Leita í fréttum mbl.is

Vanþróað ferðamannaland

er Ísland. það vantar ekki að við viljum græða á að fjölga ferðamönnum sem mest og keyra þá sem flesta GullfossogGeysishringi. En að við skiljum að fólk og sérstaklega kvenfólk þurfi á klósett, það virðast íslensk ferðamálayfirvöld líklega aldrei leitt hugann að.

Við Íslendingar eru  rosalega vanþróaðir og illa skipulagðir í móttöku ferðamanna. Ferðaskrifstofurnar ryðjast hver um aðra þvera til að lækka verðið til útlendinganna . Enginn telur það í sínum verkahring  að láta ferðamennina pissa.

Tökum sem dæmi  hvernig þeir Gísli, Eiríkur og Helgi skipuleggja klósettin  á  Þingvöllumi. Á Hakinu hafa verið byggð klósett sem kostar inn á. Þar kostar 200 kall að nota þau.  Sjálfsalinn tekur ekki evrur , hvorki  eina eða tvær, eki dollara, hvað þá seðla. Bara íslenska hundraðkalla.  Flest kort sem Þýskarar eru með ganga ekki heldur. Eintóm vesalmennska í öllum framkvæmdum, enginn hjálparmaður eða vörslumaður tiltækur fyrir kvartanir eða aðstoð. Aumingja fólkið veinar við Gædana af því að það getur ekki .... - það á ekki íslenska hundraðkalla nýkomið af stóru skipunum.

Maður fyrirverður sig fyrir hönd þjóðarinnar fyrir alla þá sveitamennsku sem maður horfir uppá. Gædar eru að borga pissurnar úr eigin vasa vegna þessarar vesalmennsku þingvallanefndarinnar sem er væntanlega ábyrg fyrir rekstri klósettanna. 

Svo skipuleggja ferðaskrifstofurnar gönguferðir um Almannagjá. Ofanfrá af Hakinu er ekki hægt að hefja gönguna þar sem fólkið rennur rúnt í spreng en getur ekki komist á apparatið. Allur göngutíminn fer í að redda manneskjum í hlandnauð. Ferðaáætlunin raskast og Gædarnir eru skammaðir.  Aðrar skrifstofur skpuleggja gönguferð neðan frá og upp. Niðri eru alls engin klósett en þar gengur samt betur að útskýra að klósettin séu uppfrá.

 Rúturnar opna ekki klósettin sín því þeir segja verðin svo niðurpínd af ferðaskrifstofunum að þau borgi ekki þrif. Á Gullfossi er Sigríðarstofa lokuð árum saman þar sem klósett eru. Veitingahúsið leyfir ferðafólki að nota toilettin án þess að taka fyrir það, bara af almennilegheitum sínum og vorkunnsemi með þurseríinu sem virðist einrátt í að skipuleggja ferðamannastaðina eins og Þingvelli neðra plan eða Gullfoss neðra plan.

Það er eins og engir  ferðamálafrömuðir hafi séð PortaLoo eða vitað til hvers þau eru. Svo tekur steininn úr þegar ferðaskrifstofurnar skipuleggja stopp í Hveragerði án tillits til fjölda rútanna sem lenda þar í einu. Þar stendur ferðafólki í verslunarmiðstöðinni í biðröð út á götu og kaupir þessvegna ekki neitt. Kannski gerir það ekkert til því búðirnar eru oft lokaðar hvort sem er vegna tímans. Þetta er eins á stöðunum fyrir norðan,Dettifossi og Dimmuborgum. Tóm vandræði og vesælmennska vegna sveitamennsku landans.

Við Íslendingar erum rosalega vanþróaðir, stirðbusalegir og illa skipulagðir í móttöku ferðamanna á ferðamannastöðum  hvað líkamlegar grunnþarfir mannslíkamans varðar. Ferðaskrifstofurnar ryðjast hver um aðra þvera til að lækka verðið til útlendinganna og pína niður verðið á rútunum og sjálfsagt öllu öðru. Svo getur enginn séð af krónu til að láta ferðamennina losa kaffið.  

Af hverju látum við ekki LÍÚ og bankana kvótasetja ferðamannaiðnaðinn til að halda uppi verðinu?Við sem lofsyngjum kosti kvótakerfa og hagræðingar í mjólkurframleiðslu sem og fiskveiðum  virðumst ekkert geta í skipulögðu okri þegar kemur að ferðamönnum en ekki fiski.  Menn borga glaðir tvær evrur á hakinu fyrir að fá að pissa sé þeim mál. Það má gera eitthvað fyrir slíkt sanngjarnt okur.

Við erum mjög vanþróað ferðamannaland þó að við tölum digurbarkalega um hagrænt gildi þess að fá hingað nógu marga ferðamenn og nauðsyn þess að selja inn á staðina til að græða. 

 

 


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Alfreð K

Þetta er skelfilegt ástand sem þú lýsir, vona sannarlega að þetta sé bara ekki orðið svona fyrir alla þessa hópferðamenn sem streyma hingað núorðið (en kæmi manni þó samt e-n veginn ekki á óvart).

Kannski að stjórnvöld neyðist þá til að grípa inn í með e-s konar eftirliti og lög og reglugerðir á þessar ferðaskrifstofur og aðra sem gera út á komu ferðamanna.

Og líka miðað við hvað ríkið sjálft hlýtur að stórgræða á þessum ferðamannaiðnaði í formi skatta (Er þetta ekki núna stærra en sjávarútvegur?), ætti ekki að þykja nema sjálfsagt og lítið mál að veita duglega til baka inn í þennan málaflokk, t.d. allt það fé sem þyrfti til að halda uppi fullnægjandi aðstöðu við helstu og fjölförnustu ferðamannastaðina, ábyggilega bara brot af því sem þjóðarbúið fær nú í tekjur af ferðamönnum.

Alfreð K, 1.7.2014 kl. 22:05

2 Smámynd: Helga Kristjánsdóttir

Já þetta eru orð í tíma töluð. Ekki hafði ég hugmynd um þennan lubba hátt. Hefur okkur ekkert miðað áfram síðan Eiríkur heitinn Ketilsson stoppaði rútu sína fulla af farþegum: “Konur vinstra megin,karlar hægra megin” , svo keyrði hann spölkorn áfram.

Helga Kristjánsdóttir, 2.7.2014 kl. 02:19

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Höfundur

Halldór Jónsson
Halldór Jónsson

verkfræðingur, flugdellukall, tennis-og badmintonspilari

-ekki góður í neinu af þessu-

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (17.5.): 1
  • Sl. sólarhring: 10
  • Sl. viku: 52
  • Frá upphafi: 3418408

Annað

  • Innlit í dag: 1
  • Innlit sl. viku: 50
  • Gestir í dag: 1
  • IP-tölur í dag: 1

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Eldri færslur

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband