Leita í fréttum mbl.is

Lög til sjálfsmorðsfrestunar

er það eina sem þýðir í þessari svonefndu kjaradeilu sem nú stendur yfir.

Kröfurnar eru ýmist albrjálaðar eða óraunhæfar. Varla hefur heyrst vitræn rödd sem leggur eitthvað skynsamlegt til málanna.

Útilokað er að fást við þá alvitlausustu og semja um leið við hina sem eru með eitthvað vit í kollinum. Þessvegna verður að grípa inn í með valdi til að þessir óvitar fari ekki með þjóðina út í óraunhæfar taxtatölur sem leiða til verðbólgu eins og við sáum hér um 1980 sem fór í 120 %.

Það hafa flestir of lítið sem ég þekki. Það eru flestir hundfúlir með kjör sín. En vill einhver 30 % kauphækkun og svo tafarlausa 15 % skattahækkun?  Né heldur tel ég  að einhver vilji fá einhverja krónutölu ofan á launin sín vitandi það að verðbólgan muni hirða hækkunina tvöfalda til baka innan ársins og húsnæðislánin hækki um verðbólguna.

Heldur vilji menn sjá verðlækkanir og styrkingu krónunnar. Í minni okkar eldri eru þeir tímar sem kauptaxtar hækkuðu 4000% á sama tíma sem kaupmáttur lækkaði. Enginn vill þetta raun og veru. En líklega eru ýmsir forystumenn búnir að mæla of mikið eins og Hrafnkell Freysgoði á sinni tíð. Því þarf því að hjálpa þeim til að halda andlitinu.

Ég legg til að sett verði lög sem banni öll verkföll til 1,desember í ár. Þá verði félögunum heimilt að boða til verkfallanna aftur en nú öll í einu á sama degi. Hugsanlega er janúar 1916 hentugur til allsherjarverkfalls.

Lögin nýju segi til um að persónuafsláttur verði hækkaður um A krónur. Jafnframt hækki allir kauptaxtar í landinu, annarra en þeirra sem  sami hafa á þessu ári, um X krónur þegar í stað. Í júlílok hækka öll laun um Y krónur. Í nóvember hækka öll laun um Z krónur. X,Y Z eru hjón var kveðið í den tíð. Hinir vísustu menn komi saman til að afstýra þjóðarsjálfsmorðinu sem nú er að hefjast. 

Hver er hagnaðurinn af þessu miðað við að fara í mánaðarverkfall núna? Tólfti partur af þjóðarframleiðslu gæti verið nálægt sanni eða svona 120 milljarðar. Lán munu ekki hækka að höfuðstóli um fjórðung til næsta desember eins og stefnir í að óbreyttu. Gengið mun geta styrkst hugsanlega 5-10 % og erlend vara lækka sem því nemur. Fleira geta hagfróðari menn en ég reiknað út með nákvæmari hætti.    

Lög sem fresta verkföllunum núna eru lög sem fresta sjálfsmorði þjóðar.

 

 

 


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Höfundur

Halldór Jónsson
Halldór Jónsson

verkfræðingur, flugdellukall, tennis-og badmintonspilari

-ekki góður í neinu af þessu-

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (3.6.): 7
  • Sl. sólarhring: 8
  • Sl. viku: 35
  • Frá upphafi: 3420867

Annað

  • Innlit í dag: 4
  • Innlit sl. viku: 28
  • Gestir í dag: 4
  • IP-tölur í dag: 4

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Eldri færslur

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband