10.9.2014 | 09:31
Forsjárhyggjan
er hin rauði þráður í eðli íslenskra stjórnmálamanna. Og allstaðar annars staðar þar sem kratisminn hefur teygt anga sinna inn í heilabú fólks og mengað þau varanlega.
Óli Björn Kárason virðist vera af þeirri sjaldgæfu tegund sem sem ekki hugsar alfarið á þennan hátt. Hann minnir óneitanlega á góða Repúblikana vestan hafs, þar sem eimir enn eftir af landnemahugsuninni þar sem "Löngum var ég læknir minn, lögfræðingur prestur, smiður kóngur kennarinn, kerra plógur hestur" sjónarmiðið er þáttur í skaphöfninni. Í dag skrifar Óli Björn slíka grein sem mér finnst sjálfsagt að varpa fram til umræðu þar sem sumir bloggarar lesa ekki Mogga. Óli Björn segir (og ég feitletra að vanda):
"Á hverjum degi reyna góðhjartaðir stjórnmála- og embættismenn að hafa vit fyrir samferðamönnum sínum sem í »fávisku« sinni vita ekki hvað þeim er fyrir bestu. Lög eru innleidd og reglugerðir settar í þeim göfuga tilgangi að verja almenning gagnvart sjálfum sér. Eftirlitsstofnunum er komið á fót til að tryggja að einstaklingar og fyrirtæki fari eftir fyrirmælum. Í nafni umhyggju eru sérstakir skattar lagðir á vörur sem hinir góðhjörtuðu telja ekki æskilegt að venjulegt fólk neyti í miklum mæli. Aðrar vörur eru bannaðar.Ríki barnfóstrunnar þenst út og faðmur hennar breiðir úr sér enda henni fátt mannlegt óviðkomandi. Ríkisbarnfóstran hefur tekið að sér að ala okkur upp og tryggja að enginn fari sér að voða. Þess vegna hefur hún ákveðið - í nafni heilbrigðis - að við Íslendingar skulum aðeins borða íslenska kjúklinga, svína- og nautakjöt. Aðeins útvaldir megi nota írskt smjör til að framleiða íslenska osta. Í visku sinni hefur barnfóstran ákveðið að rauðvínið skuli selt í sérbúðum ríkisins, undir vakandi eftirliti þar sem vöruúrvalið ræðst af öðru en vilja og löngun viðskiptavinanna.
Þótt ríkisbarnfóstran sé ströng og eigi oft erfitt með að fyrirgefa hefur hún á stundum þurft að láta undan. Einu sinni var barnfóstran sannfærð um að ekkert okkar hefði gott af því að hlusta eða horfa á annað en ríkisstimplað ljósvakaefni. Í umhyggju sinni var barnfóstran þess fullviss að það væri miklu betra að landsmenn drykkju sterka drykki í stað þess að leggjast í bjórdrykkju, nema þá helst í flugvélum og á sólarströndum.
En ríkisbarnfóstran gefur aldrei eftir án átaka og hún er stöðugt á varðbergi fyrir nýjum hættum. Í ástríki sínu er hún sannfærð um að fákunnandi einstaklingar geti ekki borið ábyrgð á eigin lífi og fyrirtækjum sé ekki treystandi til að bjóða góða vöru og þjónustu á hagstæðu verði. Reglur, eftirlit og höft eru einkunnarorðin sem unnið er eftir.E
Mörgum líður vel í hlýjum og öruggum faðmi barnfóstrunnar, lausir undan áhyggjum sem fylgja því að axla ábyrgð. Afleiðingin er sú að farið er að líta á neytendur sem hóp af kjánum, einfeldningum eða ómálga smábörnum.
Af ótta við barnfóstruna og í samræmi við þær kröfur sem hún hefur sett í samráði við evrópsk samtök barnfóstra, leggja framleiðendur út í að merkja vörur sínar með ærnum tilkostnaði. Ekki til að veita upplýsingar um innihald og eðli vörunnar heldur til að vara kjánann - kaupandann - við. Í samræmi við tilskipun barnfóstrunnar er gengið út frá því að almenn heimska sé ráðandi. Þannig segir á umbúðum fyrir smur- og hreinsiefni að »ef efnið er drukkið« þá »hafið samband við lækni«. Með öðrum orðum er gengið út frá því að einhverjum komi til hugar að svala þorsta sínum á smur- og hreinsiefni. Á dós með viðarvörn er tekið fram að efnið geti »valdið lungnaskaða við inntöku«. Á þrýstihylki með kveikjaragasi er tekið fram að reykingar séu bannaðar og lagt bann við að úða á eld eða glóandi hluti.
Skordýraeitur er merkt sérstaklega og bent á að ekki megi geyma það hjá matvælum eða öðrum neysluvörum og sérstaklega er tekið fram:
»Ekki má nota efnið á fólk eða húsdýr.«
Í samræmi við kröfu barnfóstrunnar er undirstrikað að ekki megi nota skordýraeitrið á »fleti þar sem matvæli eru unnin, matbúin eða þeirra neytt«.
Í bæklingi sem fylgir rafmagnssög er varað við að setja hendurnar fyrir sagarblaðið. Með sama hætti er sérstaklega tekið fram á umbúðum Súperman-búnings, að þó menn klæðist búningnum geti þeir ekki flogið. Á sama tíma og kaupandi Súperman-búningsins er upplýstur um þessa annmarka eru merkingar umbúða matvæla (í samræmi við reglur) oftar en ekki illskiljanlegar.
Auðvitað skaða þessar merkingar fáa. Það eru aðeins peningabuddur neytenda sem eru fórnarlömb enda greiða þeir á endanum kostnaðinn. En merkingarnar eru birtingarmynd barnfóstruríkisins þar sem byggt er á hugmyndafræði forræðishyggjunnar um nauðsyn þess að hafa vit fyrir fávísum almenningi.
Í skjóli forræðishyggju barnfóstrunnar hefur eftirlitsiðnaðurinn fengið að leika lausum hala. Öflugar eftirlitsstofnanir eru taldar mikilvægari en almenn löggæsla og öryggi borgaranna. Opinberu fé er því dælt í stofnanir en framlög til löggæslu eru skorin við nögl. Forgangsröðun forræðishyggjunnar er skýr að þessu leyti.
Á undanförnum áratugum hafa opinberar stofnanir fengið æ ríkari valdheimildir. Leiðarahöfundur Morgunblaðsins (31. júlí 2013) hefur haldið því fram að margar þessara stofnana hafi »sýnt að þær kunna ekki með þær að fara«:
»Þær gæta ekki meðalhófs. Þær svara ekki eða eins og út úr kú athugasemdum þolendanna, sem eru hluti almennings í landinu. Gerðar eru óbilgjarnar kröfur til þeirra sem í myllu stofnananna lenda, en síðan er dregið á langinn að gera hreint fyrir sínum eigin dyrum. Eins og bent hefur verið á, þá virðist iðulega út frá því gengið að í samskiptum við slíkar stofnanir hafi sönnunarbyrðinni heimildarlaust verið snúið við.«
Varlega má ætla að beinn kostnaður íslenskra fyrirtækja vegna opinbers eftirlits sé 15-20 milljarðar króna á ári. Óbeinn kostnaður vegna minni framleiðni, lakari samkeppnisstöðu og skilvirkni hleypur á milljörðum.
Þannig rýrir ríkisbarnfóstran lífskjör almennings - skjólstæðinga sinna - á hverju ári. Á móti kemur að við erum hægt og bítandi orðin áhyggjulítil um eigin farsæld. Og tilfinningin fyrir því hvað það er að vera frjáls einstaklingur dofnar í hvert sinn sem barnfóstran breiðir út faðminn."
Hér er skýrt að orði kveðið eins og Óla Birni er tamt. Samt er hann að tala um mál sem hin dauða hönd kratismans hefur lætt inn í sálir okkar á langri ævi. Við erum ófrjáls að flestu leyti. Nema þegar farið er að tala um réttindi minnihlutahópa, homma, lesbía, hælisleitenda og lesblindra. Þá er frelsi þeirra komið ofar öllu.
Dæmið um forsjárhyggjuna birtist í viðirðisaukakerfinu. Í stað þess að stíga djarft skref og færa viðriðsaukaprósentuna í eitt þrep án undantekninga, sem öll rök mæla fyrir, þá er áfram burðast með hriplekt kerfi af því að forsjárhyggju mengun hugarfarsins getur ekki hugsað öðruvísi.
Nú á að hækka matarskattinn úr 7 & í 12%. Og sagt að þetta sé 5 % hækkun í stað 71.5 % hækkunar á skattlagningu matvöru sem kemur kannski út sem 5 % á verði matarkörfunnar án vsk. Einhver hefði talið að íslenskir millifærslumeistarar færu létt með að reikna út matarbætur handa vísitölufjölkyldunni sem gæti fengið þær inn á húsnæðislánin sín eins og séreignarsparnaðinn samkvæmt ítrustu kröfum um forsjá til þess að þessu yrði ekki eytt í vitleysu. Nei, þetta er of stórt til að rúmast í meðalkrataheilanum á Alþingi Íslendinga.
Fann einhver fyrir þessum sykurskatti hans Steingríms J.? Breytti hann einhverju í bruggvenjum landans? Vörugjöldin lækkuð? Mun almenningur taka eftir því? Hverfa ekki svona tittlingaskítir inn í verðlagið hjá þjóð í framfara-og hagvaxtarsókn?
Í skólakerfinu ríður forsjárhyggjan húsum. Ávísanakerfi Miltons Friedmanns er komið ínn í sænska skólakerfið. Foreldrarnir mega velja skóla. Einkaskólar mega græða. Hér var lokað hjá Óla í Hraðbraut fyrir það og úr grunnskólum okkar kemur enginn sem kann bæði að lesa og reikna. Ég geri það að gamni mínu að spyrja þýska krakka sem ég hitti hvað 7x8 séu. Þau svara undanteknigarlaust rétt. Prófið þetta sjálf á íslenskum grunnskólakrökkum?
Kostur má ekki selja morgunkorn sem er merkt í Ameríku. Okkur talin trú um að evrópskar kröfur séu gerðar fyrir neytendur í verndarskyni en ekki í tollverndarskyni. Og eftirlitsiðnaðurinn trúir því eftir að Alþingi fór að stimpla allt sem kemur frá ESB án þess að lesa textann.
Er ekki kominn tími til fyrir mig að hætta að trúa á jólasveininn? Hætta að að hugsa um íslenska pólitík og snúa mér að öðru svon rétt fyrir andlátið?
Forsjárhyggjan gegnsýrir allt þjóðfélagið og heldur því áfram hvað sem Óli Björn skrifar.
Flokkur: Stjórnmál og samfélag | Facebook
Heimsóknir
Flettingar
- Í dag (22.11.): 1
- Sl. sólarhring: 5
- Sl. viku: 38
- Frá upphafi: 3419711
Annað
- Innlit í dag: 1
- Innlit sl. viku: 32
- Gestir í dag: 1
- IP-tölur í dag: 1
Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar
Eldri færslur
- Maí 2022
- Apríl 2022
- Mars 2022
- Febrúar 2022
- Janúar 2022
- Desember 2021
- Nóvember 2021
- Október 2021
- September 2021
- Ágúst 2021
- Júlí 2021
- Júní 2021
- Maí 2021
- Apríl 2021
- Mars 2021
- Febrúar 2021
- Janúar 2021
- Desember 2020
- Nóvember 2020
- Október 2020
- September 2020
- Ágúst 2020
- Júlí 2020
- Júní 2020
- Maí 2020
- Apríl 2020
- Mars 2020
- Febrúar 2020
- Janúar 2020
- Desember 2019
- Nóvember 2019
- Október 2019
- September 2019
- Ágúst 2019
- Júlí 2019
- Júní 2019
- Maí 2019
- Apríl 2019
- Mars 2019
- Febrúar 2019
- Janúar 2019
- Desember 2018
- Nóvember 2018
- Október 2018
- September 2018
- Ágúst 2018
- Júlí 2018
- Júní 2018
- Maí 2018
- Apríl 2018
- Mars 2018
- Febrúar 2018
- Janúar 2018
- Desember 2017
- Nóvember 2017
- Október 2017
- September 2017
- Ágúst 2017
- Júlí 2017
- Júní 2017
- Maí 2017
- Apríl 2017
- Mars 2017
- Febrúar 2017
- Janúar 2017
- Desember 2016
- Nóvember 2016
- Október 2016
- September 2016
- Ágúst 2016
- Júlí 2016
- Júní 2016
- Maí 2016
- Apríl 2016
- Mars 2016
- Febrúar 2016
- Janúar 2016
- Desember 2015
- Nóvember 2015
- Október 2015
- September 2015
- Ágúst 2015
- Júlí 2015
- Júní 2015
- Maí 2015
- Apríl 2015
- Mars 2015
- Febrúar 2015
- Janúar 2015
- Desember 2014
- Nóvember 2014
- Október 2014
- September 2014
- Ágúst 2014
- Júlí 2014
- Júní 2014
- Maí 2014
- Apríl 2014
- Mars 2014
- Febrúar 2014
- Janúar 2014
- Desember 2013
- Nóvember 2013
- Október 2013
- September 2013
- Ágúst 2013
- Júlí 2013
- Júní 2013
- Maí 2013
- Apríl 2013
- Mars 2013
- Febrúar 2013
- Janúar 2013
- Desember 2012
- Nóvember 2012
- Október 2012
- September 2012
- Ágúst 2012
- Júlí 2012
- Júní 2012
- Maí 2012
- Apríl 2012
- Mars 2012
- Febrúar 2012
- Janúar 2012
- Desember 2011
- Nóvember 2011
- Október 2011
- September 2011
- Ágúst 2011
- Júlí 2011
- Júní 2011
- Maí 2011
- Apríl 2011
- Mars 2011
- Febrúar 2011
- Janúar 2011
- Desember 2010
- Nóvember 2010
- Október 2010
- September 2010
- Ágúst 2010
- Júlí 2010
- Júní 2010
- Maí 2010
- Apríl 2010
- Mars 2010
- Febrúar 2010
- Janúar 2010
- Desember 2009
- Nóvember 2009
- Október 2009
- September 2009
- Ágúst 2009
- Júlí 2009
- Júní 2009
- Maí 2009
- Apríl 2009
- Mars 2009
- Febrúar 2009
- Janúar 2009
- Desember 2008
- Nóvember 2008
- Október 2008
- September 2008
- Ágúst 2008
- Júlí 2008
- Júní 2008
- Maí 2008
- Apríl 2008
- Mars 2008
- Febrúar 2008
- Janúar 2008
- Desember 2007
- Nóvember 2007
- Október 2007
- September 2007
- Ágúst 2007
- Júlí 2007
- Júní 2007
- Maí 2007
- Apríl 2007
Bloggvinir
- ghe13
- sigurjonth
- andrigeir
- annabjorghjartardottir
- ansigu
- agbjarn
- armannkr
- asdisol
- baldher
- h2o
- bjarnihardar
- dullur
- bjarnimax
- zippo
- westurfari
- gattin
- bryndisharalds
- davpal
- eggman
- greindur
- bjartsynisflokkurinn
- elfarlogi
- eeelle
- sunna2
- ea
- fuf
- fhg
- vidhorf
- gerdurpalma112
- gilsneggerz
- gudni-is
- lucas
- zumann
- gp
- gun
- topplistinn
- tilveran-i-esb
- skulablogg
- gustafskulason
- gustaf
- heimssyn
- diva73
- helgi-sigmunds
- hjaltisig
- minos
- hordurhalldorsson
- astromix
- fun
- jennystefania
- johanneliasson
- johannvegas
- jonatlikristjansson
- fiski
- jonl
- jonmagnusson
- jonlindal
- bassinn
- jonvalurjensson
- jvj
- thjodarskutan
- juliusbearsson
- katagunn
- kje
- ksh
- kristinn-karl
- kristinnp
- kristjan9
- loftslag
- altice
- ludvikjuliusson
- maggij
- magnusthor
- mathieu
- nielsfinsen
- omarbjarki
- huldumenn
- svarthamar
- pallvil
- peturmikli
- valdimarg
- ragnarb
- samstada-thjodar
- fullveldi
- siggus10
- sisi
- siggisig
- ziggi
- siggith
- stjornlagathing
- pandora
- spurs
- kleppari
- saethorhelgi
- tibsen
- ubk
- valdimarjohannesson
- skolli
- valurstef
- vilhjalmurarnason
- vey
- postdoc
- thjodarheidur
- icerock
- steinig
- thorsteinnhelgi
- icekeiko
Athugasemdir
Sæll Halldór
Ég er alveg sammála ykkur Óla Birni.
Forræðishyggjan og eftirlitið með öllum sköpuðum hlutum er lamandi áþján, sem dregur allan mátt úr þeim sem við þurfa að búa.
Að þurfa að kaupa sér 10-20 leyfi til að stofna smáfyrirtæki í ferðaþjónustu til dæmis og greiða svo fyrir kannski 2-5 heimsóknir einhverra plebba á ári hverju, til að líta eftir öllu heila klabbinu er auðvitað óþolandi.
Og afleiðingin er bara svört starfssemi, því menn nenna ekki að standa í ruglinu með reglugerðirnar, eftirlitið og allan kostnaðinn sem fylgir öllu kjaftæðinu.
Og í mörgum tilfellum komast góðar hugmyndir ekki á koppinn út af því að mönnum hrís hugur við báðum kostunum, bæði þeim löglega og ólöglega.
Kári S. Lárusson (IP-tala skráð) 10.9.2014 kl. 11:16
Já, þetta er nefnilega yfir 70% hækkun á skatti á mat. Og það er alveg óþolandi að núverandi stjórn skuli ætla að gera þetta. 5-7% skattur á mat er yfirdrifið nóg. Yfir 70% hækkun er níðingsskapur.
Og það var ekki einu sinni Steingrímur, það er Bjarni Ben með nýtt kalt mat. Það yrði allt vitlaust í sumum löndum, kannski fjölda landa, ef stjórnmálamönnum einu sinni dytti í hug að hækka matarskatt yfir 70%.
Elle_, 10.9.2014 kl. 17:09
Hvar getum við komist í fjárlögin, til þess að skoða þau? Eða getum við það kannski ekki fyrr en þau eru orðin að lögum?
Var að leita að þeim í gær. Fann 2014 lögin. Skoðaði þau þá.
Allir eru að fjasa um virðisaukann - sem heitir núna allt í einu matarskattur (ég er viss um að innan fárra ára verður lagður á alvöru matarskattur), en hvað með allt hitt?
Erum við enn að borga formúgur í sendiráð og aðra slíka vitleysu?
Hvað gáfum við hryðjuverkasamtökum mikið núna?
Eftirlitsiðnaðurinn er ekkert gegnsær heldur, svo við sjáum aldrei nákvæmlega hve mikið hann kostar. En tollgæzlunni getum við flett upp.
Ásgrímur Hartmannsson, 10.9.2014 kl. 17:23
Það á engin heiðarlegur, samviskusamur maður að reka lítið fyrirtæki á Ísandi.
Lítil fyrirtæki eru núin og nöguð af lífeyrissjóðum, stéttar félögum, betlurum og ríkisstofnunum sem hafa engan yfirboðara.
Réttur gagnvart þessum stofnunnum er enginn án fjármuna og lögfræðinga.
Hrólfur Þ Hraundal, 10.9.2014 kl. 21:07
Takk fyrir þetta öll.
Elle, það sem Bjarni hefur sagt að auðvitað yrðu menn að bæta höggið sem yrði af því að færa skattþrepin saman. kerfið yrði svo miklu auðveldara og betra ef þrepið væri bara eitt. Hugsaðu þér allt sem myndi skila sér betur því skilin yrðu svo miklu betri með lægri skattprósentu. ég er viss um að Bjarni mundi vilja kannski 17 % vask á allt án undantekninga. Hann gerir sér fulla grein fyrir því að það leggur hann ekki á fjölskyldurnar að hækka matarkörfuna kannski um 8 % á einu bretti án bóta.
Heldurðu að það sé nokkur vandi að útdeila matarstyrk eftir skattframtölunum sem gerði þessa skattabreytingu mögulega?
Halldór Jónsson, 10.9.2014 kl. 23:21
Kannski, Halldór minn. Kom það fram í sambandi við skattafyrirætlanirnar þó? Það væri í alvöru nauðsynlegt miðað við yfir 70% ruddalega hækkun.
Elle_, 10.9.2014 kl. 23:40
Kannski heitir þetta ekki formlega matarskattur, Ásgrímur, en það er alveg eðlilegt heiti, eða bara skattur á mat, það er það sem það er, er það ekki? Hvað þýðir annars virðiseitthvað? Guð einn veit.
Elle_, 10.9.2014 kl. 23:44
Elle, það er ég viss um að innan tíðar verður lagður á matarskattur. Annar, meina ég. Í stað sykurskattsins, og til viðbótar við virðisaukann (sem eykur ekki virði neins, gerir það bara dýrara.)
Ég veðja á að næsta ríkisstjórn setji hann á fyrir þig.
Svo setja þeir sykurskattinn á aftur. Nema hærri. Og nefna hann kærleiksgjald, eða eitthvað annað ámóta gáfulegt.
Ásgrímur Hartmannsson, 11.9.2014 kl. 09:19
Elle mín,
71.4 % hækkun matarskattsprósentunnar er ekki nema innan við 4,67 % hækkun á matarkörfunni.112/107.9.35% ef hækkað er í 17% . Maður sem kaupir 7% vöru fyrir 200 þúsnd á mánuði borgar 18.700 meira. Ef sá sem ekki á neitt fyrir sig að leggja til að kajupa mat samkvæmt skattframtali fær sendar 18.700 kr. á mánuði þá er hann jafnsettur. Nema að allt annað verðlag hefur lækkað 6.8 %, 117/125,5. Bensín, bílar,heimilstæki, útseld vinna, júnaimit.
Halldór Jónsson, 11.9.2014 kl. 09:27
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.