Leita í fréttum mbl.is

Kynjafasismi

er orðið sem mér dettur fyrst í hug þegar ég les tillögur framkvæmdastjórnar Sjálfstæðiskvenna um nýjar skipulagsreglur fyrir Sjálfstæðisflokkinn.

Lítum á tillögurnar:

"Við val landsfundarfulltrúa í samræmi við ofangreint skal velja jafn marga karla og konur. Einungis er heimilt að víkja frá því þegar um oddatölu er að ræða og þá aðeins sem nemur einum fulltrúa.“

Aftan við 13. grein bætist: „Við kosningu fulltrúa í kjördæmisráð í samræmi við ofangreint skal kjósa jafn marga karla og konur. Einungis er heimilt að víkja frá því þegar um oddatölu er að ræða og þá aðeins sem nemur einum fulltrúa.“

Ákvæði 23. grein hljóði svo (viðbót skáletruð): Kjördæmisráð kýs úr sínum hópi kjördæmisstjórn sjö manna. Formaður kjördæmisráðs skal kjörinn sérstaklega en stjórn þess skiptir að öðru leyti með sér verkum. Skal hvort kyn eiga a.m.k. 3 fulltrúa í stjórn. Heimilt er þó að stjórnina skipi allt að fimmtán manns, enda sé sú tilhögun samþykkt með minnst tveimur þriðju atkvæða.

Skal þá hlutfall kynja vera sem jafnast svo ekki muni nema einum fulltrúa. Ráðið hefur enn fremur heimild til að skipa skipulagsnefnd, fjármálanefnd, útgáfu- og upplýsinganefnd og aðrar nefndir sem hún telur ástæðu til.

Formenn kjördæmissamtaka ungra sjálfstæðismanna eru sjálfkjörnir í stjórn kjördæmisráðs. Kjördæmisráð kýs hvert um sig þrjá fulltrúa í miðstjórn og þrjá til vara en fulltrúaráðið í Reykjavík þrjá fulltrúa fyrir hvort Reykjavíkurkjördæmi í miðstjórn og þrjá til vara. Við kosningu fulltrúa í miðstjórn í samræmi við framangreint skal kjósa jafn marga karla og konur."

Er heilabú kvenna annarrar gerðar en heilabú karla? Hverskonar furða er þessi samsuða? Á ekki að kjósa eftir hvað er í heilabúum fólksins? Eða á að kjósa eftir útlitsfegurð?

Ef konur láta karla kjósa úr kvennahópi, er þá líklegt að karlarnir kjósi eftir því hvernig þeim lítist á heilabú frambjóðendanna heldur einhverju öðru? Hvað með fegurðarsamkeppnirnar?

Hverskonar hugsun er þarna á bak við? Eru konur svona miklu lakari körlum að það verði að kjósa þær á annan hátt en karla? Sem eru ekki kosnir eftir vöðvamassa, líkamshæð, tattúum, skeggi eða drykkjulátum. Kjörþokki felst í vitsmunum. 

Hvernig á að vera í stjórnmálaflokki við svona ólýðræðislega stjórnarhætti? 

Mér, sem elska og virði konur yfirleitt umfram karlmenn, finnst þetta vera hreinn kynjafasismi og neita að taka þátt í því bulli að konur standi körlum eitthvað að baki. 


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Tómas Ibsen Halldórsson

Næsta skref verður væntanlega að segja hverjir megi vera í framboði og hverja eigi að kjósa, þ.e. nafnalistum dreift og fulltrúum sagt hvaða nöfn skuli valin.

Ég er sammála þér Halldór, þetta er ótrúlegt, alveg með eindæmum.

Tómas Ibsen Halldórsson, 15.10.2015 kl. 11:12

2 identicon

Hokið er ég sammála þér Halldór.

Hafsteinn Reykjalín (IP-tala skráð) 15.10.2015 kl. 11:27

3 identicon

Ég legg til að gengið verði lengra. Fólki verði skipt upp eftir aldri (hver hópur innifeli að hámarki 10 ára aldurshóp) og menntunarstigi og gerð umgjörð þannig að fulltrúi hvers flokks komi fram á öllum stigum. Skoða má líka að skipta upp eftir póstnúmerum og þá gefa prímtölum sérstakt vægi.

Annars er þetta bara ekki lýðræði.

Fyrir þá sem eru í vafa, þá er hér um kaldhæðni að ræða.

Þrándur (IP-tala skráð) 15.10.2015 kl. 13:50

4 identicon

Svo finns mér einnig til að fullkomna vitleysuna, að tryggt sé að það séu jafn margir karlmenn og kvenmenn sem taka þátt í kosningum.  Einungis er heimilt að víkja frá því þegar um oddatölu er að ræða og þá aðeins sem nemur einum atkvæði.“

Nú er kvenna feminista ruglið búið að opinbera sig fullkomnlega í vitleysunni og rétta lýsingin er "Kynjafasismi".

Sigurður K Hjaltested (IP-tala skráð) 15.10.2015 kl. 14:51

5 Smámynd: Kristmann Magnússon

Ég held að við Halldór gætum orðið sammála um að það þurfi líka að velja jafnmarga í hverri stærð og þyngdarflokki, ljoshærða, dökkhærða og sköllótta.

En þessi samkoma er víst heilagasta samkoma sem þið farið á svo reglurnar þurfa að vera skýrar og einfaldar.  Nógu mikið vísið þið alla vega í samþykktir þessarar prumpsamkomu, sem aldrei fer eftir þeim samþykktum  sem þar eru samþykktar 

með kveðju

Kristmann Magnússon, 15.10.2015 kl. 20:15

6 Smámynd: Sindri Karl Sigurðsson

Reglurnar verða ekki einfaldari en það að þeir aðilar sem eru í framboði og fá kosningu eru inni, aðrir ekki.

Ég ætla að salta þennan landsfund í þetta skiptið og þau skipti verða fleiri ef þessi hugmynd fer í gegn. Þá geta þessar blessaðar kellingar átt þetta.

Sindri Karl Sigurðsson, 15.10.2015 kl. 20:54

7 Smámynd: Jón Valur Jensson

Á þetta að koma nokkrum manni á óvart? Hefur sú þróun ekki ágerzt jafnvel á síðustu mánuðum, að Sjálfstæðisflokkurinn verður æ líkari hinum krataflokkunum? Á það ekki við um eindregið stefnumál hans um "hinseginfræðslu" starfsmanna Samtakana 78 í 5 ára bekkjum og allt upp í 15 ára í grunnskólum?! Á það ekki við um stefnu hans í innflytjendamálum? Er þetta ekki eins og stefna Hönnu Birnu og Gísla Marteins í borgarstjórn, "samræðustjórnmál" og fullkomin meðvirkni? Var það ekki Sjálfstæðisflokkurinn sem valdi það sérstaklga að kjósa Óttar Proppé í nefndina um flóttamanna- og innflytjendamál og gera hann jafnvel að formanni hennar, um leið og tryggt var líka, að vinstri flokkarnir fengju meirihluta í nefndinni?!

Og er ekki augljós skortur á öðrum flokki, sem nær til hægri og miðjumanna og einnig til kristinna manna, eða er Sjálfstæðis-flokkurinn kannski frábær á því svellinu? Nei, svo sannarlega ekki, hann ber höfuðábyrgð á fósturdeyðingalöggjöfinni frá 1975, lögunum um tilraunir á fósturvísum og öllu undanhaldi frá kristnu siðferði í löggjöf landsins.

Jón Valur Jensson, 16.10.2015 kl. 00:53

8 Smámynd: Sverrir Stormsker

Ekki hélt ég að Sjálfstæðiskonur hefðu svona lágt sjálfsmat. Hélt að kynjakvótar og svoleiðis lagabrot tilheyrðu minnimáttarkenndu kommalufsunum. Hvaða flokk geta Sjálfstæðismenn kosið í dag?

Sverrir Stormsker, 16.10.2015 kl. 01:14

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Höfundur

Halldór Jónsson
Halldór Jónsson

verkfræðingur, flugdellukall, tennis-og badmintonspilari

-ekki góður í neinu af þessu-

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (21.5.): 7
  • Sl. sólarhring: 7
  • Sl. viku: 82
  • Frá upphafi: 3418472

Annað

  • Innlit í dag: 7
  • Innlit sl. viku: 79
  • Gestir í dag: 7
  • IP-tölur í dag: 7

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Eldri færslur

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband