Leita í fréttum mbl.is

Það vitlausasta

í pólitísku stöðunni núna er krafa Birgittu um þingrof og nýjar kosningar. Auðvitað vissi hún ekki hver fer með þingrofsréttinn sem von var og hélt greinilega að hún sjálf færi með hann.

Ég veit ekki betur en að hafi komið til þess að einstakir menn í sveitarstjórnum hafi orðð að standa upp úr sætum sínum af einhverjum orsökum, þá hafi það gerst einfaldlega með því að varamaður á lista kemur inn fyrir þann sem hættir. Engum dettur í hug að kjörtímabilið hafi breyst enda enginn þar með þingrofsrétt.Menn verða að sitja kjörtímabilið. Á Alþingi eru þingflokkar sem ákveða hverjir skipa ráðherrasæti af þeirra hálfu.Aðeins forsætisráðherrann getur breytt kjörtímabilinu sjálfu.

Þetta er eitthvað flóknara á ríkisstjórnarplani þar sem ráðherrar koma úr mismunandi kjördæmum. Ef einstakir ráðherrar vildu fara í leyfi,  yrði samið um slíkt innan ríkisstjórnar. Aðeins ef samkomulag væri útilokað myndi ríkisstjórn biðjast lausnar. Þannig hefði ég séð fyrir mér það verklag sem viðhaft yrði. 

Það skelfilegasta sem yfir þessa þjóð getur komið er að áhrif borgaralegu aflanna myndu minnka frá því sem nú er. Hvort sem slíkt er á sjóndeildarhringnum á næsta ári eða ekki þá er öll frestun á þvi betri en strax. Áframhald lífskjarasóknar er undir þessu komin. Eitt ár enn í hagvexti býr okkur betur undir það að þola pláguna sem yfir getur dunið í næstu kosningum.

Mú þegar hart er sótt að forsætisráðherra þá skulum við minnast þess sem hann hefur vel fyrir okkur gert með störfum sínum. Skipta þau ekki meira máli en einhverjir draugar úr fortíðinni sem hafa verið til staðar allan tímann þó þeir hafi verið í skugga? 

Þjóðin á allt undir því núna að þingmenn sýni ábyrgð og æðruleysi og láti ekki ágjafir hrekja sig af siglingaleiðinni.LSG þá þarf enginn að fá leiðbeiningar hjá Birgittu Jónsdóttur eða álíka stjórnvitringum  um uppkoomandi vandamál.


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 identicon

Það besta sem Sigmundur Davíð getur gert, sjálfum sér og þjóðinni, er að segja af sér strax á morgun.

Viðtalið við forsætisráðherra  hefur víða birst og framkoma hans þar hefur þótt mjög sérstök svo að ekki sé meira sagt.

Það er ekki hægt að segja að framferði hans í þessum peningamálum sé í lagi þó að það sé löglegt.

Það er siðblinda að leyfa sér allt sem er löglegt.

Hins vegar kemur þá upp flókin staða í stjórnmálunum sem forsetinn verður að ráða fram úr. Þar treysti ég Ólafi Ragnari best. Hann verður því að sitja áfram.

Hörður Þormar (IP-tala skráð) 4.4.2016 kl. 00:31

2 Smámynd: Helga Kristjánsdóttir

Það er akkurat ekkert að þessu.

Helga Kristjánsdóttir, 4.4.2016 kl. 06:07

3 identicon

Jæja Helga mín....svona siðblind..??

Helgi Jónsson (IP-tala skráð) 4.4.2016 kl. 08:23

4 Smámynd: Jón Valur Jensson

Mjög viturlega skrifuð grein hjá þér, Halldór, laukrétt mat á stöðu mála og hvað gera ber í því nú.

En menn þurfa að gera sér fulla grein fyrir því, að lagalega forsendu (eða rök) vantrausts virðist algerlega skorta, og hitt er líka ljóst, að Birgitta og félagar hafa ekkert þingrofsvald í sínum höndum. Þetta vita upphlaupsmenn stjórnarandstöðunnar mætavel, en þá er það spurning, hvort þeir ætli sér að fara aftan að öllum reglum og efna ti nýrrar "búsáhaldabyltingar" með því að hefja mótmælaaðgerðir við Alþingi í dag til að skapa þrýsting á, að foringjar stjórnarflokkanna þurfi að segja af sér og jafnvel meira en svo, m.ö.o. að reyna nýja valdaránstilraun, úr því að vinnureglur þingræðisins eru þeim ekki að skapi.

Jón Valur Jensson, 4.4.2016 kl. 10:21

5 identicon

Komið þið sæl - Halldór, og aðrir gestir, þínir !

Gott fólk !

Þetta: þurfti EKKERT, að fara svona.

Fjarri því.

Hefðu - Sigmundur Davíð og Bjarni, sýnt minnstu tilburði, til þess að standa við loforð sín, sem þeir gáfu landsmönnum Vorið 2013, þegar illræðis hjúin : Jóhanna og Steingrímur J. hrökkluðust frá með SKÖMM / stæðu þeir með Pálmann í höndunum, í dag.

I.Fullt afnám verðtryggingar !

II. Húsnæðisskuldir - og fyrirtækja endurreiknuð á siðlegum grunni / til langrar framtíðar - sem og: aftur til 1983 !

III. Íþyngjandi aukapóstar: eins og Stimpilgjöld (19. aldar tilbúningurinn) og Bifreiðagjöld (sem áttu að gilda, frá 1. Janúar 1989 - og í mesta lagi, út árið 1990) afnumin !

Margt annað - mætti tína til, og vil ég biðja ykkur að ígrunda vel, og rækilega.

Nafni minn Jónsson (kl. 08:23), verður að fá að hanga, á sínum Heykrók, honum verður ekkert þokað, til öllu betri vega hugmyndafræðilega, svo sem.

Með beztu kveðjum sem oftar - af Suðurlandi /   

Óskar Helgi Helgason (IP-tala skráð) 4.4.2016 kl. 11:59

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Höfundur

Halldór Jónsson
Halldór Jónsson

verkfræðingur, flugdellukall, tennis-og badmintonspilari

-ekki góður í neinu af þessu-

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (18.5.): 12
  • Sl. sólarhring: 12
  • Sl. viku: 75
  • Frá upphafi: 3418436

Annað

  • Innlit í dag: 12
  • Innlit sl. viku: 70
  • Gestir í dag: 12
  • IP-tölur í dag: 11

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Eldri færslur

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband