Leita í fréttum mbl.is

Hvassahraun er gamalt grín

ef litið er til baka til ársins 2001. Þá birtist eftirfarandi í Vísi:

"

Grétar H. Óskarsson, fulltrúi í fiugöryggisráði Alþjóða flugmálastofnunarinnar, telur að Reykjavikurflugvöllur muni duga eins og hann er í Vatnsmýrinni næstu 15 árin. Ef þörf verður á að flytja hann þá telur Grétar að besti kosturinn verði að flytja hann til Keflavíkur.

Eftir 2016, þegar margt verður breytt og mikið vatn runnið til sjávar, held ég að byggðin verði orðin þannig að Keflavik verði ekkert fjær miðborginni heldur en eitthvað annað," segir Grétar. „Byggðin teygirsig þarna suður eftir og flugvöllurinn er þarna og þetta eru engar veglengdir miðað við í öðrum löndum."

Grétar segir það vera óraunhæfan kost að setja Reykjavíkurflugvöll í Hvassahraun.

Það er algjörlega óraunhæft að fara að byggja flugvöll einhvers staðar [í Hvassahrauni], hálfa leið til Kefiavíkur, það er bara bull. Þú hefur ekki tvo flugvelli í 10 mínútna akstri hvorn frá öðrum," segir Grétar.

Jafnframt segir hann það að setja flugvöllinn allan eða að hluta til í Skerjafjörðinn vera lakan kostvegna sjóroks og veðragangs.

Hið sama telur Grétar vera að segja um styttingu flugbrautanna eins og fram kemur í hugmyndum Gísla Halldórssonar arkitekts um breytt skipulag Reykjavíkurflugvallar. Ástæðan er sú að fáar flugvélar geta notað styttri flugbrautir og telur Grétar þróunina í flugmálum ekki stefna i þá átt að spara pláss í flugbrautum.

Flugvöllurinn í Reykjavík þarf ekkert að vera stærri en flugvöllurinn á Akureyri, á Egilsstöðum eða á ísafirði. Það eru nákvæmlega sömu flugvélar sem fljúga þarna á milli. Út af fyrir sig er Reykjavíkurflugvöllur ekki varaflugvöllur fyrir alþjóðaflugið, hann er svo nærri Keflavík og því ekki nothæfur sem slíkur. Á Egilsstöðum er varaflugvöllur því hann er á öðru veðursvæði," segir Grétar.

Reykvíkingar munu ganga til kosninga í næsta mánuði um það hvort flytja skuli völlinn

 

Vísir 16. febrúar 2001"

Líklega er það ólíklegt að menn sjái sérstaka hagkvæmni í því að fara að byggja flugvöll á einkalandi í Hvassahrauni. Líklega eru þau atriði sem Grétar nefnir þau rök sem þyngst vega í sambandi við niðurstöðu Rögnunefndar. Byggðin er á leið suður eftir. 

Eigi að leggja Reykjavíkurflugvöll niður er þá ekki ódýrast á þessum tímapunkti að byggja nýtt Háskólasjúkrahús þar suðurfrá? Er eitthvað sérstakt að því að flytja sjúka Reykvíkinga suður eftir en landsbyggðarfólk beint með flugi?

Hver þarf Reykjavík sem höfuðborg ef hún vill ekki vera það?  

 


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Höfundur

Halldór Jónsson
Halldór Jónsson

verkfræðingur, flugdellukall, tennis-og badmintonspilari

-ekki góður í neinu af þessu-

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (21.11.): 4
  • Sl. sólarhring: 4
  • Sl. viku: 42
  • Frá upphafi: 3419710

Annað

  • Innlit í dag: 3
  • Innlit sl. viku: 35
  • Gestir í dag: 3
  • IP-tölur í dag: 3

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Eldri færslur

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband