Leita í fréttum mbl.is

Endurreist traust

langt um betra en gamalt. Svo segir á forsíðu Fréttó:

"Bankasýslan segir í svarbréfi sem sent var í gær að sölumeðferðin á Borgun hafi varpað verulegum skugga á árangur Landsbankans undanfarin misseri og að fagleg ásýnd bankans og stjórnenda hans hafi beðið hnekki.

Segir Bankasýslan mikilvægt að Landsbankinn endurheimti traust. Telur Bankasýslan að bankaráð Landsbankans verði að grípa til viðeigandi ráðstafana til að endurheimta það traust sem bankinn tapaði vegna sölumeðferðarinnar. Bankinn þarf að gera hluthöfum í Landsbankanum grein fyrir því með hvaða hætti bankaráðið telur rétt að bregðast við fyrir l,apríl"

Flott og formlegur inngangur að því að láta Steinþór iðrast beisklega. Skyldi losna staða sem einhver úr ferlinu getur hugsað sér?

Barbabrella, allt komið í lag svo lengi sem viðskiptin með Borgun standa óhögguð.

Svo þegar Tryggingafélögin hætta við að borga sjálfum sér út bótasjóðina eins og fyrri eigendur gerðu, þá skyndilega þarf að endurheimta traust og orðspor?. Það er gert með einni fréttatilkynningu og BINGO, allir sáttir. Það þarf ekkert að bregðast við sérstaklega.

Hvað er þessi bankasýsla að gera ? Getur hún ekki gert eins og stjórn í tryggingafélagi? Er ekki auðvelt að endurreisa traust almennings?

Ekki þarf neitt sérstakt til að endurreisa mitt traust úr engu


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Höfundur

Halldór Jónsson
Halldór Jónsson

verkfræðingur, flugdellukall, tennis-og badmintonspilari

-ekki góður í neinu af þessu-

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (5.5.): 16
  • Sl. sólarhring: 17
  • Sl. viku: 78
  • Frá upphafi: 3418310

Annað

  • Innlit í dag: 15
  • Innlit sl. viku: 74
  • Gestir í dag: 15
  • IP-tölur í dag: 11

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Eldri færslur

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband