Leita í fréttum mbl.is

Sigríður Laufey

sjálfstæðiskona skrifar grein í Morgunblaðið um helgina.

Hún segir:

"Ef litið er til baka til ársins 2009, þegar Samfylking og Vinstri grænir tóku við stjórn landsins, hófst eindæma árás á kjör eldri borgara þrátt fyrir »skjaldborgina« frægu er slegin var um heimilin: Lækkun lífeyris, upptaka eigna<ská>/auðlindaskattur og afnám grunnlífeyris. Skerðing eldri borgara varð langt umfram aðra samfélagsþegna.

 

Launaskrið varð síðar verulegt meðal launafólks; en eldri borgarar sátu eftir.

 

Nú afsaka sömu flokkar, Samfylking og Vinstri grænir, framangreindar árásir vegna hrunsins og flytja frumvarp á Alþingi um bætt kjör eldri borgara; sami vítahringurinn að venju árum saman.

 

Bjarni Benediktsson, núverandi fjármálaráðherra, reit grein fyrir síðustu alþingiskosningar í Mbl. 9.4. 2013: »Það er réttlætismál að veita öldruðum raunverulegt frelsi til að njóta ávaxta ævistarfs síns. Í þágu þess réttlætismáls ætlar Sjálfstæðisflokkurinn að vinna.«

 

Núverandi ríkisstjórn hefur numið úr gildi lögin um afnám grunnlífeyris/auðlindaskatts og 9% hækkun launa lofað um næstu áramót; en getur tæplega verið ásættanlegt ef reiknað er með 300 þús. kr. pr. mán. í lágmarkslaun.

 

Vonandi tekst Bjarna Benediktssyni, formanni Sjálfstæðisflokksins, að sjá til þess að núverandi ríkisstjórn standi við loforðin; lýsi yfir frekari úrbótum í launakjörum eldri borgara á komandi landsfundi Sjálfstæðisflokksins 23.-25. október næstkomandi.

 

Vítahring svikinna loforða verður að rjúfa."

Ég hef ekki mikið velt kjörum aldraðra fyrir mér þar sem fólk segði að ég væri þá farinn að verja mína einkahagsmuni. En það sem við mér blasir er að öldruðum sem ekki hafa eitthvað annað fyrir sig að leggja en að bíða eftir útborgunum hjá lífeyrissjóðum eða Tryggingastofnun bíður ömurleikinn einn. 

Ég held að öllum sé skitsama um gamlingjana nema þeim sjálfum. Fólk  á starfsaldri þarf að berjast fyrir sínu og er margt í basli með að ná endum saman. Mér finnst ömurlegt að hlusta á hræsnipólitíkusa þrugla um hvað þeir vilji gera eitthvað gott fyrir gamla settið. Maður er ekki búinn að gleyma Jóhönnu og Steingrími Jóhanni.

Sérstaklega pirrar vinstra fólkið mig þar sem það svíkur ávallt stærst og mest og kemst upp með það af því að það er svo duglegt við að tala um sitt eigið ágæti. Þar er "Góðafólkið" að finna upp til hópa sem er svo stútfullt af hræsni að útaf flóir.

Ekki dettur mér í hug eitt augnablik að aldraðir fái annað en venjulegt kjaftæði frá Landsfundum flokkanna um helgina. Þar bíða mun stærri mál úrlausna. Ég sé ekki að aldraðir muni ná nokkru fram nema þeir geti myndað einhverskonar pólitískt afl. En þar stendur hnífurinn í kúnni þar sem við erum svo löt.

Svo er það að eftir því sem maður verður eldri þeim mun illskeyttari verður maður pólitískt og umburðarlyndið gagnvart vinstrimönnum, lygurum og hræsnurum minnkar í frostmark. Við eldri verðum einhvern veginn að koma mönnum á þing þar sem þeir geta brúkað naglbíta. Hressir eldri borgarar þurfa að að reyna að komast á frambðslista flokkanna til þess að geta haft einhver áhrif. Fyrir utan það að þeir hafa meiri lífsreynslu en  yngra liðið þá eru þeir latari og ólíklegri til að falla fyrir dellumakeríi. Þeir myndu ekki nenna í ræðustól Alþingis til að þvæla vitleysu um fundarstjórn forseta.

Auðvitað er þetta kannski tómt mál að tala um og því verður áfram bara hjakkað í sama farinu. En nennir einhver? Það er ekki spurning að þora því við erum ósnertanlegir eldri borgarar og kjör okkar geta varla versnað þó einhverjir vilji hefna sín á okkur. Við erum alls ekki vond þingmannsefni þar sem við hlustum ekki á kjaftæði og dellu.

Sigríður Laufey er skelegg kona og alltaf gaman að lesa greinar frá henni.


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Halldór Jónsson

Enginn gamlingi nennir að segja neitt. Bara veina og jarma á Útvarpi Sögu. Það vorkennir ykkur enginn ræflarnir ykkar

Halldór Jónsson, 18.10.2015 kl. 20:36

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Höfundur

Halldór Jónsson
Halldór Jónsson

verkfræðingur, flugdellukall, tennis-og badmintonspilari

-ekki góður í neinu af þessu-

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (21.5.): 5
  • Sl. sólarhring: 7
  • Sl. viku: 80
  • Frá upphafi: 3418470

Annað

  • Innlit í dag: 5
  • Innlit sl. viku: 77
  • Gestir í dag: 5
  • IP-tölur í dag: 5

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Eldri færslur

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband