Leita í fréttum mbl.is

Formaður óskast

fyrir stjórnmálaflokk sem er á mikilli siglingu til bjartrar framtíðar. "Háseti óskast á línu og net".

Greint var frá því um helgina að Guðmundur Steingrímsson þingmaður muni hætta sem formaður Bjartrar framtíðar þann 5. september næstkomandi þegar landsfundur flokksins verður haldinn. Róbert Marskálkur mun þá einnig segja af sér sem formaður þingflokks. Er þetta sameiginleg ákvörðun þeirra og vilja þeir með þessu veita hvor öðrum svigrúm til að stýra flokknum. Nú er eftir að vita hvað flokkurinn segir um þetta.

Svigrúm til að stýra flokknum? Hvert? Skyldi það vera hreint aukaatriði þegar allt er bara bjart?

Síðastliðinn fimmtudag hélt flokkurinn fund þar sem staða flokksins var rædd. Innan við hundrað manns mættu á fundinn og þar tilkynnti Guðmundur að hann myndi ekki bjóða fram krafta sína áfram sem formaður flokksins. 4,4 prósent fylgi nær varla mellanöl þannig að það vantar allan legg í flokkinn og ekki að búast við að neinn kveiki á því.

Af viðtölum við önnur stórstirni flokksins má ráða að þar séu margir kallaðir. Þar bara bíði eftir að það verði kallað á þá.

Einhvernvegin vorkennir maður þessu fólki svolítið. Kannast maður ekki við það í kosningum að kjósendur láti sig vanta?En þetta hlýtur að vera svekkjandi eftir svo langan þingferil Guðmundar Steingrímssonar að sitja uppi með svona lítið fylgi við þær brennandi hugsjónir sem hann hafði fyrir kosningar. Og nú að það þurfi einskonar boðhlaup forystumanna til að elta þetta fylgi uppi?

Margt illa upplýst fólk eins og ég til dæmis hef alls ekki fylgst nógu vel með til að geta dæmt um gæði eða birtustig framtíðar Guðmundar Steingrímssonar sem vegna erfðamengis síns hlýtur að hafa eitthvað mjög merkilegt að segja. En Guðmundur mun áreiðanlega snúa aftur inn á vettvang stjórnmálanna eins og Marteinn Mosdal og Gunnar á Hlíðarenda og koma með óvæntan vinkil á þjóðmálin.

Stundum virðist það best í pólitík að segja sem minnst eins og Píratar. Stundum virðast menn segja of mikið eins og Sjálfstæðisflokkurinn því ekkert virðist stoða að tala fallega við kjósendur.Fylgið er pikkfast og hreyfist ekki. Svo er þjóðinni á Útvarpi Sögu skelfing illa við eitthvað sem þeir kalla fjórflokk, sem manni skilst að sé samstæð heild með það hlutverk að svíða öll efnisleg gæði af venjulegu fólki auk hrekkja aldraða og öryrkja af ýmsu tagi. Allt vandlega falið undir guðrækilegu yfirvarpi.

Ég er búinn að hlusta á það sem formaður Sjálfstæðisflokksins er búinn að segja um makrílbannið. Ég hlusta og hlusta en heyri ekkert nema blæinn í laufi frá Pírötunum. Þeir kannski leysa þetta fyrir okkur með þögninni? 

Það eru líklega komnir aðrir tímar í pólitík en verið hafa. menn eru minna ginkeyptir fyrir loforðum og ræðuhöldum. Menn vilja bara sjá aðgerðir eins og vörugjaldalækkunina. Þakka svo fyrir með því að kjósa eitthvað annað. Sem er ágætt því hvað hefur maður að gera við einhverjar framtíðarsýnir á einskonar miðilsfundum flokkanna?

En það vantar formann eða formenn. Líst mér á og líst mér á sagði hásetinn fyrir talninguna í brimróðurinn á Stokkseyri, fimm formennirnir?

Þó að formennska sé alltaf sérstakt fyrirbrigði þá er ekki víst hversu fer með brimróðurinn ef formennskan er sett í nefnd. Þuríður formaður hefði sjálfsagt lagt kollhúfur við slíkum tillögum enda var framtíð hennar ekki alltaf björt.


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Jón Þórhallsson

Hver eru 3 stærstu stefnumál Bjartrar framtíðar?

Hvað telur Björt framtíð sig t.d. hafa fram yfir

Vinstri-græna, Samfylkinguna eða Pírata?

Jón Þórhallsson, 24.8.2015 kl. 09:58

2 Smámynd: Kristján P. Gudmundsson

Mér skilst,sð BF sjtji í bæjarstjórnum í nágrannasveitarfél0gum og gabgi vel.

Bloggvinar kveðja

kristjan9

Kristján P. Gudmundsson, 25.8.2015 kl. 04:46

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Höfundur

Halldór Jónsson
Halldór Jónsson

verkfræðingur, flugdellukall, tennis-og badmintonspilari

-ekki góður í neinu af þessu-

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (28.4.): 6
  • Sl. sólarhring: 7
  • Sl. viku: 50
  • Frá upphafi: 3418231

Annað

  • Innlit í dag: 6
  • Innlit sl. viku: 48
  • Gestir í dag: 6
  • IP-tölur í dag: 6

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Eldri færslur

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband