Leita í fréttum mbl.is

Víglundur Þorsteinsson

birtir í dag opið bréf til Brynjars og Ögmundar í Morgunblaðinu.

Þeir sem þekkja Víglund vita að hann er málfylgjumaður mikill.  Elja hans við að verja sig fyrir þeim misgjörðum sem hann varð fyrir í hruninu hefur nú loks borið þann árangur að hann er með borðliggjandi sannanir á þeim brotum sem framin voru undir forsæti Steingríms J. Sigfússonar í máli Víglundar sem og mörgum öðrum sem menn hafa verið margir að reyna að fest hendur á. Má minna á myrkraverkin sem Steingrímur framdi á Gunnar I. Birgissyni og öðrum í stjórn Lífeyrissjóðs Starfsmanna Kópavogsbæjar auk framkvæmdastjórans Sigrúnar. Nú bætir Víglundur myndarlega við syndaregistur Steingríms sem hingað til hefur verið hjúpað í þoku upplýsingaskorts og sannana.

Víglundir segir:(bloggari feitletrar að vanda)

Sælir Ögmundur og Brynjar.

 

 

Ég rita ykkur af því tilefni að í síðustu viku rak á fjörur mínar stofnúrskurði FME um stofnefnahag nýju ríkisbankanna frá október 2008. Við getum kallað það að »nýr lítill símamaður« hafi komið þessum gögnum til mín.

 

Í gögnunum er að finna mjög nákvæmar og sundurliðaðar upplýsingar og forsendur um stofnefnahag bankanna og þær afskriftir sem FME framkvæmdi með heimild í neyðarlögunum.

 

Í gögnunum er að finna skilgreindar afskriftir einstaklinga og fyrirtækja í hverjum banka fyrir sig og þau staðfesta sömuleiðis að stofnefnahagurinn í öllum bönkunum var grundvallaður á útlánunum sem flutt voru yfir eftir að búið var að draga afskriftirnar frá. Eru þær afskriftir tilgreindar og dregnar frá með beinum hætti hjá öllum stærri skuldurum en skilgreindar með almennum prósentum um smærri útlán.

 

Þessi gögn eru skýr staðfesting á þeim orðum í úrskurði FME frá 14.10. 2008 að útlánin skuli flutt í hina nýju ríkisbanka »að frádregnum áætluðum afskriftum einstakra útlána«, eins og þar má lesa.

 

Að sinni mun ég ekki opinbera þessi gögn en hvet ykkur hins vegar til þess að kalla eftir þeim svo að stjórnskipunar- og eftirlitsnefnd Alþingis fái aðgang að þeim.

 

Ykkur til hægðarauka við það að kalla eftir gögnunum eru þau dags. 21.10. 2008 vegna Nýja Kaupþings hf.; 8.10. sbr. endurskoðun 16.11. 2008 vegna Landsbankans og hinn 14.10. 2008 vegna Nýja Glitnis, nú Íslandsbanka.

 

Þegar þessir úrskurðir eru virtir og horft til þeirrar vinnu sem fyrrverandi fjármálaráðherra, Steingrímur J. Sigfússon, setti af stað um samninga við erlendu kröfuhafana svo og þeir samningar sem hann gerði við þá í framhaldi af vinnu hinnar sérstöku stýrinefndar og það sem í kjölfarið fylgdi í öllum þremur bönkunum - aðgerðirnar við að breyta niðurstöðum þessara stofnúrskurða til ábata fyrir erlendu kröfuhafana - fer ekki á milli mála að upp vakna sterkar og rökstuddar grunsemdir um að sú vinna hafi verið eitt stórfellt samræmt atferli fjársvika og misneytingar.

 

Unnið af fleiri einstaklingum á sviði stjórnsýslunnar og á vettvangi bankamanna fyrir frumkvæði ráðherra í ríkisstjórninni sálugu 2009 til 2013 en nokkurn hefði getað órað fyrir.

 

Umfang þessarar vinnu/svika/misneytingar er orðið slíkt að hún hefur fært hinum erlendu kröfuhöfum allt að 400 milljarða í ábata umfram neyðarlögin og úrskurði FME. Sýnist mér, í ljósi þessara nýju upplýsinga, að skoða verði allt þetta mál hjá stjórnskipunar- og eftirlitsnefndinni. Ef skoðun leiðir til þeirrar niðurstöðu að rétt sé að kæra allt þetta atferli er eðlilegast í ljósi umfangs hinna meintu brota og þess hversu margir þolendurnir eru að nefndin hafi að því frumkvæði.

 

Það sýnist mér réttara og eðlilegra en sú leið að til dæmis einstaklingar - ég og ef til vill fleiri - myndum þurfa að standa fyrir slíku.

 

Fyrst af öllu vil ég hvetja ykkur til þess að kalla eftir þessum gögnum svo þau liggi fyrir með lögformlegum hætti svo Alþingi geti fjallað um þau. Það hlýtur að vera hin rétta leið í gagnsærri og opinni stjórnsýslu og stjórnarfari okkar lýðveldis sem allir stjórnmálamenn vilja viðhafa að eigin sögn.

 

Upplýsingar þessar, sem snerta tugþúsundir einstaklinga og lögaðila, eiga að liggja frammi þeim til aðgengis án þess að við Íslendingar þurfum að reiða okkur á »aðstoð lítilla símamanna« þar um.

 

Því hvet ég ykkur til athafna nú strax og að kalla eftir þessum gögnum svo þau geti legið fyrir lögformlega þegar sumarleyfum lýkur.

 

Bréf þetta mun ég síðan birta opinberlega.

 

Virðingarfyllst.  "

 

Hvað ætlar Ögmundur nú að segja? Samverkamaður og vitorðsmaður félaga Steingríms J.?

Fáir hlustuðu nema með öðru þegar Víglundur var að segja frá skiptum sínum við bankana og dauðalistanum. Enda maðurinn líka umdeildur athafnamaður fyrir hrun og þar að auki Sjálfstæðismaður frá blautu barnsbeini. Akkúrat sú tegund sem gerði menn að skotmarki fjármálaráðherra fyrri ríkisstjórnar. Nú er fram komin hin skjallega sönnun sem vantaði.

Hvað ætlar Ögmundur aftaníossi Steingríms j. Sigfússonar að segja nú þegar Víglundur spyr hann beint með skjölin í höndunum? 

 

 

 


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Höfundur

Halldór Jónsson
Halldór Jónsson

verkfræðingur, flugdellukall, tennis-og badmintonspilari

-ekki góður í neinu af þessu-

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (23.11.): 0
  • Sl. sólarhring: 6
  • Sl. viku: 37
  • Frá upphafi: 0

Annað

  • Innlit í dag: 0
  • Innlit sl. viku: 32
  • Gestir í dag: 0
  • IP-tölur í dag: 0

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Eldri færslur

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband