Leita í fréttum mbl.is

Á hverju nærist hatrið?

"Hryðjuverkamenn íhuga ekki að þeir kunni að hafa rangt fyrir sér og að skoðanir annara kunni að hafa einhverja verðleika. ... Þeir telja að öllum utan eigin hóps gangi illt eitt til.

Sameiginlegt  ... einkenni sálarlega sannfærðs hryðjuverkamanns er sérlega áberandi þörf fyrir að tilheyra hópi. Slíkir einstaklingar skilgreina félagslega stöðu sína með því að tilheyra hópi.

Hryðjuverkahópar með sterkum innri hvötum finnst það stöðugt nauðsynlegt að réttlæta tilveru hópsins. Hryðjuverkahópur verður stöðugt að ógna með einhverju.

Að minnsta kosti [SIC], verður hann að fremja ofbeldisverk til að halda sjálfsáliti  hópsins við og réttlæta tilvist sína. Þannig framkvæma hryðjuverkamenn stundum árásir sem eru óskilvirkar eða jafnvel skaðlegar þeirra eigin markmiðum"-

Rannsóknastöð hryðjuverka, grunnatriði hryðjuverka:. Kafli 2: Hryðjuverkamenn"

Nú er þessi niðurstaða hugsanlega ekki einhlít, sbr. árásir einfara. En samt gefur hún nokkra hugmynd um hugsanagang ofbeldisgengja. Þau þurfa að sanna sig. Hver meðlimur verður að ganga í augun á hinum. Fálagar þurfa innrætingu og sefjun. 

Hatursinnrætingu má skipuleggja. Dr.Göbbels sagði:"Ef þú endurtekur lygina nógu oft þá verður hún að sannleika".

Múgsefjun er þekkt fyrirbrigði og Adolf Hitler skildi manna best hvernig átti að notfæra sér hana. Aðrir minni spámenn eins og Castro, Maó, Kim Il-arnir og Stalín reiddu sig á fyrirvaralaus morð og óttann einan.

Hversvegna hatar hryðjuverkamaðurinn okkur hin svona mikið? Skyldi það vera eigin vanmetakennd sem býr að baki? 

Á hverju nærist annars hatrið?

 

 


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 identicon

Fáránlegasti hvítþvottur sem ég hef lesið lengi.

Hatur hryðjuverkamannsins hefur líklegast ekkert með tugþúsund tonnin af sprengjum sem hefur verið varpað á land hans af vesturlöndum undanfarin áratug.

Hatur hans hefur örugglega ekkert með það að gera að bandaríkjamenn varpa sprengjum á fjölskyldur í þeirri von að ná einum óvina hermanni.

Hann er örugglega ekkert pirraður yfir því að í dag fá erlend olíufyrirtæki 70% af hagnaði olíusölu lands hans í staðin fyrir þau 0% sem þau höfðu fyrir 13 árum.

Og hann er heldur örugglega ekkert reiður yfir því að allt ofantalið er vegna stríðs sem sameinuðu þjóðirnar töldu ólöglegt þegar það hófst.

Hatur getur af sér hatur, ofbeldi getur af sér ofbeldi etc...

Elfar Aðalsteinn Ingvarsson (IP-tala skráð) 16.11.2015 kl. 09:54

2 Smámynd: Jón Bjarni

Ætli þetta hatur eigi ekki að stórum hluta uppruna sinn í hernaðarbrölti Vesturvelda fyrir botni Miðjarðarhafs? 

Jón Bjarni, 16.11.2015 kl. 10:29

3 identicon

Réttlætingar aðdáenda hryðjuverkamanna eiga sér lítil takmörk.
Tugþúsundir ungra manna og kvenna frá Evrópuríkjum, önnur og þriðja kynslóð múslima sem alist hefur upp í alsnægtum Evrópu, eiga víst að ferðast til Sýrlands og Íraks, í heilagt stríð múslima, vegna þess að vesturlönd eru að varpa sprengjum á þau?

Hvar eru vesturlönd að varpa þessum sprengjum?
Bradford?
Marseille?
Molenbeek?

Hilmar (IP-tala skráð) 16.11.2015 kl. 18:22

4 Smámynd: Hrólfur Þ Hraundal

Það eru bara tvær aðferðir til að losna við ofbeldi og önnur þeirra er að leggja á flótta, en hin að ráðast gegn ofbeldinu og  útrýma því.  Þetta vissu steinaldar menn og þurftu ekki að hugsa um heimildir til verka.      

Að hrekja ofbeldi bara út fyrir túngarðinn er ávísun á annað stríð eins og sannaðist í persaflóastríðinu.  Sá klaufaskapur kostaði annað og miklu verra stríð, Íraksstríðið sem ekki sér fyrir endann á ennþá.  Þar geta frakkar sér vel um kennt svosem fleiri.   

Hrólfur Þ Hraundal, 16.11.2015 kl. 20:36

5 Smámynd: Halldór Jónsson

 Það er líka eftirtektarvert að múslímar virðast hata gistiþjóðirnar mest af öllum. Hafa menn ekki séð fjöldagöngur þeirra á götum Bretlands öskrandi vígorð gegn bresku lögreglunni.Búast menn við því að flóttamennirnir sem hingað koma muni elska okkur sem tökum við þeim? Erum við ekki villutrúarmenn í þeirra augum sem þeir ætla sér ekki að samlagast?

Halldór Jónsson, 16.11.2015 kl. 21:44

6 Smámynd: Jón Bjarni

"Þeir sem fylgjast með samskiptamiðlum Daesh (ISIS) hafa numið vaxandi óánægju, síðla sumars og í haust, með flóttamannastrauminn frá Sýrlandi til Evrópu. Það er niðurlægjandi fyrir samtökin að milljónir manna flýji ,,sæluríkið" og hlaupi í faðm ,,trúleysingjana". Eins hefur farið fyrir brjóstið á þeim að víða, eins og í Þýskalandi, voru viðtökur flóttamanna góðar.

Samtökin sendu myndbönd og önnur skilaboð þar sem flóttamenn voru hvattir til að snúa til baka, en það hafði engin áhrif. 
Í þessu ljósi verða menn að lesa í hryðjuverkin í París. Þeim er m.a. ætlað að etja fólki gegn flóttamönnum og sanna þannig fyrir þeim illsku trúleysingjana. 
Það yrði áfangasigur í baráttu gegn Daesh að stuðla að hinu gagnstæða og taka flóttamönnum opnum örmum. Það kemur að því, einn daginn, að friður kemst á í Sýrlandi. Mjög margir munu snúa til baka til heimalandsins. Sýrlenskir flóttamenn í Evrópu, sem vel er tekið, geta bæði verið lykillinn að friði í landinu og nauðsynlegt afl til að byggja upp á rústunum. 
Engin hugsandi maður vill leggja frekari vopn í hendur Daesh. Sýnum skynsemi og tökum flóttafólki vel."

Kristinn Hrafnsson

Jón Bjarni, 16.11.2015 kl. 23:02

7 Smámynd: Anna Sigríður Guðmundsdóttir

Halldór minn. Ætli hatur nærist ekki á líkamlegum og andlegum skorti af ýmsu tagi? Skortur veldur bilun. Það er vel þekkt staðreynd.

Stjórnleysi kórónar svo allar tegundir skorts. Eða hvernig verða stríð annars til?

Áföll vegna stríðs viðhalda svo ójafnvæginu í gegnunum í margar kynslóðir, því áföllin og genin hafa víst einhverskonar minni. Það er að segja ef sú kenning er sönn?

Hatrið særir.

Kærleikurinn græðir.

M.b.kv.

Anna Sigríður Guðmundsdóttir, 16.11.2015 kl. 23:42

8 Smámynd: Elle_

Snýst ISIS-málið um flóttamenn?  Kærleika eins og sumir halda?  ISIS eru villimenn.  Það á að ráðast gegn ISIS af öllu afli og með samtakamætti vestrænnna landa, þar með talið Bandaríkjamanna og Rússa.  Þangað til þessir villimenn verða alveg stoppaðir.

Elle_, 17.11.2015 kl. 00:09

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Höfundur

Halldór Jónsson
Halldór Jónsson

verkfræðingur, flugdellukall, tennis-og badmintonspilari

-ekki góður í neinu af þessu-

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (7.5.): 4
  • Sl. sólarhring: 7
  • Sl. viku: 69
  • Frá upphafi: 3418321

Annað

  • Innlit í dag: 4
  • Innlit sl. viku: 65
  • Gestir í dag: 4
  • IP-tölur í dag: 4

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Eldri færslur

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband