Leita í fréttum mbl.is

Unga Ísland

talaði í gegnum Gylfa Ólafssson heilsuhagfræðing, f. 1983, á Útvarpi Sögu í dag sem ég heyrði útundan mér í bílnum.

Þar lýsti þessi sænskmenntaði(námi ólokið) Íslendingur því fyrir Pétri Gunnlaugssyni,  að Ísland ætti ekki að líta til sinna hagsmuna við val á innflytjendum heldur þeirra hagsmuna.  Hans pólitíska sannfæring væri að væru þúsundir af Afríkumönnum í neyð ættu Íslendingar að taka við þeim og hafa ekki áhyggjur af þeim áhrifum  sem innflutningurinn gæti haft á íslenska velferðarkerfið. 

Hann lýsti því að það væri tilviljun að hann hefði fæðst á Íslandi. Þessvegna ætti hann ekkert meira tilkall til landsins en aðrir að mér skildist.  Hann var einnig tilbúinn að kjósa Jón Gnarr sem næsta Forseta Íslands. Hann sagðist fara á kjörstað og flestir vina hans.

Hvaða íslenskur stjórnmálaflokkur er tilbúinn að gera þessar skoðanir í innflytjendamálum að sínum?

Ef þetta er unga Ísland þá er ástæða til fyrir mig að minnsta kosti að hafa verulegar áhyggjur.


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Jóhann Kristinsson

Þetta er maður sem er aræðanlega meðlimur lattelepjandi kaffihusalýðsins i 101Reykjavik.

Þetta er lýður sem lætur heyra i sér með hávaða og með látum ef þingmenn og möppu dýrin fara ekki eftir þvi sem þau vilja, þó svo að það se slæmt fyrir landið og landsmenn.

Kveðja fra Houston

Jóhann Kristinsson, 7.7.2014 kl. 21:33

2 Smámynd: Þorkell Guðnason

Gef mér, að þér hafi auðnast að flytja okkur boðskap þessa seinfæra menntamanns lítt brenglaðan. Þar með á ég þá ósk heitasta honum til handa, að sænskir sjái sóma sinn í því að halda honum uppi um ókomna tíð.

Þorkell Guðnason, 7.7.2014 kl. 21:58

3 Smámynd: Ágúst H Bjarnason

 Sæll frændi.

Við hjónin hlustuðum á þetta viðtal á leiðinni úr bænum og göptum bæði af undrun.  Annað eins höfðum við aldrei heyrt.

Viðtalið við "heilsuhagfræðinginn" má hlusta á hér:
http://www.utvarpsaga.is/eldri-thaettir-2.html

Ágúst H Bjarnason, 8.7.2014 kl. 06:16

4 Smámynd: Ásgrímur Hartmannsson

Heilsuhagfræði leggur sem sagt enga áherzlu á "hagfræði." Svo að skilja.

Ásgrímur Hartmannsson, 8.7.2014 kl. 07:44

5 Smámynd: Halldór Jónsson

Jóhann, það er áhyggjuefni ef þetta fólk fer að taka yfir umræðuna á Íslandi. Það er bara veruleg hætta á því.Hinsvegar er Pétur á Sögu að færast nær og nær því sem mér finnst og þarn spurði hann til dæmis hvort við Íslendingar ættum ekki að meta innflytjendur útfrá okkar hagsmunum eins og Canadamenn gera.

Keli, það er líklegt að mér hafi ekki misheyrst eftir þaí sem Ágúst frændi segir.

Ásgrímur, hver heilsa svona heilabúa?

Halldór Jónsson, 8.7.2014 kl. 08:06

6 Smámynd: Kolbrún Hilmars

Þessi skoðun heilsuhagfræðingsins hefur í vaxandi mæli verið viðruð undanfarið. 

Að mínu mati felur hún í sér afturhvarf til landnematímans.  Þar sem landið/plássið sjálft skiptir öllu máli en samfélagið litlu. 

Þessi skoðun á auðvitað fullan rétt á sér, en ætli viðkomandi myndu ekki sakna samfélagstryggingarinnar?

Svo getur auðvitað verið að þetta sé dulbúin ósk um að losna við skattakerfið...  :) 

Kolbrún Hilmars, 8.7.2014 kl. 15:02

7 Smámynd: Tómas

Já, tek hjartanlega undir með ykkur öllum. Það er brýn nauðsyn að passa upp á hin Íslenzku gen, bæði búfénað sem mannfólk. Það ætti náttúrulega helzt að loka fyrir flugumferð og gæta þess að samneyti eigi sér alls ekki stað milli þessara útlendinga og hins hreina kynstofns! Hugsið ykkur að hin Íslenzka menning leggist bara af og verði skipt út fyrir einhverja villimanna-trumbuslátt!

Djók. Þið eruð fyndin. #troll

Tómas, 8.7.2014 kl. 15:59

8 Smámynd: Eyjólfur G Svavarsson

Var einhver að snúa út úr umræðunni? Eða hvað Tómas. T...!

Eyjólfur G Svavarsson, 8.7.2014 kl. 17:45

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Höfundur

Halldór Jónsson
Halldór Jónsson

verkfræðingur, flugdellukall, tennis-og badmintonspilari

-ekki góður í neinu af þessu-

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (15.5.): 0
  • Sl. sólarhring: 12
  • Sl. viku: 56
  • Frá upphafi: 0

Annað

  • Innlit í dag: 0
  • Innlit sl. viku: 52
  • Gestir í dag: 0
  • IP-tölur í dag: 0

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Eldri færslur

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband