Leita í fréttum mbl.is

Við erum smáþjóð

segir Stefanía Jónasdóttir frá Sauðárkróki í grein í Morgunblaðinu í dag. Hún segir:(feitletranir eru bloggarans.)

"Erum við Íslendingar ekki minnihlutahópur meðal þjóða heims? Hver ætlar að vernda land og þjóð? Ég sé ekki að neitt af stjórnmálafólkinu þori að stíga fram og taka af skarið. Illa er komið fyrir okkur. Barnaskapur er að halda og trúa því að við Íslendingar getum ekki orðið minnihlutahópur í okkar eigin landi, eða glatað sjálfstæði okkar, en þangað stefnum við.

 

Unga fólkið í dag virðist ekki skilja né vita hvers virði það er að eiga land og haf til að ráða yfir. Þau eru auðtrúa og tala bara einhverja innihaldslausa frasa. Það má ekki mismuna, segja þau, en svo þið vitið, þá erum við öll mennsk, en langt í frá bræður og systur. Það er staðreynd. Spyrjið múslima, hann mun ekki gerast bróðir þinn. Þrátt fyrir fordómana sem múslimar hafa um okkur, þá koma þeir hingað samt, þeir nefnilega vita að dropinn holar steininn og svo fara þeir gjarna í fórnarlambaleik til þess að ná sínu fram. Með tilkomu mosku fjölgar múslimum og þeirra siðum, það er staðreynd, því hjá þeim eru trúarlög æðri landslögum. Hugsið til framtíðar, hvort munu þeir eða við ráða hér ferð? Þeir eiga eftir að koma hér í stjórnmálin og ekki endilega öruggt að við Íslendingar stýrum landi og þjóð.

 

Þeir munu mismuna okkur. Mikið er að í þjóðfélagi okkar að hér sé til fólk sem er að hvetja til stuðnings við múslima. Þeir hinir sömu vita ekki hvað þeir eru að kalla yfir okkur. Þið sem neitið að horfast í augu við fordóma þeirra í okkar garð minnið á barinn hund, sem kemur í sífellu aftur og aftur eftir meiri barsmíðum. Hvar er lýðræðið? Því má þjóðin ekki kjósa um það hvort hún vill mosku eða ekki? Ég mótmæli harðlega getu- og andvaraleysi stjórnvalda. Ef þið sjáið ekki hættuna sem steðjar að smáþjóð, í guðs bænum segið þá af ykkur. Ég vil fá eldri kynslóð stjórnmálamanna aftur til valda, kynslóð sem vill vera Íslendingar, það er nóg komið af bjánahætti.

 

Svo í lokin, fólk sem vill höggva niður 109 ára gamalt tré, auglýsir sig tilfinningaskert, hrokafullt og sýnir valdníðslu og á ekki að stjórna öðrum. Munið að »sá sem sáir með tárum mun uppskera gleðisöng«. Út á hvað gengur ykkar stutta líf? Svari hver fyrir sig.

 

Megi landvættir mínir varðveita land mitt og þjóð, ekki veitir af í öllu þessu rugli. Þjóðin á í vanda. Við erum smáþjóð, það skiptir öllu. "

 

Mér finnst gott til þess að vita að það séu til þjóðernissinnar á okkar landi eins og Stefanía Jónasdóttir frá Sauðárkróki.  Lífsreynt fólk eins og hún, sem þekkir framandi múslímaþjóðir af áralangri eigin raun. Fólk sem er ekki sama um hvað verður um landið okkar og þjóðina. Fólk sem vill horfa raunsætt á þann fjölda nýbúa sem við hleypum inn til landsins. Fólk sem veit að velferðarkerfið okkar þolir ekki endalausa inndælingu af  fólki sem mun að öllum líkindum ekki gera mikið annað en leggjast á það sem byrði. 

Íslendingar  verða að hætta að láta einhvern Guðjón bak við tjöldin ákveða innflytjendastefnu þjóðarinnar og fjölmenningarstefnu  sem þjóðin hafnar. Fólkið vill endurskoðun Schengen-samningsins  og hertar reglur um aðstreymi framandi þjóða og það tafarlaust.

Hér stefnir annars  í óefni hjá smáþjóð eins og Stefanía Jónasdóttir bendir á.


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Árni Gunnarsson

Snautlegt er það nýjasta dæmið um hjarðhugsunina og hræðsluna við að vera ekki samþykktur.

Árásarliðið sem skipar netlögregluna og segir fyrir um skoðanir í málefnum innflytjenda er búið að ná undirtökum í þessari fáránlegu umræðu - eða öllu heldur þögn - um moskubygginguna.
Það kom þessu liði í opna skjöldu að andstaðan við þessa kjánalegu og bernsku undanlátsemi varð svo sterk sem úrslit kosninganna sýndu.

Allnokkrir þeirra sem ég hef rætt við hafa sagt að þrátt fyrir næstum sjúklega andúð á framsóknarflokknum og þrátt fyrir að vita að úrslit borgarstjórnarkosninganna myndu engu breyta um ákvörðun sem búið var að taka - vildu þeir með atkvæði sínu sýna afstöðu í þessu máli.
Kannski er það sú vitneskja sem svíður og brennir þetta sturlaða lið sem öskrar rasista sönginn? 

En hún Stefanía er ósmeik og lætur engan sega sér hvaða skoðun henni leyfist í þessu máli fremur en öðrum.

Sá hugsunarháttur þróaðist ekki í Sölvahúsinu á Króknum. 

Árni Gunnarsson, 18.6.2014 kl. 15:15

2 Smámynd: Ágúst H Bjarnason

Sæll frændi.

Þeir sem skilja ensku ættu að hlusta vel á hvað þessi maður segir í myndbandinu.

Svíar hafa nefnilega verið að sigla að feigðarósi undanfarin ár og nú verður ekki aftur snúið. Því miður.

Goodbye Sweden, Hello Islam

https://www.youtube.com/watch?v=YBGdeE3VPus

Ágúst H Bjarnason, 18.6.2014 kl. 16:37

3 Smámynd: Eðvarð Lárus Árnason

Sæll Halldór mikið er ég ánægður með að þú skulir framlengja aðvörunarorð Stefaníu. Ljóst er að ef ekki verður breytt um stefnu varðandi múslima innflutning og moskubyggingu, gæti það gerst ótrúlega hratt að Íslenska þjóðin verður kominn í minnihluta. Innanríkisráðherra gefur stöðugt eftir og fer ekki einu sinni að lögum varðandi innflytjendur. Framsóknar konan þyrfti að rétta af kompásinn hjá Sjálfstæðisflokknum, KVEÐJA

Eðvarð Lárus Árnason, 18.6.2014 kl. 18:32

4 Smámynd: Vilhjálmur Stefánsson

Hvar sem Múslimar setjast að er markmið þeirra að Fjölga sér sem fljótast.Noregur,Svíar og Danir er nú þegar farnir að finna fyrir vandamálum sem lúta að Islam.

Vilhjálmur Stefánsson, 18.6.2014 kl. 19:27

5 Smámynd: Halldór Jónsson

Takk fyrir þetta allir.

Hvenær skyldi RÚV þora að spila þetta myndband. maðurinn er ómyrkur í máli.Margt athyglisvert segir hann um hina skipulögðu þöggun í Svíþjóð .þar sem nauðgunarglæpir innflytjenda eru aldrei skilgreindir heldur eignaðir almennum karlmönnum í landinu. Þó voru allar nauðganir í Noregi á einhverju tímabili 41 að tölu framdara af aröbum og afríkumönnum í því landi.

Hvað veldur þögguninni hér? Af hverju má ekki ræða um það að stöðva þennan innflutning? Hver ræður eigin lega í þessu landi? Hvaða Guðjón bak við tjöldin ræður hér öllu en almenningur helst engu?

Halldór Jónsson, 18.6.2014 kl. 19:55

6 Smámynd: Hrólfur Þ Hraundal

Takk Halldór, verðugt mál að vekja athygli á:

Sem jafnan þá er mál Stefaníu skírt og væri vænt um ef þeir sem kallast forystumenn þjóðarinnar temdu sér þannig málfar. 

Það eru mörg ár síðan Svíar og Danir hófu að vara okkur við kæruleysi í innflytjandamálum, en ef eitthvað er þá sýnist kæruleysið heldur hafa aukist.        

Hrólfur Þ Hraundal, 18.6.2014 kl. 22:40

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Höfundur

Halldór Jónsson
Halldór Jónsson

verkfræðingur, flugdellukall, tennis-og badmintonspilari

-ekki góður í neinu af þessu-

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (29.4.): 1
  • Sl. sólarhring: 8
  • Sl. viku: 45
  • Frá upphafi: 3418233

Annað

  • Innlit í dag: 1
  • Innlit sl. viku: 43
  • Gestir í dag: 1
  • IP-tölur í dag: 1

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Eldri færslur

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband