Leita í fréttum mbl.is

Vindmyllur virkjaðar

til þjónustu við fólkið í umhverfinu.

Nú eru farsímafyrirtækin Síminn og Vodafone að setja upp senda á vindmyllu Biokrafts í Þykkvabæ. Farsímasambandið mun því snar batna á svæðinu við þessar aðgerðir. Þar með hafa vindmyllurnar hafið þjónustu við íbúa á sviði fjarskipta. 

20141015_120715

 

 Þannig er sambýli manns og tækni eins og best verður á kosið.

Vindmyllurnar tvær af gerðinni Vestas 44, 0,6 Mw. hvor,  hafa gengið mjög vel og eru með mun meiri nýtni en gerist í Evrópu. Vegna vindaðstæðna í Þykkvabæ, þar sem sjaldan er logn, ganga þær iðullega á hámarksafköstum án þess að hávaða verði vart í nágrenninu.  Enginn fugl hefur látið lífið enda eru farfuglar Íslands langt að komnir og hafa séð eitt og annað á langri leið.

Ratsjármælingar hafa líka sýnt að álftir og gæsir fljúga fram hjá stórum vindmyllu görðum á Bretlandi án þess að bregða sér hið minnsta. Umhverfi vindmyllanna er sem óðast að gróa upp og landbúnaðargildi þess skerðist aðeins um örfáa fermetra þar sem turninn og spennistöð hans stendur. Kvikfénaður rótar sér ekki í námunda við myllurnar.

Loftnetin verða eitthvað sýnileg utan á turninum. En hverju má ekki venjast?

Í myrkri sjást blikvitarnir á vindmyllunum vel úr flugvél við Selfoss þrátt fyrir mikla gosmengun sem verið hefur á Suðurlandi síðustu daga.  

Í Þykkvabæ eru um margt kjöraðstæður fyrir vindmyllur. Engin fjöll í nágrenni og landið slétt og gróið. Og opið haf til suðurs. Vindorka er al-græn og sjálfbær orka. Og 100% endurheimtanleg  þar sem engin stór uppistöðulón eða stíflugarðar eru í nágrenni. Losaðu 120 bolta og vindmyllan er horfin og sama og ekkert sést eftir hana.

Það er gaman að sjá vindmyllur virkjaðar til almannaheilla.  


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Höfundur

Halldór Jónsson
Halldór Jónsson

verkfræðingur, flugdellukall, tennis-og badmintonspilari

-ekki góður í neinu af þessu-

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (3.5.): 2
  • Sl. sólarhring: 15
  • Sl. viku: 60
  • Frá upphafi: 3418279

Annað

  • Innlit í dag: 2
  • Innlit sl. viku: 60
  • Gestir í dag: 2
  • IP-tölur í dag: 2

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Eldri færslur

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband