Leita í fréttum mbl.is

Eldhúsdagur

á Alþingi var fróðlegur að vanda. Ég dáðist að því hversu margir þingmenn höfðu vandað til klæðaburðar við þennan viðburð. Pírataskammirnar skáru sig að sjálfsögðu úr með að karlar voru slifsislausir eins og Borgarahreyfingin sáluga.

En málflutningur sumra stjórnarandstöðuþingmanna kom mér á ovart. Ég vissi ekki að hagsmunir gangandi og hjólandi skiptu svona miklu meginmáli í hugarheimi prúðbúins þingmanns bjartrar framtíðar.

Og væntanleg ný stjórnarskrá virtist verða staðreynd í hugum pírata á næsta ári sem verður kosið um þegar við kjósum til Forseta hvort eð er ?  Ný stjórnarskrá sem samin verður á grundvelli heiðarleika eftir tillögum á stjórnlagaþingi fyrir margt löngu mun tryggja að hér geti verið reglubundnar þjóðaratkvæðagreiðslur, sem tryggja þetta beina lýðræði sem kallað er.  

Og ég sem var kominn að þeirri niðurstöðu hvað mig varðar að mér finnist núverandi stjórnarskrá alveg nógu góð fyrir mig að minnsta kosti. Nei, þetta fólk þarf nýja stjórnarskrá til að geta andað.

Mikið dáðist ég að steinrunnu andliti Einar K. Guðfinnssonar í baksýn þegar stjórnarandstöðufólkið fór hamförum í pontunni.

Einn minntist þó á möguleika sem ég varð ánægður með. Hann væri að stjórnarandstaðan færi heim til sín af þinginu þegar búið er að mynda meirihluta og kæmi þar ekki meir. Þetta fannst mér skynsamlegur möguleiki sem myndi spara okkur mikið málæði og dýran tíma. Þetta fólk væri bara heima í sínu gersamlega áhrifaleysi. Það gæti kannski fengið að koma á eldhúsdaginn og þylja bölbænir sínar án takmarkana með nákvæmlega sömu áhrifum nema þingið hefði verið búið svona tveimur mánuðum fyrr.

Er ekki hægt að útfæra þessa bráðgóðu tillögu betur fyrir næsta eldhúsdag?


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Jóhann Kristinsson

Ef islendingar hefðu IQ yfir 68, það er mitt IQ númer, þá mundu þau sjá að breyta Stjórnarskrá eins og hún leggur sig gengur ekki upp.

það sem ætti að gerst er að eitt málefni stjórnarskrárinnar ætti að taka fyrir á fjögra ára fresti.

En svona þér að segja Halldór, þá hefur stjórnaskráin eins og hún er staðið sig vel samkvæmt bókstaf. Vandamálið er að löggjafarvaldið, framkvæmdarvaldið og síðast en ekki síst dómsvaldið hafa virt stjórnarskrána að vettugi þegar það hentar þeim.

Í raun og veru þarf nýja stjórnarskrá eða þarf bara að fara eftir þeirri sem er nú fyrir hendi og í gildi?

Kveðja frá Houston

Jóhann Kristinsson, 3.7.2015 kl. 03:05

2 Smámynd: Halldór Jónsson

Já Jói

mitt ækjú upp á fimmtíu kannski sé þó það, að að hávaðinn af stjórnarandstöðunni reynir að höfða til mín og miðurgefinna.

En þeir ná ekki til mín, þá vantar eitthvað greyin. Mér finnst þeir svo ömurlegir að það hálfa væri nóg. Sjáið til dæmis þennan Róbert Marsjall. Snotrasti piltur í sparifötunum með slifsi. Bara mannsmynd á honum þennan dag. En herre Gud, hvaðan kemur þessi forneskja að nútíma þjóðfélag stórbatnandi lífskjara sem hann heimtar verði drifin áfram af hjólandi og labbandi umferð. Hverskonar vitleysa er þetta? Hvað vill maðurinn? Þjóð sem föndrar í leður og hefur landsnámshænur heima hjá sér? Hvern fjandann heldur hann að ný stjórnarskrá hafi með framþróun þjóðarinar að gera?

Sér hann ekki að færri reglur og minna þras um bókstafi sé það sem þjóðina vantar? Meiri verðmæti svo hægt sé að gera eitthvað fyrir þá sem eru í þörf? Minna kjaftæði og meiri framkvæmdir hjá bæði honum og öðrum?  

Hann púar Bjarna Ben niður á þinginu svo Bjarni bara gefst upp og sest og nennir ekki að tala við vitleysingana. Er þetta það sem vantar á Alþingi til að endurreisa virðinguna? Auðvitað væru þeir bara betur komnir heima hjá sér heldur en að svekkja þjóðina með þessu vitleysisgaspri um fundarstjórn forseta. Sjáið Svandísi Svavarsdóttur. Er þessi manneskja með réttu ráði gargandi og froðufellandi í pontu? Ég stórefast um það prívat og persónulega?

Halldór Jónsson, 3.7.2015 kl. 22:50

3 Smámynd: Jóhann Kristinsson

Já félagi Halldór, það er mikið talað í pontu Alþingis af stjórnarandstæðingum, en ekki er sú umræða málefnaleg. Þetta er yfirleitt upphrópanir og skítkast í einhvern þingmann í stjórnarliðinu en ekkert um málefnið sem er til umræðu.

Þetta hjóla fyrirbæri er auðvitað út í hött og íslenskar aðstæður eru ekki eins og t.d. í Amsterdam og Kaupmannahöfn.

Lög og reglur eru að yfirkeyra þjóðfélagið og þá sérstaklega fyrirtæki, ekki bara á Íslandi þetta er vandamál í all flestum löndum. Það er sagt að með næstum því hverju einasta regluverki eða lagabálka þá missum við bita af frjálsræði og sjálfstæði okkar.

Það besta sem gæti komið fyrir okkur hér í USA væri að þingmenn færu í nokkra ara verkfall, ég er mjög ánægður þegar það er málþóf á þingi, því minni skaða getur þetta lið gert okkur. Á Íslandi ættu allir að fagna öllu málþófinu síðasta þingtímabil.

Kveðja frá Houston

Jóhann Kristinsson, 4.7.2015 kl. 13:30

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Höfundur

Halldór Jónsson
Halldór Jónsson

verkfræðingur, flugdellukall, tennis-og badmintonspilari

-ekki góður í neinu af þessu-

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (3.5.): 0
  • Sl. sólarhring: 13
  • Sl. viku: 58
  • Frá upphafi: 0

Annað

  • Innlit í dag: 0
  • Innlit sl. viku: 58
  • Gestir í dag: 0
  • IP-tölur í dag: 0

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Eldri færslur

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband