Leita í fréttum mbl.is

Einkarekin fangelsi

er möguleg lausn á fangelsismálum Íslendinga. 

Það var heldur dapurt að hlusta á Pál Winkel lýsa því hvað við blasti í fangelsismálum okkar. Allt fé uppurið og annaðhvort verður að fá meira fé eða fækka föngum verulega með lokun fangelsa.

Það mátti heyra á honum að mér fannst að Litla Hraun er skilvirkasta fangelsið. En til greina kæmi að loka Kvíabryggju og Akureyri. Verða þá ekki fínu hvítflibbakallarnir að fara að vera innanum pöpulinn? 

Ekki var að heyra að forstjórinn bindi miklar vonir við nýja "kynslífsmusterið á Hólmsheiðinni" sem kostar marga milljarða. Það kom hingað Kani úr fangelsisbransanum vestra þegar að mannvirkið okkar var í undirbúningi og bauðst til að byggja fangelsi fyrir helmingi fleiri fanga fyrir helmingi minni pening. Og reka það svo fyrir okkur líka í akkorði.

Góða fólkið vestra hefur það á móti einkareknum fangelsum sem mikið er um þar í landi, að fangar komist ekki úr þeim þar fangelsisrekendurnir séu sífellt að kæra þá fyrir agabrot sem hafi framlengingu á vistinni í för með sér. Þeir vilja hafa sitt fólk hjá sér sem lengst skiljanlega. En Könum er mörgum sama um slíkt þar sem þeir vilja endilega hafa fleiri glæpamenn inni í fangelsum heldur en úti.

Því má ekki bjóða þetta út hérlendis? Halda menn að Margrét Frímannsdóttir til dæmis gæti ekki stjórnað einkareknu fangelsi eins vel og opinberu?

Hvað kosta einkarekin fangelsi versus Hólmsheiði? 


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Óli Jón

Það hefur sýnt sig að einkarekstur á fangelsum í BNA er eitt mesta klúður sem um getur. Fyrirtækin sem reka fangelsin liggja í stjórnvöldum og hvetja til lengri og verra refsinga fyrir smærri og smærri brot auk þess sem þau leggja ekki mjög hart að sér að endurhæfa fangana. John Oliver fór stuttlega yfir þessi mál fyrir nokkru síðan og ætti enginn að láta svona tillögugerð frá sér fara eftir áhorf á það.

Þetta er því versta tillaga sem hægt er að hugsa sér og vonandi sést hún aldrei aftur.

Óli Jón, 6.12.2015 kl. 18:16

2 identicon

https://www.youtube.com/watch?v=r4e_djVSag4

Elín Sigurðardóttir (IP-tala skráð) 6.12.2015 kl. 18:17

3 Smámynd: Predikarinn  -  Cacoethes scribendi

Óli Jón

Það virðist vera sama hvar þú skrifar, þér tekst ávallt að komast að óskiljanlegri og arfvitlausri niðurstöðu.

Er Halldór síðuhafi að leggja til að gera ríkiskirkju úr fangelsum ? ? ? 

Predikarinn - Cacoethes scribendi , 7.12.2015 kl. 01:41

4 identicon

Óli Jón er svo háttvís að kalla einkarekin fangelsi í Bandaríkjunum klúður.  Hvað pirrar predikara svo mjög?  Er það virkilega pirrandi að fólk vilji ekki leggja blessun sína yfir nútíma þrælahald?

Elín Sigurðardóttir (IP-tala skráð) 7.12.2015 kl. 09:35

5 Smámynd: Predikarinn  -  Cacoethes scribendi

QElín

Þú ert kannski með sönnun fyrir þrælahaldi í þeim fangelsum eins og þú kallar það ?

Predikarinn - Cacoethes scribendi , 7.12.2015 kl. 16:05

6 Smámynd: Óli Jón

Elín: Predikaranum tókst að finna tengingu á milli Ríkiskirkjunnar og fangelsunar. Gaman væri að vita hvernig sú tenging er til komin. Ég verð seint talinn sérstakur vinur Ríkiskirkjunnar og get ég þó ekki séð þessa tengingu.

Óli Jón, 8.12.2015 kl. 17:17

7 Smámynd: Óli Jón

Elín: Svo er engin sérstök ástæða til þess að verða við beiðni Predikarans um sönnunargögn. Annað hvort les hann bara það sem hann vill sjá úr sönnunargögnunum og vísa ég í undarlega tengingu hans á milli Ríkiskirkjunnar og fangelsunar í þeim efnum eða þá að hann hunsar þau algjörlega.

Svo er kaldhæðnislegt að hann skuli skora á þig að vísa í sönnunargögn því sjálfur verður hann aldrei við slíkum beiðnum. Honum er þó vorkunn því sjaldnast er nokkrum sönnunargögnum til að dreifa sem styðja undarlegan málflutning hans.

Óli Jón, 8.12.2015 kl. 17:26

8 Smámynd: Predikarinn  -  Cacoethes scribendi

Óli J

Það þarf nú ekki nema googla síðuna þína og fleiri af þinni sort til að sjá að það er urmull tilvísana í gögn og lög. Þú og þínir líkar viljið ekki lesa þau þar sem þau henta ekki illum málstað ykkar.

Ég hélt það væri augljóst hvers vegna ég spurði þig hvort þú héldir að síðuhafinn hér ætlaði að gera ríkiskirkju úr fangelsum, það er vegna augljosrar herferðar þinna líka gegn þjóðkirkjunni. Þess vegna værir þú á móti tillögui hans ö smá myndnmál sem þú skilur ekki greinilega, það verður þá bara svo að vera.

Predikarinn - Cacoethes scribendi , 8.12.2015 kl. 17:33

9 identicon

Fríkirkjan var stofnuð vegna þess að það var ekki pláss fyrir alla í þjóðkirkjunni.  Það voru nefnilega ekki allir af réttri sort.  Ekki reyna að gúggla þetta Predikari.  Við vitum þetta - ég og mínir líkar.

Elín Sigurðardóttir (IP-tala skráð) 8.12.2015 kl. 19:42

10 Smámynd: Predikarinn  -  Cacoethes scribendi

Elín

Það þarf ekki að googla þetta - ég veit 100% allt um af hverju fríkikjan var stofnuð og þú ert ekki að fara rétt með.

Hvap kemur annars fríkirkjan þessari umræðu við ?

Predikarinn - Cacoethes scribendi , 8.12.2015 kl. 23:02

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Höfundur

Halldór Jónsson
Halldór Jónsson

verkfræðingur, flugdellukall, tennis-og badmintonspilari

-ekki góður í neinu af þessu-

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (18.5.): 9
  • Sl. sólarhring: 17
  • Sl. viku: 72
  • Frá upphafi: 3418433

Annað

  • Innlit í dag: 9
  • Innlit sl. viku: 67
  • Gestir í dag: 9
  • IP-tölur í dag: 9

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Eldri færslur

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband