Leita í fréttum mbl.is

Nytsamir sakleysingjar

voru þeir nefndir sem létu stjórnmálamenn véla sig til að verja rangt mál þeirra á dögum einræðisseggja tuttugustu aldar.

Mér fannst ég upplifa þetta aftur þegar Dagur Bé. nær saman 20 forsvarsmönnum fyrirtækja til að skrifa undir skuldbindingar um að draga úr losun CO2 til í þeirri boðuðu trú Dags og hirðar hans að allur útblástur véla og iðnaðar sé illur. Fyrirtækin eigi að leggja á sig byrðar til að Dagur geti farið á loftslagsráðstefnu út í löndum til að gera sig breiðan í gæsku sinni við heiminn og fjandskap við útblástur CO2. Jafnvel slökkviliðsstjórinn heldur að bruninn í Skeifunni hafi haft eitthvað að segja í ástandi andrúmsloftsins. Gleymir hann ekki gosinu í Eyjafjallajökli? Og jafnvel fleiri álíka viðburðum á okkar landi? 

Dr.Patric Moore var stofnandi Greenpeace á sinni tíð og sigldi með Rainbow Warrior við ýmsar uppákomur. Hann flutti nýverið ræðu þar sem hann lýsti skoðunm sínum á CO2 og útbæstri manna.

Erindið hófst með þessum orðum:

"

Lávarðar mínir og frúr þeirra, dömur mínar og herrar.

Þakka ykkur fyrir tækifærið til að setja fram skoðanir mínar á loftslagsbreytingum. Eins og ég hef tekið fram opinberlega við ýmis tækifæri, þá er engin skýr vísindaleg sönnun fyrir því, sem byggir á raunverulegum mælingum, að koltvísýringur sé ábyrgur fyrir einhverri lítilsháttar hlýnun  loftslags á heimsvísu sem orðið hefur á undanförnum 300 árum,frá hámarki litlu ísaldarinnar sem þá stóð sem hæst. Ef það væri slík sönnun til sem væri fengin með prófunum og afritunum þá hefði það verið skrifað niður fyrir alla að sjá.

Fullyrðingar um að losun manna séu nú ráðandi áhrif um loftslag er einfaldlega tilgáta, frekar en almennt viðurkennd vísindaleg kenning. Það er því rétt, reyndar nærri því skylda í vísindalegum hefðum, að vera efins um þá sem tjá okkur þá vissu sína að nú séu "vísindin komin að niðurstöðu" og "umræðunni sé lokið".

En það er  óyggjandi að CO2 er að hleðslusteinninn fyrir allt líf á jörðinni og að án nærveru þess í andrúmslofti jarðar í nægjanlegum styrk væri jörðin dauð reikistjarna. Samt er börnum okkar og almenningi  kennt að CO2 sé eitrað mengunarefni sem mun eyðileggja líf og koma siðmenningu okkar á kné. Í kvöld vonast ég til að snúa þessum manngerða áróðri á hvolf. Í kvöld ætla ég að sýna fram á að mannleg losun CO2 hefur þegar bjargað lífi á plánetunni okkar frá mjög ótímabærum enda. Að í fjarveru okkar við að setja kolefnið aftur út í andrúmsloftið þaðan sem það kom upphaflega, þá myndi mest allt eða kannski allt líf á jörðinni byrja að deyja innan  tveggja milljóna ára frá deginum í dag...."

"...allt CO2 í andrúmsloftinu hefur verið skapað af útblæstri mikilla eldfjalla. Þetta gerðist mest á meðan kjarni jarðar var mun heitari en nú. Síðustu 150 milljón árin hefur ekki bæst við nægilega mikið af CO2 í andrúmsloftið til að vega á móti bindingunni í bergi jarðar.....

"...Síðustu 150 milljón árin hefur magn CO2 í andrúmsloftinu stöðugt minnkað. Þetta er samsett af mörgum atriðum en það sem skiptir máli eru nettó áhrifin, sem eru þau að 37.000 tonn af CO2 hafa dregist úr andrúmsloftinu hvert ár síðustu 150 milljón árin. Það þýðir að CO2 útblástur eldfjallanna hefur verið yfirbugaður af upptöku þess í kalsteinsbergi á margmilljón ára tímaskeiði. Ef þetta heldur áfram mun styrkur CO2 falla niður í mörk þess sem eru lífshættuleg fyrir gróður jarðar, sem þarf 150 ppmtil að lifa af, Ef gróðurinn deyr þá deyja líka öll dýr, skordýr  og aðrir hryggleysingjar sem lifa á honum."

 

Þjóðin hér sem er nýbúin að fá gríðarlegt eldgos í Holuhrauni þar sem margföld árleg losun mannkyns á CO2 fór fram á hverjum degi hleypur núna til undir púkablístru Dags B. Eggertssonar og ámóta loftslagsfræðinga vinstri manna og "Góða fólksins" til að rýra lífskjör sjálfrar sín með því að hlaupa á eftir ósönnuðum gervivísindum um hlýnun af mannavöldum. Jafnvel eldgosið okkar megnar ekki að bæta nægilega við lífsnauðsynlegar birgðirnar af CO2 í andrúmsloftinu. Útblástur manna er algert aukaatriði í þeirri jöfnu eins dr. Patric Moore sýnir fram á. 

Margir af fremstu vísindamönnum heims, eins og Dr.Giever, hafa tjáð sig um þessi mál en heimurinn vill heldur hlusta á Al Gore og ámóta dollaraspekinga sem nota IPCC sér til ábata og þeysast um háloftin á "eiturspúandi" einkaþotum sínum. Eða þá bara Dag Bé Eggertsson af öðrum vísindamönnum heimsins.

Það er eitt að vera nytsamur sakleysingi og annað að nenna ekki að leita sannleikans.

(Ræðu Dr. Patricks Moore 2015 GWPF Annual Lecture-Patric Moore Should we celebrate Carbon Dioxide? er að finna á YouTube) 


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Ómar Ragnarsson

Þú skautar alveg framhjá því að öllu losun eldfjalla á jörðinni á ári hverju að meðaltali, er aðeins lítið brot af losun af mannavöldum.

Ómar Ragnarsson, 20.10.2015 kl. 00:07

2 Smámynd: Halldór Jónsson

Þetta er bara bullshit hjá þér., lestu það sem ég segi. Og berðu svo saman losunina úr Holuhreini á klukkustund miðað við losun manna +i Evrópubandalaginu.Af öllum tegundum loftegunsda

Halldór Jónsson, 20.10.2015 kl. 07:56

3 Smámynd: Halldór Jónsson

Síðustu 150 milljón árin hafa eldfjöll ekki dugað til að halda upp CO2 búskapnum skv. Dr. Patrick, það er staðreyndin

Halldór Jónsson, 20.10.2015 kl. 07:57

4 identicon

Merkilegt Halldór hversu thessi gos sem her urdu eru allt í einu ordin svo lítil og léttvaeg. Thad var nu bent á af vísinda  monnum ad bara fyrstu tvaer klukkustundirnar í Eyjafjallajokil, skiladi meira í andrúmsloftid heldur en heilt ár í bíla og skipaflota okkar Íslendinga. Eftir daginn var gosid búid ad skila meira en oll Evrópa samanlagt. Nú er thetta bara einhver tittlingaskítur og adeins orlítid brot af losun manna. Eitur efnin voru slík ad thad myndi taka morg ár fyrir mannkyn ad jafna thad. Já, hún á sér margar myndir CO2 áródurinn.

Sigurdur Hjaltested (IP-tala skráð) 20.10.2015 kl. 08:21

5 identicon

Tvennt:

Eldgos hafa þau áhrif að kæla andrúmsloftið. Þær lofttegundir sem losna í eldgosum auka útgeislun jarðar. Eldgos hafa í aðalatriðum öfug áhrif við losun gróðurhúsalofttegunda. Dæmi um önnur skaðleg áhrif eldgosa er sennilega undarlegur dauði sauðfjár víða um land síðastliðinn vetur og vor, sem vísindamenn hafa rakið til útfalls eiturefna í bithögum. Eldgos geta sannarleg haft mikil áhrif á andrúmsloftið, líkt og losun gróðurhúsalofttegunda, en eldgos og losun gróðurhúsalofttegunda eru tveir ólíkir hlutir.

Það eru fyrst og fremst brennisteinslofttegundir sem losna í eldgosum. CO2 og aðrar gróðurhúsalofttegundir eru að jafnaði ekki losaðar í eldgosum, sannarlega, og vísindalega sannanlega, ekki í neinu verulegu magni. Það eru undantekningar í sögunni en eldgos á Íslandi eru ekki í þeim hópi.

Að lokum, tilgátan um losun gróðurhúsalofttegunda á andrúmsloft jarðar er vísindaleg tilgáta. Sem slík þá hafa eingöngu vísindaleg rök, t.d. mælingar, tilraunir, útreikningar, o.sv.fr. vægi í deilum um ágæti eða vangæti tilgátunnar. Ég sé ekkert í ræðu dr Patrick Moore sem leggur nokkuð vísindalegt af mörkum. Ræða hans er málflækjuleg (retorísk) sem eru hugvísindi ekki raunvísindi. Hann segir þó eitt sem er rétt; CO2 er snar þáttur í lífríki jarðar þ.e.a.s. ljóstillífun. En í jafnvægi við önnur áhrif.

Svona í forbi farten þá skil ég vel hvernig Dagur Bé og uppátæki hans far í pirrurnar á ykkur hægrimönnum. Dagur spilar á vinsælum nótum í pólitískum réttrúnaðar dúr. LOL! Ég skeyti lítið um pólitíkina, en vísindin fífla ég ekki með.

Kristján Gunnarsson (IP-tala skráð) 20.10.2015 kl. 15:17

6 Smámynd: Halldór Jónsson

Kristján

Ég held að það sé sannað að mjög mikið magn af CO2 komi upp í eldgosum, sá einhverjar ritgerðir um það ói sambandi við Holuhraunið. En menn reyna auðvitað að mæla eitruðu lofttegundirnar þar sem ær eru okkur hættulegar.

Tilgáta um losun gróðurhúsaloftetunda segir þú. Þetta eru mælistærðir. En áhrif til hlýnunar hafa engin verið mæld og það er rétt hjá dr. Patric.Al Gor fer með rethoric en ekki dr.Patric.

Hvaða vinstri maður og fræðingur  ert þú eiginlega? 

Halldór Jónsson, 20.10.2015 kl. 22:30

7 Smámynd: Halldór Jónsson

Krustján

Þetta segir Haraldur Sigurðsson eldfjallafræðingur um CO2 losun eldogsa: 

"Nýlega var sagt frá því að tveir verðir laganna hefðu átt í erfiðleikum með að anda í grennd við gosstöðvarnar í Holuhrauni. Ég tel líklegast að það hafi verið koldíoxíð gas sem olli því, en ekki brennisteinstvíoxíð. Koldíoxíð er algeng gastegund í eldgosum. Hún er ekki eitrandi, en ef koldíoxíð eða CO2 er fyrir hendi í miklum mæli, þá dregur úr súrefni í loftinu og af því orsakast vandi við öndun og jafnvel köfnun. Þannig fórst einn maður í kjallara sjúkrahússins í Vestmannaeyjum í gosinu árið 1973..."

Þú segir hinsvegar :

"CO2 og aðrar gróðurhúsalofttegundir eru að jafnaði ekki losaðar í eldgosum, sannarlega, og vísindalega sannanlega, ekki í neinu verulegu magni. Það eru undantekningar í sögunni en eldgos á Íslandi eru ekki í þeim hópi."

Sem sýnir að þú virðist ekki vita mikið um jarðfræði.

Halldór Jónsson, 20.10.2015 kl. 22:36

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Höfundur

Halldór Jónsson
Halldór Jónsson

verkfræðingur, flugdellukall, tennis-og badmintonspilari

-ekki góður í neinu af þessu-

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (1.5.): 0
  • Sl. sólarhring: 11
  • Sl. viku: 41
  • Frá upphafi: 0

Annað

  • Innlit í dag: 0
  • Innlit sl. viku: 39
  • Gestir í dag: 0
  • IP-tölur í dag: 0

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Eldri færslur

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband