1.2.2015 | 22:05
7 útgerðir með 91 % kvótans.
Við eigum að klappa fyrir því bráðum að kvótanum verði ráðstafað til 25 ára til greifanna sem eiga hann þegar með þessum hætti.
Ég hitti sjómann sem rær við annan mann tæpa sólarhrings túra. Þeir leggja 12 kílómetra línu og kaupa sér leigukvóta eftir þörfum. Ef túrinn gefur eina og hálfa milljón, þá fer strax helmingurinn til kvótaeigandans. Hitt hafa þeir fyrir sig og kostnaðinn.
Hver er þessi kvótagreifi sem hirðir afraksturinn? Það veit enginn. Ekki er það þjóðin svo mikið er víst. Af hverju má þjóðin ekki eiga kvótann?. Það er af því að hann er veðsettur bankanum í boði Steingríms J.
Halda menn að þetta sé óumflýjanlegt? Af hverju er ekki hægt að setja tilkynningu í útvarpið um að kvótakerfið hafi verið afnumið frá kl 10 í fyrramálið? Það er alveg hægt. Það er alveg hægt að stýra aflanum öðruvísi. Það eru margir sem halda því fram að aflanum sé haldið niðri vegna þess að kvótagreifanrir hafi hag af því að halda honum niðri. Fiskivernd segja þeir. Grásleppan var lengst af utan kvóta, Enginn stofn hefur sætt annarri eins rányrkju.Kvenfiskurinn rifinn á hol fyrir hrognin og öllu öðru bara hent. Hefur ekki aflinn stýrt sér sjálfur? Annaðhvort veiðist eða ekki veiðist. Er hitt eitthvað öðruvísi?
Það er líklega ekki nóg að 7 útgerðir í réttri eigu séu með 91 % af auðlindinni.
Flokkur: Stjórnmál og samfélag | Facebook
Heimsóknir
Flettingar
- Í dag (22.11.): 2
- Sl. sólarhring: 6
- Sl. viku: 39
- Frá upphafi: 3419712
Annað
- Innlit í dag: 2
- Innlit sl. viku: 33
- Gestir í dag: 2
- IP-tölur í dag: 2
Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar
Eldri færslur
- Maí 2022
- Apríl 2022
- Mars 2022
- Febrúar 2022
- Janúar 2022
- Desember 2021
- Nóvember 2021
- Október 2021
- September 2021
- Ágúst 2021
- Júlí 2021
- Júní 2021
- Maí 2021
- Apríl 2021
- Mars 2021
- Febrúar 2021
- Janúar 2021
- Desember 2020
- Nóvember 2020
- Október 2020
- September 2020
- Ágúst 2020
- Júlí 2020
- Júní 2020
- Maí 2020
- Apríl 2020
- Mars 2020
- Febrúar 2020
- Janúar 2020
- Desember 2019
- Nóvember 2019
- Október 2019
- September 2019
- Ágúst 2019
- Júlí 2019
- Júní 2019
- Maí 2019
- Apríl 2019
- Mars 2019
- Febrúar 2019
- Janúar 2019
- Desember 2018
- Nóvember 2018
- Október 2018
- September 2018
- Ágúst 2018
- Júlí 2018
- Júní 2018
- Maí 2018
- Apríl 2018
- Mars 2018
- Febrúar 2018
- Janúar 2018
- Desember 2017
- Nóvember 2017
- Október 2017
- September 2017
- Ágúst 2017
- Júlí 2017
- Júní 2017
- Maí 2017
- Apríl 2017
- Mars 2017
- Febrúar 2017
- Janúar 2017
- Desember 2016
- Nóvember 2016
- Október 2016
- September 2016
- Ágúst 2016
- Júlí 2016
- Júní 2016
- Maí 2016
- Apríl 2016
- Mars 2016
- Febrúar 2016
- Janúar 2016
- Desember 2015
- Nóvember 2015
- Október 2015
- September 2015
- Ágúst 2015
- Júlí 2015
- Júní 2015
- Maí 2015
- Apríl 2015
- Mars 2015
- Febrúar 2015
- Janúar 2015
- Desember 2014
- Nóvember 2014
- Október 2014
- September 2014
- Ágúst 2014
- Júlí 2014
- Júní 2014
- Maí 2014
- Apríl 2014
- Mars 2014
- Febrúar 2014
- Janúar 2014
- Desember 2013
- Nóvember 2013
- Október 2013
- September 2013
- Ágúst 2013
- Júlí 2013
- Júní 2013
- Maí 2013
- Apríl 2013
- Mars 2013
- Febrúar 2013
- Janúar 2013
- Desember 2012
- Nóvember 2012
- Október 2012
- September 2012
- Ágúst 2012
- Júlí 2012
- Júní 2012
- Maí 2012
- Apríl 2012
- Mars 2012
- Febrúar 2012
- Janúar 2012
- Desember 2011
- Nóvember 2011
- Október 2011
- September 2011
- Ágúst 2011
- Júlí 2011
- Júní 2011
- Maí 2011
- Apríl 2011
- Mars 2011
- Febrúar 2011
- Janúar 2011
- Desember 2010
- Nóvember 2010
- Október 2010
- September 2010
- Ágúst 2010
- Júlí 2010
- Júní 2010
- Maí 2010
- Apríl 2010
- Mars 2010
- Febrúar 2010
- Janúar 2010
- Desember 2009
- Nóvember 2009
- Október 2009
- September 2009
- Ágúst 2009
- Júlí 2009
- Júní 2009
- Maí 2009
- Apríl 2009
- Mars 2009
- Febrúar 2009
- Janúar 2009
- Desember 2008
- Nóvember 2008
- Október 2008
- September 2008
- Ágúst 2008
- Júlí 2008
- Júní 2008
- Maí 2008
- Apríl 2008
- Mars 2008
- Febrúar 2008
- Janúar 2008
- Desember 2007
- Nóvember 2007
- Október 2007
- September 2007
- Ágúst 2007
- Júlí 2007
- Júní 2007
- Maí 2007
- Apríl 2007
Bloggvinir
- ghe13
- sigurjonth
- andrigeir
- annabjorghjartardottir
- ansigu
- agbjarn
- armannkr
- asdisol
- baldher
- h2o
- bjarnihardar
- dullur
- bjarnimax
- zippo
- westurfari
- gattin
- bryndisharalds
- davpal
- eggman
- greindur
- bjartsynisflokkurinn
- elfarlogi
- eeelle
- sunna2
- ea
- fuf
- fhg
- vidhorf
- gerdurpalma112
- gilsneggerz
- gudni-is
- lucas
- zumann
- gp
- gun
- topplistinn
- tilveran-i-esb
- skulablogg
- gustafskulason
- gustaf
- heimssyn
- diva73
- helgi-sigmunds
- hjaltisig
- minos
- hordurhalldorsson
- astromix
- fun
- jennystefania
- johanneliasson
- johannvegas
- jonatlikristjansson
- fiski
- jonl
- jonmagnusson
- jonlindal
- bassinn
- jonvalurjensson
- jvj
- thjodarskutan
- juliusbearsson
- katagunn
- kje
- ksh
- kristinn-karl
- kristinnp
- kristjan9
- loftslag
- altice
- ludvikjuliusson
- maggij
- magnusthor
- mathieu
- nielsfinsen
- omarbjarki
- huldumenn
- svarthamar
- pallvil
- peturmikli
- valdimarg
- ragnarb
- samstada-thjodar
- fullveldi
- siggus10
- sisi
- siggisig
- ziggi
- siggith
- stjornlagathing
- pandora
- spurs
- kleppari
- saethorhelgi
- tibsen
- ubk
- valdimarjohannesson
- skolli
- valurstef
- vilhjalmurarnason
- vey
- postdoc
- thjodarheidur
- icerock
- steinig
- thorsteinnhelgi
- icekeiko
Athugasemdir
Já, þetta eru þínir menn sem ráða, Halldór, og nú er bara að taka upp símann....Þínir menn tóku af sægreifagjaldið sem var komið á, og gerðu það á háréttum tíma fyrir "sína" menn og tóku einnig stóreignaskattinn af í leiðinni. Þetta eru þínir menn, Halldór. Láttu þá bara heyra það !
Már Elíson, 1.2.2015 kl. 23:19
Taka af hvaða sægreifagjald? Ég veit ekki betur en að það sé verið að borga veiðigjöld. Það er ekkert búið að taka það af enda er ekkert annað en eðlilegt að borgað sé afgjald fyrir nýtingu á takmarkaðri auðlind.
Halldór við getum farið 30 ár aftur í tímann og skoðað hvernig umhorfs var í sjávarútvegi þá. Það er janfvel nóg að skoða árbók Fiskifrétta. Tæp 100 skip með veiðirétt á síld sem dæmi að kroppa í fáeina þúsundatugi af tonnum um og upp úr 1990. Sjóðasukkið í algleymingi osfrv.
Frábær tími...
Sindri Karl Sigurðsson, 1.2.2015 kl. 23:31
Þið kommarnir Már hækkuðuð gjaldið sem við höfðum lagt á upp úr þakinu. . Ég var alveg sáttur við talsverða hækkun veiðigjaldsins en það voru skiptar skoðanir.
Auðlegðarskattur sem svipti gamalt fólk eignum sínum var ekki skattur heldur vemjulegt kommaofbeldi
Smári
Já við skulum gjarna fara 30 ár aftur í tímann.Þá voru þær aðstæður að of mörg skip höfðu verið keypt með pólitík og voru menn við það að fara á hausinn. Ef þetta hefði verið látið afskiptalaust þá hefði þetta lagast af sjálfu sér.Í stað þess voru allir settir á kaup hjá þóðinni.Ef menn keyptu of mörg skip í síld þá fóru þeir á hausinn. Nú fer enginn á hausinn í útvegnum.
Halldór Jónsson, 2.2.2015 kl. 08:38
Flottur pistill hjá þér Halldór til hamingju gaman að sjá þegar hugaðir menn taka upp pennan og segja sannleikann. Náttúrulega eigum við öll hvar í flokki sem við stöndum að standa upp og ráðast gegn þessari fásinnu í stjórn fisveiða sem heftir frelsið og steypir þjóðinni í eilífðar fátækt. Ef forysta flokkanna hlustar ekki ekki á kjósendur eiga þeir ekki erindi í forsvar flokkanna.
Ólafur Örn Jónsson, 2.2.2015 kl. 11:48
Akkúrat Halldór, þetta er málið. Hver borgar þessar kollsteypur síðan?
Þú veist svarið jafnvel og ég.
Sindri Karl Sigurðsson, 2.2.2015 kl. 12:57
Flott að sjá þetta Halldór og hafðu þakkir fyrir. Held að þetta sé hreinlega í fyrsta skipti sem ég er þér algerlega sammála því það hefur aldrei verið meiri þörf fyrir almenning að standa saman að því að kvótakerfið verði afnumið í eitt skipti fyrir öll og komið hér á fiskveiðikerfi sem kemur allri þjóðinni til góða.
Mæli með að fólk fari á http://soknarhopurinn.is og kynni sér það starf sem komið er af stað.
Í þessum hópi er fólk úr öllum þjóðfélagsstéttum með fjölbreyttann bakgrunn og á öllum aldri sem hefur aðeins eitt markmið og það er að koma í veg fyrir að kvótagreifarnir fái full og óskoruð umráð yfir sameiginlegri auðlind allra landsmanna, hirði allann hagnað af henni og hendi mylsnunni til þjóðarinnar eins og stefnt er að í nýju frumvarpi sem leggja á fyrir vorþing.
Jack Daniel's, 2.2.2015 kl. 14:45
Takk fyrir þessa hugvekju
Friðrik Hansen Guðmundsson, 2.2.2015 kl. 22:48
Sanntrúuðum verður gjarnan tíðrætt um tímana fyrir kvóta og helst þeir sem þá voru ófæddir.
Allt frá aldamótum 1900 og fram til fjórða áratugar voru útendingar að skarka með trollið við eldhúsglugga húsmæðranna á sjávarjörðunum.
Árið 1900 kvörtuðu sjómenn í Skagafirði við sýslunefnd um yfirgang "trollara" og báðu hana að hlutast til um að danska varðskipið Heimdal yrði sem oftast á ferð um Skagafjörð að sumri.
Ekki hafði nú þessi yfirgangur bresku togaranna meiri eyðingarmátt en svo að árið eftir segir skagfirsk heimild frá fiskveiðum með stuttri fregn:
Aflaföng reyndust góð.
Enn í dag, eftir meira en aldarlangt skark trollaranna á Halanum dóla jafnvel tugir togara með trollið á eftir sér í sömu togslóð á góðum degi.
Og Sindri Karl. Árið 1774 veiddust 269 þorskar fyrir öllu Norðulandi á einu sumri á 70 lesta skútu sem var stærsta fiskiskip okkar. Var of stórum skipakosti um að kenna og ofveiði árin á undan?
Hvenær varð það pólitískt snilldarbragð að ríkið tæki í taumana með offjárfestingu atvinnuveganna, Sindri Karl?
Og hvenær hættu náttúrulegar sveiflur í lífríkinu að stýra fiskigengd.? Og hvenær munu bjánar hætta að belgja sig út í umræðum um málefni sem þeir bera ekki skynbragð á?
Árni Gunnarsson, 3.2.2015 kl. 22:18
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.