Leita í fréttum mbl.is

Ef Kalífarnir kæmu hingað?

passalausir af Schengen svæðinu? Tæknilega alveg mögulegt.

Hveð myndi gerast þegar þeir hæfu sláturtíð á kristnum Íslendingum? Kæmi einhver okkur til hjálpar? Og hvenær þá? 

Svo stendur í Mogga:

Sameinuðu þjóðirnar greindu frá því í fyrradag að Ríki íslams hefði myrt fimm þúsund karla úr röðum jasída í Írak með köldu blóði og hneppt allt að sjö þúsund konur í ánauð þegar þeir réðust á heimkynni þeirra í Norður-Írak í ágúst.

Var verknaðinum líkt við tilraunina til þjóðarmorðs í Srebrenica í Bosníu 1995. Jasídarnir nutu verndar 16 þúsund hermanna Kúrda, sem flúðu þegar þúsund vígamenn Ríkis íslams birtust. "

Einnig stendur í Mogga: 

"...60 manns farið frá Noregi til að berjast í Sýrlandi, flestir í þágu Ríkis íslams og hefur straumurinn vaxið eftir að samtökin lýstu yfir stofnun ríkis í sumar..." 

Myndi NATÓ geta kallað saman fund á mánaðartíma? 

Er ekki um að gera að gera aldrei neitt fyrr en komið er í ....?. Allir Norðmenn auðvitað velkomnir hingað til lands.Endilega að hafa vegabréfalaust Ísland héreftir sem hingað til? Kalífaveldi eða ekki.

 

 

 


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Jón Þórhallsson

Í mínum augum er þetta eins og með minkinn;

=Það er betra að stöðva alla útbreiðslu ÁÐUR en í óefni er komið.

http://thjodarskutan.blog.is/blog/thjodarskutan/entry/1370194/

Jón Þórhallsson, 16.10.2014 kl. 10:33

2 Smámynd: Jón Valur Jensson

Góður Halldór, þarft framtak að benda á allt þetta! Leiðarinn líka frábær.

En skammsýni margra ríður ekki við einteyming.

Og fjölmenningarhyggjan er alveg að sliga suma menn.

Verra væri hitt, ef þeir láta hana líka sliga sína eigin þjóð.

Jón Valur Jensson, 16.10.2014 kl. 14:48

3 Smámynd: Halldór Jónsson

Takk fyrir þetta báðir tveir. Fjölmenningarhyggjan sem menn biðja um án þess að hafa horfst í augu við hvað það þýðir. Þegar kemur að því verður hinsvegar ekki aftur snúið þó menn vildu. Sbr. Bretland og það sem Enoch Powell sagði á sinni tíð. Tækifærið er nefnilega liðið.

Halldór Jónsson, 16.10.2014 kl. 15:45

4 Smámynd: Ásgrímur Hartmannsson

Ja... innanríkisráðuneytið vill að við séum varnarlaus, svo...

Við getum gengið til liðs við þá. Það er það eina rétta í stöðunni, sýnist mér.

Svo dundum við okkur bara við það fra á efri ár að nauðga fólki og/eða pynta það á alla vegu.

Það er, ef við viljum lifa.

Við erum nú vopnlaust fólk, og það er sérgrein þessara gaura að myrða svoleiðis.

Ásgrímur Hartmannsson, 16.10.2014 kl. 15:54

5 Smámynd: Jón Þórhallsson

Fjölmenning er mjög víðtækt hugtak.

Það þarf að greina kjarnann frá hisminu og meta hvert viðfangsefni fyrir sig.

Jón Þórhallsson, 16.10.2014 kl. 15:58

6 Smámynd: Jóhannes Ragnarsson

Já, þeir eru ekki beint þrifalegir draugarnir, sem morðvargarnir í NATO hafa vakið upp í ríkjum Múhámeðs spámanns.

Jóhannes Ragnarsson, 16.10.2014 kl. 21:14

7 Smámynd: Ragnar J. Jónsson

Jón Þ. og Jóhannes R. - Þetta er ekkert grín! Ekki gleyma Tirkjaráninu!! Þessir Íslamistar svífast einskis og spyrja okkur ekki um leifi!!! Þeir bara drepa fólk, þarf ekki einu sinni ástæðu.

Ragnar J. Jónsson, 17.10.2014 kl. 00:08

8 Smámynd: Hörður Þórðarson

Jamm, við skulum öll fela okkur svo að vondi karlinn taki okkur ekki. Kannski hafa þeir sem styðja við bakið á slátrurum fulla ástæðu til að óttast að þeim verði slátrað.

http://www.thebureauinvestigates.com/2014/01/23/more-than-2400-dead-as-obamas-drone-campaign-marks-five-years/

"Drones were not the first weapon the administration turned to when it started to attack the country. On December 17 2009 a US Navy submarine launched a cluster bomb-laden cruise missile at a suspected militant camp in al Majala, southern Yemen.

The missile slammed into a hamlet hitting one of the poorest tribes in Yemen. Shrapnel and fire left at least 41 civilians dead, including at least 21 children and 12 women – five of them were pregnant. A week earlier President Obama had been awarded the Nobel Peace Prize. He used his acceptance speech to defend the use of force at times as ‘not only necessary but morally justified’. He warned that ‘negotiations cannot convince al Qaeda’s leaders to lay down their arms’."

Hörður Þórðarson, 17.10.2014 kl. 18:27

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Höfundur

Halldór Jónsson
Halldór Jónsson

verkfræðingur, flugdellukall, tennis-og badmintonspilari

-ekki góður í neinu af þessu-

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (3.5.): 3
  • Sl. sólarhring: 14
  • Sl. viku: 61
  • Frá upphafi: 3418280

Annað

  • Innlit í dag: 3
  • Innlit sl. viku: 61
  • Gestir í dag: 3
  • IP-tölur í dag: 3

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Eldri færslur

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband