26.6.2015 | 08:55
Rögnunefndin kveður
með afskaplega fallegum upplestri formannsins fagra á niðurstöðunum. Skeggjað fés frumkvöðulsins var hvergi í augsýn þó hann sé yfirleitt fremstur þegar myndavélar eru í boði.
Dagur B. Eggertsson lét setja þessa nefnd saman til þess að taka flugvallarmálið af herðum sér fyrir kosningarnar þar sem flokkur hans stóð höllum fæti og raunar tapaði duglega eins og hann hafði til unnið. En tilviljunin færði Degi kauptækifæri með fjármunum borgarbúa sem hann notaði til að kaupa Pírata til liðs við borgarstjórastól sinn og vegtyllur fyrir kumpáninn EssBjörn, sem þó heldur sig meira til hlés í seinni tíð.
Og Dagur er óspar á peninga fólksins eins og fyrri daginn og flestir af hans sauðahúsi. Hann mokaði því hiklaust í Rögnunefndina þar sem hann var svo líka einn launaþiggjendanna og tryggði þar með þá niðurstöðu fyrirfram að endurbætur á Vatnsmýrarflugvelli kæmu ekki á dagskrá.
Í Morgunblaðinu stendur þetta:
" Það er verið að vekja upp gamlan draug,« sagði Ómar Ragnarsson, einkaflugmaður og fyrrverandi fréttamaður, við mbl.is..Hann rifjaði upp að fyrir 55 árum hefðu verið uppi hugmyndir um flugvöll í Kapelluhrauni, skammt frá Hvassahruni.
Sú hugmynd hefði verið slegin út af borðinu eftir að prófað hefði verið að fljúga vélum til skiptist að og frá Reykjavíkurflugvelli í hvassri aust-suðaustanátt, sem væri algengasta vindáttin á höfuðborgarsvæðinu, og jafnframt að og frá hugsanlegu flugvallarstæði í Kapelluhrauni. »Hefur Reykjanesfjallgarðurinn fjarlægst og lækkað síðustu 55 árin og hefur vindurinn minnkað,« spurði Ómar.
Framsókn og flugvallarvinir segja í fréttatilkynningu miður að hlutverk Rögnunefndarinnar hafi ekki verið að leggja mat á hagkvæmni þess að halda Reykjavíkurflugvelli í núverandi mynd, heldur aðeins að athuga hvort önnur flugvallarstæði kæmu til greina fyrir rekstur innanlandsflugs. Ítrekar flokkurinn stuðning sinn við óbreyttan Reykjavíkurflugvöll í Vatnsmýri."
Frá þessu nýfundna flugvallarstæði er til þess að gera stutt til Pattersons flugvallar þar sem langar undirbyggðar flugbrautir bíða lagfæringa fyrir einkaflug og öllu því tengdu. Mun styttra en á Stóra Kropp. Lagfæring Patterson kostar brot af milljarðatugunum sem þeir Dagur Bé eru búnir að finna legstað fyrir í Hvassahrauni. Frá Patterson er svo hægt að taxéra upp á Keflavíkurflugvöll ef svo ber undir. Sameiginlega flugstjórn fyrir báða velli í Keflavík er hægt að viðhafa auðveldlega.
Fjallið hefur sem sagt tekið jóðsótt og músin er fædd. Nú flautar Dagur Bé. á jarðýturnar og byrjar framkvæmdir við að gefa hinum og þessum lönd í Vatnsmýri þá hann hafi ekki getað sannað eignarhald sitt ennþá á neinu á því svæði.
Rögnunefndin kveður og heldur af stað í skýstrók til himna
Flokkur: Stjórnmál og samfélag | Breytt s.d. kl. 08:57 | Facebook
Heimsóknir
Flettingar
- Í dag (21.11.): 4
- Sl. sólarhring: 4
- Sl. viku: 42
- Frá upphafi: 3419710
Annað
- Innlit í dag: 3
- Innlit sl. viku: 35
- Gestir í dag: 3
- IP-tölur í dag: 3
Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar
Eldri færslur
- Maí 2022
- Apríl 2022
- Mars 2022
- Febrúar 2022
- Janúar 2022
- Desember 2021
- Nóvember 2021
- Október 2021
- September 2021
- Ágúst 2021
- Júlí 2021
- Júní 2021
- Maí 2021
- Apríl 2021
- Mars 2021
- Febrúar 2021
- Janúar 2021
- Desember 2020
- Nóvember 2020
- Október 2020
- September 2020
- Ágúst 2020
- Júlí 2020
- Júní 2020
- Maí 2020
- Apríl 2020
- Mars 2020
- Febrúar 2020
- Janúar 2020
- Desember 2019
- Nóvember 2019
- Október 2019
- September 2019
- Ágúst 2019
- Júlí 2019
- Júní 2019
- Maí 2019
- Apríl 2019
- Mars 2019
- Febrúar 2019
- Janúar 2019
- Desember 2018
- Nóvember 2018
- Október 2018
- September 2018
- Ágúst 2018
- Júlí 2018
- Júní 2018
- Maí 2018
- Apríl 2018
- Mars 2018
- Febrúar 2018
- Janúar 2018
- Desember 2017
- Nóvember 2017
- Október 2017
- September 2017
- Ágúst 2017
- Júlí 2017
- Júní 2017
- Maí 2017
- Apríl 2017
- Mars 2017
- Febrúar 2017
- Janúar 2017
- Desember 2016
- Nóvember 2016
- Október 2016
- September 2016
- Ágúst 2016
- Júlí 2016
- Júní 2016
- Maí 2016
- Apríl 2016
- Mars 2016
- Febrúar 2016
- Janúar 2016
- Desember 2015
- Nóvember 2015
- Október 2015
- September 2015
- Ágúst 2015
- Júlí 2015
- Júní 2015
- Maí 2015
- Apríl 2015
- Mars 2015
- Febrúar 2015
- Janúar 2015
- Desember 2014
- Nóvember 2014
- Október 2014
- September 2014
- Ágúst 2014
- Júlí 2014
- Júní 2014
- Maí 2014
- Apríl 2014
- Mars 2014
- Febrúar 2014
- Janúar 2014
- Desember 2013
- Nóvember 2013
- Október 2013
- September 2013
- Ágúst 2013
- Júlí 2013
- Júní 2013
- Maí 2013
- Apríl 2013
- Mars 2013
- Febrúar 2013
- Janúar 2013
- Desember 2012
- Nóvember 2012
- Október 2012
- September 2012
- Ágúst 2012
- Júlí 2012
- Júní 2012
- Maí 2012
- Apríl 2012
- Mars 2012
- Febrúar 2012
- Janúar 2012
- Desember 2011
- Nóvember 2011
- Október 2011
- September 2011
- Ágúst 2011
- Júlí 2011
- Júní 2011
- Maí 2011
- Apríl 2011
- Mars 2011
- Febrúar 2011
- Janúar 2011
- Desember 2010
- Nóvember 2010
- Október 2010
- September 2010
- Ágúst 2010
- Júlí 2010
- Júní 2010
- Maí 2010
- Apríl 2010
- Mars 2010
- Febrúar 2010
- Janúar 2010
- Desember 2009
- Nóvember 2009
- Október 2009
- September 2009
- Ágúst 2009
- Júlí 2009
- Júní 2009
- Maí 2009
- Apríl 2009
- Mars 2009
- Febrúar 2009
- Janúar 2009
- Desember 2008
- Nóvember 2008
- Október 2008
- September 2008
- Ágúst 2008
- Júlí 2008
- Júní 2008
- Maí 2008
- Apríl 2008
- Mars 2008
- Febrúar 2008
- Janúar 2008
- Desember 2007
- Nóvember 2007
- Október 2007
- September 2007
- Ágúst 2007
- Júlí 2007
- Júní 2007
- Maí 2007
- Apríl 2007
Bloggvinir
- ghe13
- sigurjonth
- andrigeir
- annabjorghjartardottir
- ansigu
- agbjarn
- armannkr
- asdisol
- baldher
- h2o
- bjarnihardar
- dullur
- bjarnimax
- zippo
- westurfari
- gattin
- bryndisharalds
- davpal
- eggman
- greindur
- bjartsynisflokkurinn
- elfarlogi
- eeelle
- sunna2
- ea
- fuf
- fhg
- vidhorf
- gerdurpalma112
- gilsneggerz
- gudni-is
- lucas
- zumann
- gp
- gun
- topplistinn
- tilveran-i-esb
- skulablogg
- gustafskulason
- gustaf
- heimssyn
- diva73
- helgi-sigmunds
- hjaltisig
- minos
- hordurhalldorsson
- astromix
- fun
- jennystefania
- johanneliasson
- johannvegas
- jonatlikristjansson
- fiski
- jonl
- jonmagnusson
- jonlindal
- bassinn
- jonvalurjensson
- jvj
- thjodarskutan
- juliusbearsson
- katagunn
- kje
- ksh
- kristinn-karl
- kristinnp
- kristjan9
- loftslag
- altice
- ludvikjuliusson
- maggij
- magnusthor
- mathieu
- nielsfinsen
- omarbjarki
- huldumenn
- svarthamar
- pallvil
- peturmikli
- valdimarg
- ragnarb
- samstada-thjodar
- fullveldi
- siggus10
- sisi
- siggisig
- ziggi
- siggith
- stjornlagathing
- pandora
- spurs
- kleppari
- saethorhelgi
- tibsen
- ubk
- valdimarjohannesson
- skolli
- valurstef
- vilhjalmurarnason
- vey
- postdoc
- thjodarheidur
- icerock
- steinig
- thorsteinnhelgi
- icekeiko
Athugasemdir
Hver borgaði fyrir þessa Rögnunefnd, raunar Dagsnefnd og til hvers var það gert? Það hefur alltaf legið fyrir að brúklegt pláss fyrir höfuðborgar flugvöll er bara að finna á Bessastaðanesinu og svo þar sem hann er. Þó að Ragna hafi verið skást af öllum i ríkistjórn Jóhönnu vitlausu þá er ekkert víst að hún sé sérfræðingur í staðsetningu flugvalla.
Hrólfur Þ Hraundal, 26.6.2015 kl. 17:21
Þakka þér góða ádrepu, Halldór!
Var yfirleitt nokkur fagmaður í flugfræðum í Rögnunefndinni? Hefðu flugmenn ekki fremur átt heima í henni en Dagur B. Eggertsson?
Jón Valur Jensson, 26.6.2015 kl. 17:43
Sæll Halldór Ég ætlaði að leggja fram spurningar í atugasemdirá bloggi Jóns Magnússonar hrl. en það voru giðingar hjá honum sem ég komst ekki í gegn Spurningar mínar voru bara 2 sem kannski þú gætir svarað
1 .Borgar Dagur B. fyrir Reykjavíkurflugvöll.Borgi hann ekki,Gæti jón t.d innheimt eignarhluta þinn og minn í sameign okkar í Reykjavíkurflugvelli ???
Eðvarð Lárus Árnason (IP-tala skráð) 26.6.2015 kl. 18:02
Ég er nú búinn að glugga í skýrslu Rögnunefndarinnar. Þar koma "flugkvikureikningar" í stað aðflugsrpófana sem er búið að marggera vegna Kapelluhrauns sem gaf margfalt verri niðurstöðu en Reykjavíkurflugvöllur i Vatnsmýri.
Þessi skýrsla er mjög ótrúverðug sérlega eftir að verkfræðistofan Efla lét kaupa sig til að skrifa skýrsluna fyrir ISAVIA þar sem allar staðreyndir um vinda voru talaðar niður samkvæmt því sem mér skildist á andsvari Leifs Magnússonar . Ég sé enga ástæðu til að taka tölur nefndarinnar öðruvísi en með fyrirvara.
Og niðurstaðan er skondin1.22 milljarðar fyrir að vegalengdin úr Fossvogi að Hvassahraunsflugvelli er aðeins 21 km. Þá eru eftir 29 km til Keflavíkur en kannski um 20 að Patterson. Bíll á 100 km hraða er 12 mínútur frá Hvassahrauni að Patterson eða 19 mínútur til Keflavíkur.
Aðeins þrautþjálfað fólk í gersamlegri fyrirlitningu á verðmæti og meðferð skattfjár getur komið með svona tillögur fyrir almenning. 22 milljarðar út í loftið fyrir svona tillögur.
Halldór Jónsson, 26.6.2015 kl. 18:45
Mjög athyglisvert, Halldór!
Jón Valur Jensson, 26.6.2015 kl. 22:05
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.