25.12.2015 | 10:29
Getum við gert betur?
er fyrirsögn á grein sem hann Baldur okkar Ágústsson skrifar í Morgunblaðið á aðfangadag. Ég er nokkkuð viss um að greinin hlýtur velvild hjá mörgu´af þögla fólkinu en æsir eithvað af GGF liðinu upp. Þó ég sé nú yfirleitt ekki margmáll um kirkju og kristni þá styð ég þjóðkirkjuna og stjórnarskrána okkar hvað hana varðar í óbreyttri mynd. Greinin er svona en ég feitletra að vild sjálfur:
"Jólin eru góður tími til að velta því fyrir sér hversu mótað íslenskt þjóðfélag er af kristinni trú - hve miklu hún hefur skipt okkur gegnum aldirnar. Að segja satt, standa við gefin loforð og sýna kærleika.
Allt eru þetta mannkostir sem tryggja okkur betra líf er þeir fylla okkur af heilindum og leyfa okkur að vænta hins sama af öðrum. Kenningar biblíunnar eru um margt undirstaða þeirra laga sem við höfum sett þjóðfélagi okkar. Svona fylgir kristnin okkur fram eftir ævi og verður okkur viðmið um hvað er rétt og hvað rangt - og blessunarlega mörgum ljósið í lífi þeirra. Til kirkjunnar leitum við þegar sorgin knýr dyra, hátíðlegir gleðidagar ganga í garð, þegar við biðjum litlum börnum okkar Guðs blessunar og á sérstökum hátíðisdögum kirkjunnar - eins og um jól.
Þegar við lítum til þess hverju kristin trú hefur áorkað og eins hins, ranglætis og mannvonsku sem hún hefur komið í veg fyrir, hlýnar okkur um hjartaræturnar. Þetta gerist því oftar sem við heyrum af þjóðfélögum með allt annað gildismat og önnur trúarbrögð sem verða þeim afsökun, ef ekki beinlínis ástæða fyrir grimmd og líkamsmeiðingum auk andlegrar kúgunar.
Sorglegt er að sjá fólk, sem fyrir slíku hefur orðið, flutt til um hálfan heiminn til Íslands undir yfirskini björgunar og velgjörnings - sem í hinni stóru heildarmynd heimsins yfir þær milljónir sem bágt eiga, er ekki dropi í hafið. Ekki einn dropi - og samt með ófyrirsjáanlegum afleiðingum í marga ættliði, svo vísað sé til reynslu annarra þjóða. Víða heyrist líka minnst á ISIS og sagan af Trójuhestinum forna rifjuð upp.
Fögur orð eru ekki nóg
Ósjálfrátt leitar hugurinn til orða forsætisráðherra: »Að vel þurfi að taka á móti þessu fólki.« Vissulega falleg orð, en þó, sé til þess litið að stjórnvöld eiga að sjá um velferð Íslendinga sjálfra, þá hlýtur maður að spyrja: »Hvernig hafa þau tekið á móti öryrkjum og öldruðum, fátækum og sjúkum?« Fólki af eigin húsi. Þarf e.t.v. að minna stjórnvöld á að þau eru í vinnu hjá íslenskri þjóð?
Jafn fögur og trúin og kærleikurinn eru er ekki hægt að fylgja honum blindandi - það er að bjóða hættunni heim. Þannig er nú þessi heimur og auðséð að honum er enn ekki stjórnað af konungi konunganna.
Þó að það flóttafólk sem hingað leitar sé ekki beinlínis á okkar ábyrgð er skiljanlegt að margir finni til með því og vilji hjálpa. Það, hins vegar, að flytja fólk inn í þeim mæli að gagn sé að - ef um »framtíðargagn« er að ræða, er ekki bara hæpið heldur beinlínis ógerlegt. Þetta sjá þeir sem sjá vilja. Spurningin er eiginlega; fyrir hverja er þessi dropateljara flutningur? Er risinn vaxandi hjálpariðnaður á Íslandi sem þarf að sjá fyrir verkefnum? Starfar hér fólk sem ekki nægir, í nafnleysi, að rétta nauðstöddum hönd heldur hefur þörf fyrir að láta þakka sér fyrir - helst með tárvotum augum? Spyrji nú hver sitt hjarta og svari heilt.
Sláandi er þegar formaður samtaka löggæslumanna talar hreint út frá reynsluheimi sínum og faglegri þekkingu þá sætir hann brigslyrðum, ásökunum og uppnefnum - sem raunar segja meira um þá sem slíku beita en þann sem fyrir verður. Hafi hann - Sigurður Magnússon - þökk fyrir sitt framlag.
Kristin trú hefur fylgt Íslendingum í eitt þúsund ár. Það segir meira en mörg orð um hinn heiðna sið og trúarskiptin að forfeður okkar, víkingarnir, sem voru skiptir í afstöðu til þess hvort ætti að breyta um trú í landinu, settu Þorgeir Ljósvetningagoða til að taka ákvörðun og hétu allir að hlýða úrskurði hans. Ó, að við ættum slíkan stjórnmálamann í dag. Eftir allnokkra umhugsun tjáði Þorgeir þingheimi: »Það mun vera satt, er vér slítum í sundur lögin að vér munum slíta og friðinn.«
Þorgeiri var sem sagt ljóst að tvenn trúarbrögð í landinu myndu valda ófriði og styrjöldum. Fáein undantekningaratriði voru gefin ásatrúarmönnum til að milda þeim breytinguna - kristnum að meinalausu.
Ýmsir hafa síðan tekið sér penna í hönd og hafa þar vinstri menn farið fremstir í lagasetningu um »trúfélög« en aðrir setið mis-skömmustulegir hjá, þegar dýrar lóðir hafa verið gefnar fulltrúum fjarlægra trúarbragða sem refsa innfæddum og ferðamönnum fyrir að hafa svo mikið sem biblíu í farangri sínum. Nefndir vinstri menn nota hvert tækifæri til að mæra það sem þeir kalla fjölmenningarþjóðfélag en ég er ekki viss um að það sé til frekar en þorskýsa.
Hafi þeir allir skömm fyrir en Þorgeir Ljósvetningagoði sérstaka þökk. Enginn hefur skrifað heilla orð um trúmál og af meira innsæi en hann - í þúsund ár. Meira að segja forystufólk hinnar lútersku kirkju sem í árhundruð var okkur sameiningartákn berst ekki fyrir styrk hennar og tilveru, heldur lyppast niður gagnvart framandi trúarbrögðum - haldandi að þannig geti »öll dýrin í skóginum verið vinir«.
Þeir geta gert betur, svo ekki sé dýpra í árinni tekið. Eftir stendur, hvað getum og viljum við kristnir gera flóttamönnum til hjálpar?
Undirritaður mun á næstunni leggja fram hugmynd hér í blaðinu sem verndar bæði hina landlausu og íslenskt þjóðfélag, menningu og tungu.Guð gefi okkur gleðileg jól og veiti landi og þjóð blessun sína."
Mér finnst hugsun Baldurs vera góð og umhugsunarefni. Getum við ekki gert betur með því að hjálpa nauðstöddu fólki í heimkynnum þess heldur en að skapa því einangrun og bæði því og innfæddum félagslegar kvalir í framandi samfélagi eins og Valdimar Jóhannesson lýsir reynslu Svía svofellt:
"....Efna - og velferðakerfi EU ber ekki þessa þjóðflutninga framandi þjóða, sem ekki bara, markvist slátrar kristnum í heimalandinu, heldur logar allt nú þegar í Evrópu innbyrðis milli þessara KLANA í flóttamannabúðunum, því það er ekkert annað sem þetta fólk er. Evrópa hefur áttað sig á því að fjölmenning er draumórar og blekking.
Þetta flóttafólk kemur ekki til með að vinna fyrir sér næstu t,d, sjö árin nema að mjög litlu leiti. Aðeins þeir sem hafa menntun fá vinnu og svo að sjálfsögðu þessar þúsundir sem hverfa undir jörð , því þeir eru glæpamenn, sem lifa á örbyrgð sambræðra sína. Atvinnumálastofnun Svíþjóðar hefur sent ólæsa og óskrifandi araba og sómalíusvertingja á ymiss námskeið, til að dylja atvinnuleysið. Sumir hafa bara verið tvo ménuði í landinu.
Ökukennaraskólar i Svíþjóð eru með svona námsmenn í hundruðum til að veita þeim meirapróf fyrir þyngri farartæki eins og stætisvagna, rútur og vöruflutningabíla, Þegar þeim er sagt að þeir geti ekki lært, því þeir hafa ekki getuna, þá verða þeir hótfullir og hafa mjög stuttan kveikjuþráð. Þeir kvarta yfir því að kennararnir eru konur og neita að hlýða fyrirskipunum.
Sænskuþekkingin er svo bágborin að margir grípa ekki orðið "Bromsa". Tryggingafélög neita að tryggja farartæki hjá fyrirtækju, sem ræður þetta fólk í vinnu, vegna óhappa og slisahættu, sem þegar hefur komið fram í æfingunum. Sumir eru það hortugir að þeir beint líta niður á kennarana.
Það er skýrt tekið fram hjá Atvinnumiðluninni að múslimar eigi að ganga fyrir Svíum í vinnu, þótt Svíarnir hafi próf og getu til að sinna þessum verkum. Ómældar hundruðir milljóna til spillis bara í þessu heimska dæmi..."
Er það ekki í raun merkilegt að GGF skuli útiloka með öllu að vandamál muni fylgja innflutningi flóttamanna og hælisleitendum ótengdum flótta undan stríði? Að það skipti ekki máli fyrir aðlögun hvort þetta fólk sé kristið eða múslímar af því að búið sé að ákveða að á Íslandi ríki fjölmenning?
Já, líklega getum við öll gert margt betur eins og hann Baldur okkar Ágústsson segir.
Flokkur: Stjórnmál og samfélag | Breytt s.d. kl. 10:44 | Facebook
Heimsóknir
Flettingar
- Í dag (22.12.): 1
- Sl. sólarhring: 8
- Sl. viku: 29
- Frá upphafi: 3419866
Annað
- Innlit í dag: 1
- Innlit sl. viku: 26
- Gestir í dag: 1
- IP-tölur í dag: 1
Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar
Eldri færslur
- Maí 2022
- Apríl 2022
- Mars 2022
- Febrúar 2022
- Janúar 2022
- Desember 2021
- Nóvember 2021
- Október 2021
- September 2021
- Ágúst 2021
- Júlí 2021
- Júní 2021
- Maí 2021
- Apríl 2021
- Mars 2021
- Febrúar 2021
- Janúar 2021
- Desember 2020
- Nóvember 2020
- Október 2020
- September 2020
- Ágúst 2020
- Júlí 2020
- Júní 2020
- Maí 2020
- Apríl 2020
- Mars 2020
- Febrúar 2020
- Janúar 2020
- Desember 2019
- Nóvember 2019
- Október 2019
- September 2019
- Ágúst 2019
- Júlí 2019
- Júní 2019
- Maí 2019
- Apríl 2019
- Mars 2019
- Febrúar 2019
- Janúar 2019
- Desember 2018
- Nóvember 2018
- Október 2018
- September 2018
- Ágúst 2018
- Júlí 2018
- Júní 2018
- Maí 2018
- Apríl 2018
- Mars 2018
- Febrúar 2018
- Janúar 2018
- Desember 2017
- Nóvember 2017
- Október 2017
- September 2017
- Ágúst 2017
- Júlí 2017
- Júní 2017
- Maí 2017
- Apríl 2017
- Mars 2017
- Febrúar 2017
- Janúar 2017
- Desember 2016
- Nóvember 2016
- Október 2016
- September 2016
- Ágúst 2016
- Júlí 2016
- Júní 2016
- Maí 2016
- Apríl 2016
- Mars 2016
- Febrúar 2016
- Janúar 2016
- Desember 2015
- Nóvember 2015
- Október 2015
- September 2015
- Ágúst 2015
- Júlí 2015
- Júní 2015
- Maí 2015
- Apríl 2015
- Mars 2015
- Febrúar 2015
- Janúar 2015
- Desember 2014
- Nóvember 2014
- Október 2014
- September 2014
- Ágúst 2014
- Júlí 2014
- Júní 2014
- Maí 2014
- Apríl 2014
- Mars 2014
- Febrúar 2014
- Janúar 2014
- Desember 2013
- Nóvember 2013
- Október 2013
- September 2013
- Ágúst 2013
- Júlí 2013
- Júní 2013
- Maí 2013
- Apríl 2013
- Mars 2013
- Febrúar 2013
- Janúar 2013
- Desember 2012
- Nóvember 2012
- Október 2012
- September 2012
- Ágúst 2012
- Júlí 2012
- Júní 2012
- Maí 2012
- Apríl 2012
- Mars 2012
- Febrúar 2012
- Janúar 2012
- Desember 2011
- Nóvember 2011
- Október 2011
- September 2011
- Ágúst 2011
- Júlí 2011
- Júní 2011
- Maí 2011
- Apríl 2011
- Mars 2011
- Febrúar 2011
- Janúar 2011
- Desember 2010
- Nóvember 2010
- Október 2010
- September 2010
- Ágúst 2010
- Júlí 2010
- Júní 2010
- Maí 2010
- Apríl 2010
- Mars 2010
- Febrúar 2010
- Janúar 2010
- Desember 2009
- Nóvember 2009
- Október 2009
- September 2009
- Ágúst 2009
- Júlí 2009
- Júní 2009
- Maí 2009
- Apríl 2009
- Mars 2009
- Febrúar 2009
- Janúar 2009
- Desember 2008
- Nóvember 2008
- Október 2008
- September 2008
- Ágúst 2008
- Júlí 2008
- Júní 2008
- Maí 2008
- Apríl 2008
- Mars 2008
- Febrúar 2008
- Janúar 2008
- Desember 2007
- Nóvember 2007
- Október 2007
- September 2007
- Ágúst 2007
- Júlí 2007
- Júní 2007
- Maí 2007
- Apríl 2007
Bloggvinir
- ghe13
- sigurjonth
- andrigeir
- annabjorghjartardottir
- ansigu
- agbjarn
- armannkr
- asdisol
- baldher
- h2o
- bjarnihardar
- dullur
- bjarnimax
- zippo
- westurfari
- gattin
- bryndisharalds
- davpal
- eggman
- greindur
- bjartsynisflokkurinn
- elfarlogi
- eeelle
- sunna2
- ea
- fuf
- fhg
- vidhorf
- gerdurpalma112
- gilsneggerz
- gudni-is
- lucas
- zumann
- gp
- gun
- topplistinn
- tilveran-i-esb
- skulablogg
- gustafskulason
- gustaf
- heimssyn
- diva73
- helgi-sigmunds
- hjaltisig
- minos
- hordurhalldorsson
- astromix
- fun
- jennystefania
- johanneliasson
- johannvegas
- jonatlikristjansson
- fiski
- jonl
- jonmagnusson
- jonlindal
- bassinn
- jonvalurjensson
- jvj
- thjodarskutan
- juliusbearsson
- katagunn
- kje
- ksh
- kristinn-karl
- kristinnp
- kristjan9
- loftslag
- altice
- ludvikjuliusson
- maggij
- magnusthor
- mathieu
- nielsfinsen
- omarbjarki
- huldumenn
- svarthamar
- pallvil
- peturmikli
- valdimarg
- ragnarb
- samstada-thjodar
- fullveldi
- siggus10
- sisi
- siggisig
- ziggi
- siggith
- stjornlagathing
- pandora
- spurs
- kleppari
- saethorhelgi
- tibsen
- ubk
- valdimarjohannesson
- skolli
- valurstef
- vilhjalmurarnason
- vey
- postdoc
- thjodarheidur
- icerock
- steinig
- thorsteinnhelgi
- icekeiko
Athugasemdir
Ég las grein Baldurs og var hjartanlega sammála honum. Í norrænu blöðunum er mikið fjallað um íslamtrúna. Í Jótlandspóstinum var frá því greint, að erkibiskupinn af Kantaraborg hefði sagt, að IS gæti útrýmt kristindómnum. Og í Aftenposten er viðtal við rithöfundinn Hege Storhaug út af best seldu bók hennar, sem fjallar um Múhameð og fylgismenn hans. Þar segir hún m.a., að íslam sé engin venjuleg trú. Bók hennar hefur selst í 20 þúsund eintökum til þessa, og hún segir það vera vegna þess, að þessi bók hafi komið fram á réttum tíma. Þetta er athyglisvert viðtal við hana, sem vert er að lesa yfir. Gleðileg jól.
Guðbjörg Snót Jónsdóttir (IP-tala skráð) 25.12.2015 kl. 13:35
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.