Leita í fréttum mbl.is

Siðrof?

Bankarnir græddu 107 milljarða samanlagt.

Höskuldur fyrrum kortastjóri og Hvíta-Birna stjórnuðu sínum bönkum vel og fengu greitt í hlutfalli við það. Höskuldur græddi nærri 50 milljarða og fær einar 5 milljónir sjálfur á mánuði, Birna græddi 21 milljarð og fær sjálf einar 4 á mánuði. Sá bankastjóri sem græddi nærri 37 milljarða er Steinþór Borgunarsali. Hann fær langminnst, ekki einu sinni 2 milljónir á mánuði.

Sem sagt það er ekki samhengi á milli launa bankastjóra og hagnaðar bankans.

Mikið er ég og allur almenningur glaður yfir þessum gróða bankanna. Hvaðan skyldi hann nú koma? Ekki tengist þetta okkur neitt heldur bara snilld og samfélagsvitund þessa dánufólks sem bönkunum stjórna. Þetta er svo agalega mikill vandi.

Mig minnir að ég hafi lesið einhvern tímann væntingar bankastjóra til brúkaðs pólitíkusar sem átti að fá ríkisbankastjórastöðu í verðlaun. Hann sagði eitthvað svona; Það er enginn vandi að vera bankastjóri, maður borgar lága innlánsvexti en lánar út á háum vöxtum og tekur fullt af tryggingum. Já hann verður örugglega góður bankastjóri hann....

Og það gekk alveg eftir. Það hlýtur samt að vera agalegur vandi að vera bankastjóri en enginn að vera í stjórn lífeyrissjóðs. Því" jafnvel þótt þú tapir þar það gerir ekkert til  því það er nefnilega vitlaust gefið." Lífeyrissjóður, gagnstætt Landsbankanum til dæmis, nær alltaf inn tapinu, því það eru aðrir eins og vesalingur minn sem borga.

Vilhjálmur Bjarnason rekur það siðferði sem gildir á fjármálamarkaði vel í grein í Morgunblaðinu í dag.(Bloggari feitletrar að vild)

"Svo bar við í upphafi heimastjórnar að konungur Danmerkur og Íslands kom í heimsókn. Hápunktur heimsóknar konungs var ferðalag konungs austur í sveitir. Að ferð lokinni, við komu í bæinn, sagði vor sæli konungur, sennilega ekki mikið ódrukkinn; „ríkin mín tvö“, en það töldu Íslendingar staðfestingu þess að sjálfstæði væri eigi langt undan.  

Það er talið að konungur vor hafi mælt þessi fögru orð í brekkunni fyrir ofan Stjórnarráðið, þar sem verið var að ljúka Safnahúsinu. Það lá vissulega vel á kóngi í þessari Íslandsferð. Má vera að hann hafi orðið músíkalskur í ferðinni, jafnvel hitt Maurice Ravel á Þingvöllum! Það er nefnilega til póstkort frá tónskáldinu frá svipuðum tíma, ritað á Þingvöllum.

Það er nefnilega þannig, að allar götur frá því Íslendingar fengu sjálfstæði og fóru að ráða eigin málum, þá hafa þeir sem málum ráðið verið að leita leiða til að mismuna þegnum, búa til tvö ríki og tvær þjóðir, en ávallt haft að leiðarljósi að gera það með málefnalegum hætti. Svo hafa þeir vaðið eld og brennistein við að réttlæta ruglið. Þannig var leitað leiða til að mismuna litlum bönkum og stórum bönkum þegar lagður var á „bankaskattur“. Þá varð leiðsögnin sú að mismuna með þeim hætti að lítill MP banki greiddi aðeins örlítinn „bankaskatt“því MP banki hafði ekki „valdið hruninu“.

Málefnanleg skipting

Þjóðin hefur skipt sér sjálf með mismálefnalegum hætti. Þannig var til þjóð í landinu sem áði í Brúarskála en önnur þjóð sem áði í Stað- arskála þegar farið var úr eða í Húnavatnssýslu. Einnig voru tvær þjóðir, sem keyptu eldsneyti á mismunandi stöðum, ESSO eða SHELL. Þeir sem ekki tilheyrðu neinni þjóð keyptu sitt eldsneyti hjá BP.

En eins og Örn Úlfar sagði; „Manneskjan er yfirleitt ósíngjörn vera, sífellt reiðubúin til að aðhyllast hugsjónir, einkum ef þær eru nógu fjarri því að bæta hag hennar, en berjast með oddi og eggju gegn óvinum ef þeir eru nógu óraunverulegir, ótrúlegir eða óskiljanlegir, ég tala nú ekki um ef þeir eru grýla ein.“ Og svo bætir Bjartur um betur og segir; „Er nokkrum of gott að vera fífl?“ Bjartur var eins og aðrir, hann talaði til að leyna hugsun sinni.

Erlendir aðilar, sem að hluta til eru innlendir aðilar

Því er þetta rætt nú að enn ræður tvíhyggja ríkjum í huga íslenskrar þjóðar. Það er ekki að þjóðin hafi orðið mikið músíkalskari með árunum. Það er helst að fjöldi mæti á tónleika þar sem graðhestatónlist er í boði. Í hugum þeirra er hafa komið til starfa í íslenskri fjármálastarfsemi er ekki talið óeðlilegt að fjármálastarfsemi þrífist eftir öðrum reglum og utan við það sem gerist hjá íslenskri þjóð.

Þannig segir einn þeirra sem þiggja kaupauka úr hendi gjaldþrota banka, endurreists á rústum banka, sem jaðraði við að vera glæpabanki: „Aðspurður um andrúmsloftið í þjóðfélaginu í dag þar sem erfiðar kjaraviðræðum hafa m.a. staðið yfir segir hann greiðslurnar hjá ALMC lúta öðrum lögmálum.

„Þarna eru erlendir aðilar sem eru að vinna fyrir erlenda aðila þrátt fyrir að hluti af þeim séu innlendir aðilar. Þetta lútir þeim lögmálum sem svona gerir erlendis,““ segir hann og bætir við að málið sé því ekki alveg sambærilegt öðrum. „Þetta er klárlega ekki einsdæmi á alþjóðlegum vettvangi.“

Svo mælti forstjórinn! Þetta er sönn saga sögð í einlægni, andstætt lyginni, sem oft er merkilegri. Þarna eru „erlendir aðilar innlendir aðilar“ eða þannig! Við liggjum því ekki lengur lengst útafburt allra manna í jarðríki, við tökum upp siðu miðlægra þjóða.

Til að gera kaupaukana óskiljanlega dauðlegu fólki þá segir forstjórinn fyrrverandi: „Aðspurður um grundvöllinn fyrir greiðslunum og útreikninga þar að bak við segir hann kerfið vera flókið en bætir við að greiðslurnar séu í takti við þann árangur sem félagið hefur náð.“

Er nú ekki rétt að skila til þeirra sem lögðu efniviðinn til? Hvað kemur það málinu við hvað gert er erlendis?

Nú vill til að sá er þetta ritar er meðlimur í lífeyrissjóði sem tapaði um 2,5 milljörðum á starfsemi upphaflega bankans í þessari röð. Það er erfitt að sætta sig við að í kjölfar gjaldþrots, sem að vísu var lokið með einhvers konar nauðasamningi, þá eru starfsmönnum greiddir 3,3 milljarðar í „kaupauka“. Fyrir hvaða afköst?

Ég sætti mig ekki við þess háttar afgreiðslu, ég greiddi ekki í lífeyrissjóð til að dreifa í kaupauka misviturra manna! Eða er þetta ekki hluti af stöðugleikaframlagi viðkomandi fjármálastofnunar? Greiðslujafnaðarvandi þessarar fjárhæðar er samur, hvort heldur hann lendir hjá kröfuhöfum ellegar útvöldum aðli starfsmanna.

Önnur mál sem upp hafa komið á liðnum vetri eru til þess fallin að misbjóða venjulegu fólki. Sala Arion banka á hlutabréfum í Símanum hf. er rugl. Þessi setning: að samþætta hagsmuni starfsmanna og félagsins! Þetta hefur heyrst áður um gjafagerninga. Þá lánuðu íslenskir bankar starfsmönnum fyrir eigin hlutabréfum, án trygginga og fölsuðu eigið fé bankanna. Tryggingin var í eftirstæðum eignum bankans sjálfs! Það var hluti af markaðsmisnotkun, sem er dæmt fyrir.

Nú á að reyna eitthvað svipað, eins og hjá rónanum, sem ætlar ekki að fá timburmenn næst þegar hann drekkur. Á sama veg er Borgunarmál. Þar eru útvaldir starfsmenn, sem vita aðeins meira en gagnaðilinn í samningnum. Það er hrúgað inn upplýsingum í gagnaherbergi. Sennilega að mestum hluta gagnslausar upplýsingar, en aðalatriðið liggur falið. Ef mál eru þannig vaxin heita það innherjasvik. Um það er fjallað í lögum um verðbréfaviðskipti. Samsvarandi ákvæði er í fjársvikakafla hegningarlaga.

Endurtekning

Þegnar þessa lands eru greið endur að forréttindum útvalinna. Það á við um óhóflegan vaxtamun! Það á við um símakostnað! Það á við um greiðslukortagjöld, hvort heldur þau eru falin eða birtast í heimabanka!

Það á við um greiðslujafnaðarvanda þegar eignum slitabúa er skotið undan stöðugleikaframlagi! Þeir, sem sitja á bekk í fjármálafyrirtækjum, virðast hafa fullan vilja til að endurskapa og endurtaka ósiði fyrri tíðar.

Konungur vor skipti ríkjum sínum með málefnalegum hætti. Skipting í boði fjármálaheimsins hefur aldrei verið málefnaleg.

Þeir, sem hafa lýst skiptingunni, hafa gjarnan litið út eins og gljáfægðir hlandkoppar. Hér varð siðrof milli þjóðar og fjármálaheims. Siðrof verður ekki endurtekið."

Hér er skörulega skrifað af Vilhjálmi Bjarnasyni fjárfesti og alþingismanni.Ályktun hans er hinsvegar ekki í augsýn með að standast.

Verði siðrof á Íslandi skal það endurtekið þar til siðirnir hafa breyst nægilega.


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 identicon

Við getum glaðst yfir mörgu þessa dagana.  Samkvæmt fréttum þá drekka börnin okkar og reykja miklu minna en áður.  Þau bryðja hins vegar geðlyf í miklu magni - eiga heimsmetið - en það er bara vegna þess að heilbrigðiskerfið okkar er svo frábært.  Framtíðin er svo sannarlega björt Halldór.

http://www.visir.is/islensk-born-reykja-og-drekka-miklu-minna/article/2016160229275

Elín Sigurðardóttir (IP-tala skráð) 26.2.2016 kl. 10:01

2 identicon

Þakka þér fyrir góða grein, hún vekur sannarlega til umhugsunar.

Siguråur Oddgeirsson (IP-tala skráð) 26.2.2016 kl. 12:38

3 Smámynd: Hrólfur Þ Hraundal

Meira en gott hjá þér Halldór og þakka þér fyrir og þetta var líka góð grein hjá honum Villa, hann Villi  af Hátúni er að þroskast.

Hrólfur Þ Hraundal, 26.2.2016 kl. 21:38

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Höfundur

Halldór Jónsson
Halldór Jónsson

verkfræðingur, flugdellukall, tennis-og badmintonspilari

-ekki góður í neinu af þessu-

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (23.4.): 10
  • Sl. sólarhring: 10
  • Sl. viku: 56
  • Frá upphafi: 3418198

Annað

  • Innlit í dag: 10
  • Innlit sl. viku: 53
  • Gestir í dag: 10
  • IP-tölur í dag: 10

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Eldri færslur

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband