðugu verði innanlands. Evran sveiflast í kring um dollarann eins og reikistjarna um sólina. en ekki öfugt. Þessvegna er allt rándýrt í Evrulöndunum sem búa flest við sósíalistastjórnir meðan Bandaríkin eru með sanngjarnara verðlag á flestu.

Gjaldeyrishöftin er það ástand sem prófessorinn sér sem eðlilegt ástand fyrir Ísland. Það er eins og hann hafi alls ekki verið staddur á Íslandi á Davíðstímanum, þegar hér ríkti algert frelsi í fjármagnsflutningum. Gengishækkanir íslensku krónunnar voru daglegt brauð og fullveldið var óskorað og þess gætt af ábyrgum höndum Davíðs. Furðulegt að prófessorinn hafi ekki áttað sig á samhengi hlutanna betur en fram kemur í grein hans. 

Það er ekki bara þriggja kosta völ fyrir Ísland og Íslendinga. Við erum fullvalda þjóð sem getur haft eigin gjaldmiðil sér til bjargar. Hún getur búið við frelsi frá kratisma og fasisma í skoðunum. Það þyrfti bara rétta fólkið á rétta staði til að betur væri hér stjórnað.

Þorvaldur Gylfason og aðrir Evrukratar uppfylla aldrei alla þrjá kostina í einu þó aðrir hafi farið létt með það.

 


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Höfundur

Halldór Jónsson
Halldór Jónsson

verkfræðingur, flugdellukall, tennis-og badmintonspilari

-ekki góður í neinu af þessu-

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (22.11.): 0
  • Sl. sólarhring: 4
  • Sl. viku: 37
  • Frá upphafi: 0

Annað

  • Innlit í dag: 0
  • Innlit sl. viku: 31
  • Gestir í dag: 0
  • IP-tölur í dag: 0

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Eldri færslur

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband